Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2006, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006
Sport DV
somu
Ronaldinho
Skoraði stórglæsi-
legtmarkgegn
Chelsea i gaer og
grét nánast af gleði.
DV-mynd Reuters
Messi meiddist Hinn ungiLionel
** .. '_.jsnemmaaf
Messi þurfti að fara
velli vegna meiðsla. Hér faðmar
knattspyrnustjórinn stráksa er
hann kemur afvelli. DV-mynd
Reuters
Klúður en áfram Diego Forlan
tókst ekki að skora í gær en Villarreal
komstsamt áfram íljórðungsúrslit á
kostnað Celtic. Nordic Photos/AFP
MEISTARADEILDIN
Brasilíumaðurinn Ronaldinho sýndi og sannaði af hverju hann er
besti knattspyrnumaður heims er Barcelona og Chelsea mættust í
gær. Leikurinn var í járnum allan tímann þar til Brasilíumaður-
inn snjalli tók sig til og fór framhjá þremur varnarmönnum Chel-
sea og skoraði með föstu og hnitmiðuðu skoti. Börsungar hefndu
því ófaranna frá því í fyrra og eru komnir í fjórðungsúrslit.
Ekki bestur að ástæðulausu
Fjögur lið sem öll unnu sínar deildarkeppnir síðastliðið vor áttu
möguleika að falla úr leik í Meistaradeild Evrópu þegar síðari um-
ferð 16 liða úrslita hófst í gærkvöldi. Svo fór að þrjú þeirra þurftu að
sitja eftir, Englandsmeistarar Chelsea, Skotlandsmeistarar Rangers
og Ítalíumeistarar Juventus.
Leikur Barcelona og Chelsea var
spennuhlaðinn þó svo að Börsungar
hafi staðið með páimann í höndunum
eftir sigur í fyrri leiknum sem fór fram
í Englandi. Leikmenn Chelsea þurftu
að halda hreinu í leiknum auk þess að
skora tvö mörk. Voru þá góð ráð dýr.
Stuðningsmenn Eiðs Smára urðu
fyrir talsverðum vonbrigðum þegar
þeir sáu að hann var ekki í byrjunarliði
Chelsea, enda um einn af allra stærstu
leikjum ársins að ræða. Jose Mourin-
ho, knattspyrnustjóri Chelsea, ákvað
að breyta frá vanalegri liðsuppstill-
ingu sinni og setti Frank Lampard við
hlið Claude Makalele aftarlega á miðj-
una og Arjen Robben fyrir framan þá.
Joe Cole og Damien Duff voru á könt-
unum og Didier Drogba frammi.
Messi meiddist
Þar sem Asier Del Homo var í
banni fékk William Gallas það erfiða
hlutverk að gæta hins unga Lionel
Messi sem var í sviðsljósinu í fyrri
leiknum vegna áðurgreinds rauðs
spjalds. En sem betur fer fyrir hann
neyddist Messi að fara af velli strax á
24. mínútu vegna meiðsla.
Fram að því höfðu Börsungar verið
mun meira með boltann án þess þó að
skapa sér nein hættuleg færi. Varnar-
menn Chelsea voru afar vel með á
nótunum og létu ekki blekkjast af
þeim brögðum sem Ronaldinho sýndi
þeim. Hælspörkin voru ef til vill falleg
en þau bám lítinn árangur.
Hálffæri
Eftir að Messi fór út af hægðist
nokkuð um en Chelsea gerði hvað þeir
gátu til að halda sínu og náðu meira
að segja að skapa sér nokkur hálffæri.
Bestu færi þeirra vom tveir skallar, frá
Drogba og Cole, sem lenti þó í örugg-
um greipum Valdes annars vegar og
fór naumlega yfir slána í síðari tilvik-
inu.
Börsungar voru þó klárlega sterkari
í fyrri hálfleik og áttu margar góðar
sóknir sem skiluðu þó hættulitlum
færum. Börsungar gátu huggað sig við
það að mega tapa með einu marki en
vildu þó klárlega klára Chelsea með
stæl.
Eiður inn á
Leikmönnum Chelsea gekk lítið
betur að sækja í upphafi síðari hálf-
leiks og gátu þeir lítið annað gert
en að senda háa bolta fram á
völlinn og vona það besta.
Samuel Eto’o átti gott skot að
marki Chelsea á 59. mínútu en
Petr Cech varði vel. Á
mínútu komu þeir Hernan
Crespo og Eiður Smári inn á
fyrir þá Drogba og Duff og
var það því þeirra Mutverk
að snúa þessum erfiða
leik Englandsmeistur
unum í hag. Crespo
var ekki lengi að láta
að sér kveða og var
klaufi að stýra boltan-
um ekki í markið eftir
góða fyrirgjöf Joe
Cole.
Töfrataktar Ron-
aldinho
En það skiptir litlu
máli hver andstæðingur-
inn er þegar Ronaldinho
nær sínu besta fram. Það
gerði hann á 78. mínútu
þegar hann prjónaði sig í
gegnum þrjá vamarmenn
Chelsea og skilaði boltanum í markið
með föstu skoti. Þar með var sigurinn
tryggður enda ógerlegt að skora tvö
mörk gegn Börsungum á tíu mínút-
um, sérstaklega á troðfullum Nou
Camp.
Frank Lampard tókst reyndar að
jafna metin á lokamínútu leiksins eftir
að Markus Merk, annars góður
dómari leiksins, ákvað að gefa
Englandsmeisturunum víti í
sárabætur. En nær komust þeir ekki
og var leikurinn flautaður af fljótlega
eftir að miðjan var tekin.
eirikurst<s>dv.is
Úrslitin í gær
arcelona-Chelsea 1-1
llarreal-Ranaers 1-1
uventus-Bremen 2-1
Jíiventus kornst éfrerr■
velli, 4-4.
c mörkum skoruSum í úti-