Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2006, Page 12
72 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006
Fréttir DV
Bylur á
Hellisheiði
Þeir sem fóm um Hellis-
heiðina um kvöldmatarleyt-
ið á mánudagskvöld brá í
brún vegna snjóbyls og
slæmrar færðar. Samkvæmt
lögreglunni á Selfossi lentu
nokkrir flutningabflar í
vandræðum í brekkum sök-
um hálku og töfðu
mikið fyrir umferð-
inni. Nokkrir bflar
lentu utan vegar í
slæmu skyggni og
þrír minniháttar
árekstrar áttu sér
stað. Lögreglan á
Selfossi segir að
fólk geri sér stund-
um ekki grein fyrir því að
allra veðra er von á þessum
árstíma og ástæða til að vera
vel búinn þegar farið er um
Hellisheiðina.
Dráttarvextir
tvöfalt hærri
Neytendastofa hefur sent
Alþingi álit sitt á frumvarpi
til laga um vexti og verð-
tryggingu, yflrdráttarlán og
dráttarvexti. Talsmaður
neytenda fagnar frumvarp-
inu en segir að hægt væri að
ganga lengra í að tryggja
hagsmuni neyt-
enda gagnvart íyr-
irtækjum og lána-
stofnunum. í álit-
inu er bent á að
dráttarvextir á ís-
landi séu um tvö-
falt hærri en í
löndum sem við
berum okkur saman við en
engar sérstakar aðstæður
séu fyrir hendi á íslandi sem
réttlæti þennan mun. Hvatt
er til þess að samningsfrelsi
um vaxtakjör í neytendalán-
um haldist óbreytt.
Fljúgandi
hnúajárn
Lögreglan í Vestmanna-
eyjum hafði í nógu að snúast
í síðastliðinni viku. Á föstu-
daginn var lögreglan við
hefðbundið eftirlit á flugvell-
inum í Vestmannaeyjum.
Maður sem var að koma
með flugi frá Bakkaflugvelli
var stöðvaður af lög-
reglunni sem taldi að
hann væri með
fflcniefni meðferðis.
Það hafði hann þó
ekki en hins vegar
fannst hnúajárn á
honum sem hann
kvaðst hafa búið til
sjálfur. Hald var
lagt á hnúajámið og
má viðkomandi búast
við því að fá sekt vegna
brota á vopnalögum.
„Maður hefur það fínt," segir
Ingi Þór Ágústsson, hjúkrun-
arfræðingur á Isafirði. „Það er
blússandi uppgangur hér á
ísafirði, við erum að byggja
unnvörpum íbúðir og blokkir.
Það ríkir mikil bjartsýni hér á
Isafirði.
Gisti-
Landsíminn
plássum fyrir ferðamenn hefur
fjölgað töluvert og ánægju-
legt að ferðamenn séu að
uppgvöta perlur Vestfjarða.
Svo erum við að fara að halda
sýningu í vorsem mun heita
Perlur Vestfjarða og svo er
náttúrlega rokkhátiðin Aldrei
fór ég suður í páskavikunni I
aprll."
Undanfarnar vikur hefur DV staðið í átaki
gegn þeim sem leggja ólöglega í bílastæði fatl-
aðra. Viðbrögðin láta ekki á sér standa og
hefur blaðinu borist fjöldi ljósmynda í kjölfar-
ið. Svo virðist sem að átakið hafi ekki náð til
allra því enn berast myndir af bílum sem
ekki hafa leyfi til þess að leggja í bílastæðin.
Seoja aðra
Burt
urbláu
stæðunum
hata hevrt bila sma
Dodge Magnum
Lúxusbifreið var
lagt í stæði fatlaðra
fyrir utan Smára-
lindina. Ökumaður-
inn varaðflýtasér
svo mikið að kveikt
á bílnum þegar
j Ologlegur
] Þessi ökumað-
]ur lagði næst-
| um því einum
þriðja afbll
sínum I stæði
fatlaðra. Það er
spurning hvort
hannsé30%
öryrki.
van
þessi Ijósmynd
tekin.
Eiginkonan
Lagði bllnum í
stæði fatlaðra
'fyrirutan
Kringluna að
sögn Þórs Inga
Sonarsonurinn
Lagði 6/7 Valgeirs
Vilhelmssonar I
bílastæði fatlaðra
fyrir utan Americ-
an Style. Hann
ætlar að skamma
drenginn.
Árdal en hann
segir tengda-
| móður slna
með krabba-
mein og eigi
erfitt með gang.
Konan mín var á bílnum
DV hefur nú birt ljósmyndir af töluverðum fjölda bíla sem
lagt hafa ólöglega í bílastæði fatlaðra á undanförnum vikum.
Lesendur blaðsins hafa verið duglegir við að taka ljósmyndir
af bílunum og þær verða birtar áfram. Haft var samband við
eigendur tveggja bfla af þeim fjórum sem birtast nú í blað-
inu. Þeir vildu ekki láta benda á sig og sögðu aðra hafa setið
við stýrið.
