Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2006, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006
Menning DV
Enn nærist elskan sanna,
enn kærleiks funinn brennur,
enn blossar ástar tinna,
enn kviknar glóð af henni,
enn giftist ungur svanni,
enn saman hagir renna,
enn gefast meyjar mönnum,
menn hallast enn til kvenna.
(Páll Vídalín, Afmorsvísuf)
Umsjón: Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir hrefna@dv.is
Vel sagt
' /
i i
Úr sýningu LA á Fullkomnu brúð-
kaupi Nú verður leikritið sýnt d fjölum
j Borgarleikhússins.
Fullkomið brúð-
kaup í borginni
Nú hefur verið gengið frá samning-
um um sýningar á hinum vinsæla
gamanieik, Fullkomnu brúðkaupi, í
Reykjavík.Sýningarnar hefjast í lok
april og verða í Borgarleikhúsinu.
Fullkomið brúðkaup eftir Robin
Hawdon var frumsýnt hjá LA 20.
október á siðasta ári, en sýningum
var hætt nú nýverið til að rýma til fyr-
ir næstu frumsýningu leikhússins,
Litlu hryllingsbúðinni. I fréttatilkynn-
ingu frá Leikfélagi Akureyrar segir að
Fullkomið brúðkaup sé aðsóknar-
mesta sýning leikfélagsins frá upp-
hafi og starfsfólk leikhússins hafi
fengið margar fyrirspurnir um sýn-
ingar í Reykjav(k.„Til að mæta fjölda
áskorana hefur verið ákveðið að
hefja sýningar á Fullkomnu brúð-
kaupi í Reykjavík í vor."
Fyrsta sýningin verður 30. apríl en
næstu sýningar þar á eftir eru: 2„ 3,7,
8 og 9 maí.Sýningar verða einungis í
maí og júní.en miðasala hefst í miða-
sölu Borgarleikhússins nú á föstudag.
Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarson
en þýðingu gerði örn Árnason. Leik-
arar eru Álfrún Helga örnólfsdóttir,
Guðjón Dav(ð Karlsson, Jóhannes
Haukur Jóhannesson, Maríanna Clara
Lúthersdóttir, EstherThalia Casey og
Þráinn Karlsson.
Pétur Eggerz Samdi og leikstýrði Tónleik.
Möguleikhúsiðá
faraldsfæti
Möguleikhúsið sýndi leiksýninguna
Tónleik eftir Pétur Eggerz og Stefán
Örn Arnarson á alþjóðlegri barnaleik-
húsháfið (Oulu (Finnlandi dagana
23. og 24. febrúar sl. Verkið var sýnt
þrisvar sinnum á hátíðinni við góðar
undirtektir. Þetta var 25. árið sem
barnaleikhúshátíð var haldin í Oulu
og var því sérstaklega veglega að
henni staðið að þessu sinni. Auk (s-
lensku sýningarinnar voru á hátíð-
inni sýningarfrá Noregi, Svíþjóð,
Danmörku, Þýskalandi, Frakklandi,
Eistlandi og Kanada ásamt fjölda
finnskra sýninga.
Möguleikhúsið frumsýndi Tónleik
árið 2004, en segja má að sýningin sé
(senn leiksýning og tónleikar. Það er
Stefán Örn Arnarson sem er einn á
sviðinu allan tímann og leikur selló-
leikar sem er mættur til að halda
tónleika. Á efnisskránni er svíta eftir
J. S. Bach. En eitthvað er ekki eins og
það á að vera. Einbeitingin er ekki til
staðar og honum gengur illa að
finna samhljóm milli sín og hljóðfær-
isins. Eða langar hann kannski að
spila eitthvað allt annað?
Náunginn í næstu gröf eftir Katarinu Mazetti er óvenjuleg bók, ferlega fyndin
og hreinlega holl lesning. Svona á að skrifa ástarsögur.
Fyrir hvern ræklar
maður eininlega skóg?
Það er sitthvað að lesa ástarsögu
og lesa ástarsögu. Þetta er alkunna
og sennilega er engin bókmennta-
grein jafn fyrirlitin og einmitt ástar-
sagan. Enda em til ótrúlega margar
vondar sögur sem byggja á einföld-
um og útjöskuðum formúlum;
elskendum er meinað að eigast, oft
vegna þess að einhver illgjam (gjam-
an dökkhærður karlmaður eða vond
stjúpa) bmggar þeim launráð. Eftir
mikla baráttu og nokkur dauðsfóll ná
elskendumir þó saman á ný.
í ljósi þessa er nokkuð áhættu-
samt að taka sér í hönd bók sem hef-
ur undirtitilinn Ástarsaga, en hann
hefur einmitt bókin Náunginn í
næstu gröf eftir hina sænsku Katar-
inu Mazetti.
Að kunna að steikja kjötbollur
Náunginn í næstu gröf fjallar um
Desirée, bókasafnsfræðing á fertugs-
aldri, sem kynnist skógarbóndanum
Benny þegar hún situr löngum
stundum við leiði eiginmanns síns. í
kirkjugarðinum er Benny staddur til
þess að heimsækja leiði foreldra
sinna.
Þó að með þeim takist ástir, þá er
Katarina
Mazetti
Náunginn í
næstu gröf-
Ástarsaga
Þýðing: Hildur
Finnsdóttir
Grámann bókaútgáfa 2005
★ ★★★☆
Bókmenntir
vart hægt að finna ólíkara fólk. Hún
er bókabéus, borgarbam og menn-
ingarviti. Hann er bóndi, gamaldags
sveitamaður sem hefur útsaums-
myndir móður sinnar heitinnar í
miklum hávegum og sækist helst eft-
ir þeim eiginleikum í fari kvenna að
þær kunni að steikja kjötbollur.
