Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2006, Qupperneq 27
PV Helgarblað
Reyndi fyrir sér í hinum
stóra heimi
Árið 1995 keppti Hrafnhildur í
Ungfrú Reykjavík eftir að aðstand-
endur keppninnar höfðu leitað til
hennar tvívegis. Það árið ákvað hún
að slá til og endaði í 2. sæti. í stóru
keppninni, Ungfrú ísland, kom
Hrafnhildur hins vegar, sá og sigr-
aði, og nældi sér einnig í titlana ljós-
myndafyrirsætan og O’Neal-stelpan.
Síðarnefndi títillinn tryggði henni
fýrirsætustörf fyrir íþróttamerkið í
Bandaríkjunum þar sem hún tók þátt
í auglýsingaherferð í nokkrar vikur.
Eftír dvölina í Ameríku ákvað hún að
skella sér til Grikklands og reyna fyrir
sér sem fyrirsæta þar í landi sem hún
og gerði í stuttan tíma.
Vönduð, glaðleg og eldklár
Hrafnhildur var kjörin fegurð-
ardrottning íslands á Hótel fslandi
þann 24. maí 1995. í 2. sætí var
Sigríður Ósk Kristínsdóttír, ungfrú
Norðurland, og því 3. Brynja Björk
Harðardóttír, ungffú Suðurland, sem
einnig var valin vinsælasta stúlkan.
Þrátt fyrir að hafa ekki verið fram-
kvæmdastjóri keppninnar Ungfrú
ísland á þessum tíma þekkir Elín
Gestsdóttír tíl Hrafnhildar og ber
henni góða söguna. Elín hefur leit-
að til Hrafnhildar tvívegis til að sitja
í dómnefnd, í keppninni Ungfrú ís-
land og Herra ísland árið 2003 þegar
þau Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
og Garðar Gunnlaugsson hirtu hina
eftirsóttu titla. Hrafnhildur mun
einnig sitja í dómnefndinni á þessu
ári, nú síðar í mánuðinum.
„Það er vandasamt starf að vera
dómari og ég myndi ekki leita ítrekað
í sömu manneskjuna nema hún hefði
klárað það starf vel,“ segir Elín Gests-
dóttír, framkvæmdastjóri keppninn-
ar, um HrafnhUdi og heldur áfram:
„Það sem ég þekki af Hrafnhildi er að
hún er ein ljúfasta manneskja sem ég
þekki. Hún er jákvæð, glaðleg, vönd-
uð og eldklár stelpa og ég hef ekk-
ert nema gott um hana að segja. Það
skiptír ekki máli hvað hún tekur sér
fyrir hendur, hún klárar það vel og
fer eigin leiðir að sínum markmiðum
enda er hún óhrædd við að takast á
við hlutína," segir Eh'n.
Suðræn og seiðandi
Þegar HrafnhUdur var kjörin feg-
urðardrottning íslands var hún 19
ára, laus og liðug. Vinkonumar og
fjölskylda mættu á keppnina henni tíl
stuðnings og segja vinkonurnar mik-
ið fjör hafa verið kvöldið sem hún var
krýnd. „Við vorum vissar um að hún
myndi sigra, með þetta dökka, suð-
ræna útlit, hún var alveg glæsUeg,"
rifjar ein þeirra upp. Síðar sama ár
nældi Hrafnhildur sér í kærasta, eng-
an annan en knattspyrnustjörnuna
Arnar Gunnlaugsson, annan tvíbur-
anna ffá Akranesi. Samband þeirra
gekk í nokkum tíma og parið endaði
oft á síðum slúðurtímaritanna enda
eitt glæsilegasta par landsins.
Konur eru konum verstar
Vinkonum hennar segja að Hrafn-
hUdur hafi aUtaf verið hress og opin
manneskja sem eigi auðvelt með að
vera hrókur aUs fagnaðar hvar sem
hún kemur. En með þetta útlit og eft-
ir sigrana í fegurðarsamkeppninni
leið ekki á löngu áður en Gróa á Leití
lét heyra í sér. „Svona er einfaldlega
ísland, það má engum ganga vel án
þess að Ula sé um hann talað," seg-
ir ein vinkona Hrafnhildar og bætir
við að hún og fleiri vinkonur henn-
ar hafi oft þurft að taka upp hansk-
ann eftír ósanngjarna umræðu um
HrafnhUdi.