„Nei,“ sagði Valgeir Vilhelms-
son þegar hann var spurður að því
hvort það gæti verið að DV hefði
undir höndum ljósmynd af bíl
hans í bílastæði fatlaðra.
Eftir að bílnúmer hans var lesið
upp kom í ljós að annar aðili hafði
verið á bílnum. Ljósmyndin var
tekin fyrir utan veitingastaðinn
American Style.
Skamma sonarsoninn
„Ég var ekki á honum sko. Sonar-
sonur minn var á honum, hann er
alltaf að drífa sig. Hann er einn af þeim
en ég ætla að skamma strákinn, ekki
spuming. Ég virði þetta enda engin
merki á bflnurn um að það sé einhver
fatlaður um borð,“ sagði Valgeir.
Konan á bílnum
Þór Ingi Árdal en bfl hans var lagt í
stæði fatlaðra fyrir utan Kringluna.
„Móðir konu minnar er með
krabbamein og á erfitt með gang. Hún
lagði þama í stæðið þó svo að hún væri
ekki með þetta svokallaða fatlaða
merki en það er verið að vinna í því,“
sagði Þór Ingi.
Átakið heldur áfram
Átak DV gegn þeim sem leggja
ólöglega í stæði fatlaðra heldur
áfram. Það þarf varla að útskýra það
af hverju þessi stæði eru blá að lit og
frátekin fyrir fatlaða. Til þess að geta
lagt í slíkt stæði þarf viðkomandi
ökumaður að vera með skírteini sem
segir til um að hann eigi rétt á að
nota bflastæðið og það skírteini skal
vera í framrúðu bflsins.
Konan mín var á bflniun," sagði
íslendingar kaupa mat fyrir fermingarveislurnar í útlöndum
Matur keyptur erlendis
Margir íslendingar sem ferðast til
útlanda um þessar mundir virðast
nota tækifærið og versla ódýrara inn
fyrir fermingarveislurnar.
Samkvæmt tollayfirvöldum á
Keflavíkurflugvelli er mikið um að
fólk komi með unnar kjötvörur til
landsins og borgi toll af þeim. í tolla-
lögum segir að hver einstaklingur
megi flytja inn í landið þrjú kfló af
matvörum íyrir utan hrátt kjöt og
fisk. Þeir sem eru með matvörur
umfram þessi þrjú kfló þurfa að
borga toll sem svarar 125 krónum
fyrir hvert aukakfló.
Tollayflrvöld á Keflavíkurflugvelli
segja að mest sé um það að fólk
komi með soðna kalkúna eða aðra
unna kjötvöru frá Bandarflcjunum
fyrir fermingarveislurnar. Einnig sé
mikið um það að erlendir starfs-
menn sem koma til vinnu á íslandi
komi með mat með sér eins og
pakkasúpur, brauð og hinar ýmsu
pakkavörur sem þeir kaupa ódýrara er umfram leyfileg kaup. Mest er um
í sínu heimalandi. ýmsar vörur frá Bandaríkjunum, til
Einnig segja tollayfirvöld á Kefla- dæmis fatnað og rafmagnstæki. Frá
víkurflugvelli að íslendingar séu Evrópu kemur fólk gjarnan með dýr-
heiðarlegri en áður og koma gjarnan ar tegundir af léttvíni sem fást ekki
í rauða hliðið til að greiða af því sem hér.
Margir semkomafrá
Bandaríkjunum kaupa
soðinn kalkún til aðhafa >
/ fermingarveislunni.
---— -------
Þeir sem ekki virða bflastæði fatl-
aðra og leggja ólöglega í þau eiga yfir
höfði sér sekt og að sjálfsögðu
myndbirtingu í blaðinu. atli@dv.is
Hvernig er best að senda
myndina?
Best er að senda myndina á staf-
rænu formi og notast við tölvu-
póst.
Netfangið er: rítstjom@dv.is
en einnig er hægt að senda
ljósmyndir í pósti.
Heimilisfangið er: Skaftablíö 24,
105 Reykjavík.
Eim er stór bópui íslendinga
sem viröir ekki forgang fatlaöra f
sérmerkt búastæöi.
Stýrivextir
hækka
Breytt hagvaxtarþróun, hærra
meðalgengi krónunnar, hærri
stýrivextir og meiri verðbólga að
jafnaði næstu árin mun einkenna
íslenskt efnahagsh'f verða fyrir-
hugaðar álsversframkvæmdir að
veruleika, segir í Morgunkomi ís-
landsbanka. Heildarfjárfestingin
mun nema um 270 milljörðum
króna. Að framkvæmdum loknum
mun álútflutningur verða um
helmingur af vöruútflutningi frá
íslandi. í Morgunkorninu er bent á
að hagvöxtur muni aukast á tíma-
bilinu og sterk króna muni bitna á
öðrum útflutningsgreinum.