Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2006, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006
Fréttir DV
Stórverslun
Egilsstaða
Brátt munu Egilsstaða-
búar eignast stórverslun en
Kaupfélag Héraðsbúa og
Húsasmiðjan hafa náð
samkomulagi um að sam-
eina rekstur beggja félag-
anna á sviði byggingarvara
undir merki þess síðar-
nefnda. í tengslum við
sameininguna hafa félögin
náð samkomulagi um
byggingu nýrrar og stór-
glæsilegrar verslunar sem
mun hýsa hinn sameinaða
byggingavörurekstur í 2.500
fermetra húsi í nýja mið-
bænum á Egilsstöðum.
Nýtt útibú
Fiskistofu í
Eyjum
Netmiðillinn
eyjar.net fullyrð-
ir að ákveðið
hafi verið að
Hlynur Sigmars-
son, bankamaður í Vest-
mannaeyjum, verði ráðinn
forstöðumaður útibús Fiski-
stofu í bænum. I frétt mið-
ilsins segir að Hlynur geti
ekki staðfest að hann hafi
fengið starfið en hann játar
að hafa farið í viðtal vegna
þess. Gert er ráð fyrir að
nýtt útibú Fiskistofu opni á
næstu dögum í Vestmanna-
eyjum og er því ekki langt
að bíða að formleg tilkynn-
ing um nýja útibússtjórann
berist fjölmiðlum ffá aðal-
stöðvunum í Reykjavík.
Aðalsteina Lára Aðalsteinsdóttir segir íhlutun fyrirtækisins ESS í einkahagi starfs-
manna afar óeðlilega en dregin eru af handahófi nöfn úr potti og svo eru viðkomandi
sendir í áfengismælingu. ESS er norskt fyrirtæki sem sér um uppihald á starfsmönn-
um við Kárahnjúkavirkjun og hefur áður verið óánægja í garð fyrirtækisins vegna
súpu sem starfsmenn fengu á hverjum degi í marga mánuði.
Kárahnjúkar /W/Ar/'/
óánægja er með íhlut-
un fyrirtækisins BSSI
einkahagi fólks.
Flótti frá
Selfossi
Mjólkurbúið á Selfossi
virðist um þessar mundir
vera að flytja allt sitt haf-
urtask úr bænum. Sölu-
deild mjólkurbúsins á Sel-
fossi flyst til Reykjavíkur frá
næstu áramótum en við
hana starfa tveir menn. Þá
hefur rjómaostagerð mjólk-
urbúsins verið flutt á
Blönduós en þar störfuðu
fjórir starfsmenn. Guð-
brandur Sigurðsson for-
stjóri MS segir í samtali við
Sunnlenska að þessar til-
færslur séu þó minni en
þær færslur starfa sem orð-
ið hafa með tilflutningi
skrifstofuverkefna frá
Reykjavík á Selfoss.
Landsíminn
„Það eralltafgott llfá Stykkis-
hólmi, “ segir Sesselja Páls-
dóttlr á Stykkishólmi, sem á
dögurt-
um var_________________
kosin
Hólmari ársins.„Þaö eralltaf
nóg um að vera hérna. Að
minnsta kosti erþað núna,
það er bæði gott menningar
lífog nóg vinna en það er fyrir
mestu. Það var verið að frum-
sýna leikrit hér í gær en ég
ætla að sjá það. Það eru ung-
lingarnirsem koma mest við
sögu lþvi.“
„Þeir draga nöfn af handahófi líkt og um bingó væri að ræða,“
segir Aðalsteina Lára Aðalsteinsdóttir, sem var starfsmaður í
þvottahúsinu í ESS-búðunum á Reyðarfirði sem sjá um mat og
uppihald starfsmsnns Kárahnjúkavirkjunarinnar. Að sögn Aðal-
steinu eru nöfn dregin af handahófi úr potti og þurfa viðkom-
andi einstaklingar þá að fara í áfengismælingu í kjölfarið.