Það sem þau eiga þó sameiginlegt
er að þau em óskaplega einmana og
uppfull af þrá eftir einhverju sem líf-
ið hefur fram að því ekki veitt þeim.
Desirée saknar eiginmannsins þó að
hún hafi ekki elskað hann og Benny
l ^ gengur um landareign sína og spyr:
„Einmanalegt líf, án konu og
barna—ef til vill verður það áþreifan-
legra þegar maður er bóndi með þó
nokkra hektara af ræktaniegu landi
og skóg að auki. Fyrir hvem ræktar
maður eiginlega skóg; skóg sem ekki
er hægt að nýta fyrr en eftir þrjátíu
ár?" (27).
Kynlífið algjört þönder
Ýmist segir Benny söguna eða
Desirée; stundum greina þau bæði
frá sömu atvikum, en í annan tíma
skiptast þau á að segja frá því hvem-
ig ævintýrinu vindur ff am.
Fljótlega kemur í ljós að parið á
ekki mjög auðvelt með að hafda
sambandinu gangandi, jafiivel þó að
kynlífið sé algjört þönder. Ástæður
þess em einmitt þær sem venjulegt
fólk stendur frammi fyrir, enda er
ástarsagan raunsönn að því leyti að
það er sennilega afgengara að fólk
eigi í erfiðleikum við að samræma líf
sitt og skoðanir heldur en að það
lendi í glímu við morðóða dökk-
hærða menn.
Það er líka hressandi að í þessari
ástarsögu er ekkert púður lagt í að
greina frá því hvað parið sé sláandi
myndarlegt. Þvert á móti er sagt að
Desirée sé litlaus, hreint og beint
„drapplituð manneskja", eins og
elskhugi hennar kemst að orði og
sjálf segir hún: „Ég var ekki vön því
að vekja meiri athygli sætra stráka en
veggfóður, valið af ábyrgum aðila frá
félagsmáfastofnun.“(15) Og það
fyrsta sem Desirée tekur eftir í fari
Bennys er að hann hefur bara þrjá
fingur á vinstri hendi. Ekki beint par
sem maður sér fyrir sér leildð af Brad
Pitt og Angelinu Jolie!
Kannski einmitt þess vegna er
Náunginn í næstu gröf bráðfyndin
saga og það er einhver óvenjulegur
ferskleiki yfir henni. Hún greinir ffá
lífi venjulegs fólks af miklum skiln-
ingi á öllum þeim fjára sem getur
valdið því að fegurstu ástarævintýri
lenda úti í mýri. Þýðing Hildar Finns-
dóttur er lipurlega unnin og hvergi
vottar fyrir stirðbusalegu orðavali.
Húmorinn skín vel í gegnum stilinn
og það verður sérlega góð skemmtun
að lesa þessa vönduðu ástarsögu.
Endirinn var þó ekki undirritaðri að
skapi, en við því er ekkert að segja.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir.
Jón Nordal tónskáld varð áttræður í gær og af því tilefni verða á næstunni haldn-
ir tvennir tónleikar honum til heiðurs. Sinfóníutónleikar verða á fimmtudag og
Tríó Reykjavíkur heldur tónleika í Hafnarborg á sunnudag.
Jón Nordal heiðraður
•/Á
Eitt virtasta tónskáld Islendinga,
Jón Nordal, hefur ekki síður náð
virðulegum aldri, þar sem hann varð
áttræður í gær. Jón hefur lagt fram
drjúgan skerf til íslensks tónlistarlífs
sem tónskáld, píanóleikari, kennari
og skólastjóri. Með honum bárust til
íslands straumar nútímatónlistar og
áhrif hans á yngri tónskáld eru ótví-
ræð.
Eins og gefur að skilja vilja kolleg-
ar hans úr heimi tónlistarinnar
heiðra Jón á þessum merku tíma-
mótum og á næstunni verða haldnir
tvennir tónleikar í tilefni afmælisins.
Sinfóníuhljómsveit íslands held-
ur tónleika á fimmdagskvöldið, en á
efnisskrá þeirra verður að finna
rjómann af konsertum Jóns og mun
, fjöldi einleikara heiðra hann við
þetta tækifæri. Fram koma þau Guð-
ný Guðmundsdóttir, Einar Jóhann-
esson, Vfkingur Heiðar Ólafsson, Ás-
dís Valdimarsdóttir og Erling Blöndal
Bengtsson.
Systur í Garðshorni
Á sunnudaginn verða haldnir
tónleikar til heiðurs Jóni í Hafnar-
borg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar. Flytjendur á tónleik-
unum em Tríó Reykjavíkur í sam-
vinnu við Tónskáldafélag fslands, en
á tónleikunum verða eingöngu flutt
verk eftir Jón.
Uppistaðan er kammerverk fyrir
fiðlu, selló og píanó sem spanna all-
an feril Jóns. Flest verkanna em
meðal þekktustu kammerverka Jóns
sem hafa fyrir löngu náð hylli ís-
lenskra ffytjenda og tónlistamnn-
enda. Elst verkanna er Systur í
Garðshorni fyrir fiðlu og píanó ffá ár-
inu 1944 en þar á eftir verður leik-
in Fiðlusónata frá 1952. Þá jA
verða flutt Dúó fyrir fiðlu
og selló frá 1983,
Myndir á þili fyrir
selló og píanó frá
1992 og loks tríóið
Andað á sofinn
streng fyrir fiðlu,
selló og píanó sem
samið var 1998.
Tríó Reykjavíkur
skipa, Guðný Guð-
mundsdóttur fiðlu,
Gunnár Kvaran
selló og Peter Máté
á píanó.
Jón Nordal tónskáld
Eitt virtasta tónskáld
Islendinga hefur náð
virðulegum aldri.
■■■■■