Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2006, Side 42
42 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 Helgarblað DV „Að einhverju leyti yrði ég tals- maður fatlaðra, það er ekki spuming en ég trúi því að ég hafi ýmislegt ann- að fram að bjóða. Ég er fjölskyldu- og námsmaður svo skóla-, umhverfis- og fjölskyldumálin eru ofarlega á baugi hjá mér líka," segir Bergur Þorri Benjamínsson sem býður sig fram í fimmta sæti í prófkjöri sjálfstæðis- manna á Akureyri sem fram fer 11. febrúar næstkomandi. Bergur Þorri lamaðist fyrir neðan mitú árið 1999 þegar hann var rétt rúmlega tvítugur. Hann hafði unnið sem handlangari verktaka og var uppi á þaki íþróttaskemmunnar á Akureyri þegar slysið átti sér stað. „Ég steig í gegnum þunna klæðn- ingu og datt við það aftur fyrir mig og lentí á bakinu," segir Bergur þegar hann er beðinn um að lýsa aðdrag- anda slysins. „Þetta var nú ekkert rosalegt fall, rétt um 3-4 metrar en ég lentí á steinsteypu sem gaf eðlilega ekkert eftír.“ Skiptir sjálfur um dekk Bergur var fluttur suður í skyndi þar sem hann áttí eftir að dvelja næstu mánuðina. Hann slasaðist í júlí en var kominn aftur heim á Akureyri í nóvember og farinn að geta séð um sig sjálfur, keyra bfl og annað í maí. „Um leið og beinin í bakinu höfðu gróið og skrokkurinn jafriað sig var ég tiltölulega fljótur að ná mér,“ segir hann. Fyrst um sinn héldu vinir og kunn- ingjar í þá von að Bergur myndi fá mátt í fætuma að nýju. „Það var nátt- úrulega ákveðin óskhyggja. Fólk gerði sér ekki alveg grein fyrir að með brot- ið bak og skaddaða mænu verður ekki aftur snúið. Þú færð ekkert rafrnagn ef þú klippir á símasnúru,“ segir hann en bætir við að hann hafi sjálfur hald- ið í vonina um fullan bata um tíma. „Það þýðir samt ekkert að vera í afneitun því þannig syndirðu á mótí straumnum sem gengur ekki. f dag geri ég allt sem mig langar og læt Bergur Þorri Benjamínsson lamaðist fyrir neðan mitti árið 1999 eftir að hafa dottið niður af þaki íþróttaskemmunnar á Akureyri. Bergur Þorri og eiginkona hans eignuðust fyrir stuttu yndislega tvíbura. Auk föðurhlutverksins er Bergur að klára viðskiptafræði i Háskólanum á Akureyri og býður sig nú fram í fimmta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna þar í bæ. Bergur Þorri segir algengt að fólk verði algjörlega upptekið af sjálfu sér og sínum vandamálum eftir erfið slys en mikilvægt sé að sætta sig við gefinn hlut og halda áfram með lifið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.