„Yfirmennimir fylgjast óeðlilega
mikið með starfsfólkinu," segir Aðal-
steina sem er afar ósátt við strangar
reglur ESS. Aðalsteina segir það fá-
ránlegt að fyrirtækið skuli vera að
skipta sér af því hvort starfsmenn
hafi fengið sér bjór kvöldið áður eða
ekki. Aðalsteinu finnst afar undar-
legt að einstaklingurinn þurfi að
kasta frelsi sínu og einkahögum frá
sér þegar hann byrjar að vinna hjá
fyrirtæki.
Ávítt fyrir að blanda geði
„Ég sagði upp ásamt yfirmanni
þvottahússins," segir Aðalsteina en
verkstjóri þvottahússins sagði upp
vegna þess að yfirmenn fyrirtækis-
„Þetta er ekki spurn-
ing um starf heldur
frelsið til að drekka
bjór á kvöldin."
ins skömmuðu hann fyrir að bjóða
þremur stúlkum sem unnu í þvotta-
húsinu í kaffi. Yfirmönnunum
fannst ekki við hæfi að sögn Aðal-
steinu að verkstjórar og undirmenn
blönduðu geði fýrir utan vinnustað-
inn.
Verkalýðsfélagið bitlaust
„Við leituðum til verkalýðsfélags-
ins en þeir vildu ekkert gera fyrir
okkur," segir Aðalsteina sem reyndi
að sækja rétt sinn eftir hefð-
bundnum leiðum.
Að sögn Aðalsteinu gat
Verkalýðsfélagið ekki gert
mikið en fyrirtækið bauð
henni starf aftur sem hún
þáði ekki. „Þetta er ekki
spuming um starf heldur
frelsið til að drekka bjór á
kvöldin," segir Aðalsteina.
Almenn óánægja
Að sögn Aðafsteinu er af-
menn óánægja með íhlutun
fyrirtækisins í einkahagi
fólks. Ekki er langt
síðan upp
kom
máf
þar
sem verkamaður kvartaði undan
einhæfri matargerð en súpa var í
ölf mál í marga mánuði þar
til hlustað var á kvartanir
starfsmanna. Þá var
boðið upp á aðra teg-
und af mat annan
hvem dag. Að sögn
verkamannsins kost-
aði súpan þúsund
krónur en farið var
eftir norskri fyrir-
mynd í matargerð.
Ekki náðist í Idar
Hopland, talsmann fyrir-
tækisins, þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir.
valur@dv.is
Kæröum flkniefnabrotum fækkar í Árnessýslu
Aflífun á fíkniefnahundi talin ástæða
Fíkniefnabrotum hjá lögregl-
unni í Árnessýslu hefur fækkað í
ár miðað við fyrri ár. í janúar og
febrúar á árinu 2003 voru þau 10,
13 á sama tíma árið 2004, 15 árið
2005 en 8 í ár. Á þessu kunna að
vera ýmsar skýringar, ein er hugs-
anlega sú að aflífa þurfti fíkni-
efnahund sem verið hafði við
embættið eftir að alvarleg hjarta-
bilun greindist í honum.
I frétt um málið á vefsíðu lög-
reglunnar segir að hugmyndir séu
innan embættisins um að fá tvo
fíkniefnahunda en ljóst er að mik-
ill kostur væri að hafa tvo menn á
sinn á hvorri vaktinni með hund
tiltækan og jafnframt hefðu þeir
stuðning hvor af öðrum við þjálf-
un og æfingar. Slíkir hundar eru
nú sérvaldir og forþjálfaðir í Nor-
egi fyrir milligöngu Ríkislögreglu-
stjóra og er verið áðkánri^ mögu-
leika á fjáririögnun slíkrá kaupa
en reikna má með að hver hundur
„starfa" hér. Auk þessa er ljóst að
stór fíkniefnarannsókn á máli sem
kom upp seint á síðasta ári hefur
dregið úr möguleikum til eftirlits
enda rannsókn þess yfirgripsmikil
og tímafrek.
Bassi Fíkniefnahund-
ar á borð við Bassa
eru orðnir ómissandi í
störfum lögreglunnar.