Vinkonur hennar og aðrir þeir
sem tíl hennar þekkja segja títílinn
ekki hafa breytt henni mikið, þótt
vissulega hafi álagið á stundum verið
mikið. „Fólk dæmir hana oft án þess
að vita hvernig manneskju hún hefur
að geyma en sem betur fer nær hún
öUum á sitt band um leið og fólk talar
við hana. Það var mikið um öfund og
umtal árið sem hún sigraði í keppn-
inni og ég held að það hafi ekki aUt-
af verið auðvelt fyrir hana, eins og
aðrar fegurðardrottningar þekkja ef-
laust.” Önnur vinkona hennar tek-
ur í sama streng og segir að kon-
ur geti verið ótrúlega grimmar hver
við aðra. Um tíma var álagið orðið of
mUdð en Hrafnhildur tók sig saman í
andlitinu og hélt sínu striki.
Fallegar stelpur fá stimpil
„Við vorum að vinna saman í
versluninni Sautján og smullum
strax saman," segir Birta Björnsdótt-
ir, vinkona HrahihUdar tU margra
ára. Birta segir Hrafnhildi alltaf hafa
verið glæsUega og að hún sé frá-
bær vinkona. „Við gátum strax trúað
hvor annarri fyrir okkar leyndarmál-
um og urðum strax mjög góðar vin-
konur. Það er hægt að treysta henni
fyrir öllu," segir Birta. Aðspurð seg-
ir hún Hrafnhildi hafa verið mikla
geUu á þeim tíma sem þær hafi ver-
ið að kynnast enda hafði hún ný-
lega unnið títílinn sem fegursta kona
landsins. „Svona faUegar stelpur eru
náttúrulega stimplaðar og þurfa því
að sanna sig. Strax og maður kynn-
ist Hrafnhildi kemur hins vegar í ljós
hvað hún er yndisleg enda er hún ein
af mínum bestu vinkonum."
Heimsvön og sprenglærð
Eftír Verzlunarskólann starfaði
HrafnhUdur sem flugfreyja hjá fyrir-
tækinu Atlanta, eða frá árinu 1998
til 2000. Eftír þá lífsreynslu ákvað
hún að skeUa sér út í nám og fyr-
ir valinu varð tveggja ára diplóma-
nám í markaðs- og auglýsingaffæð-
um í Kuala Lumpur í Malasíu. Þar
sem námið var alþjóðlegt gat hún
haldið áfram annars staðar og næst
lá leiðin tU Auckland á Nýja-Sjálandi
þar sem hún kláraði BA-gráðu í al-
mannatengslum, eða Public relat-
ions. HrafnhUdur er því bæði heims-
vön og sprenglærð enda hefur nám
aUtaf legið auðveldlega fyrir henni.
Módelbransinn var ævintýri
HrafnhUdur kemur úr góðri fjöl-
skyldu sem er afar samhent og náin.
Hún og mamma hennar, sem er
að sögn þeirra sem til þekkja álíka
myndarleg og dóttirin, eru frekar
eins og vinkonur en mæðgur. Hrafn-
hUdur er elst af þremur systkinum en
hún á bæði yngri systur og bróður.
Þeir sem tíl Hrafnhildar þekkja
segja hana aUtaf hafa verið sjálf-
stæða og aUtaf kunnað að bjarga
sér. Hún hafi skeUt sér út í fyrirsætu-
bransann ein og óstudd, sem sé eitt-
hvað sem fæstir leika eftir svona
ungir. Hrafnhildur leit samt alltaf á
fyrirsætubransann sem ævintýri og
hafði ávallt metnað tU að láta eitt-
hvað meira úr sér verða. „Hún hafði
gaman af þessu en bransinn var
aldrei í fyrsta sætí hjá henni. Mennt-
unin hefur alltaf skipt hana máli og
hún ætlaði sér aUtaf að komast áfram
í lífinu með því að mennta sig," segir
æskuvinkona hennar.
Kærasta Bubba Morthens
Eins og lesendur blaðanna Hér &
nú og Séð og heyrt hafa ef tíl viU rekið
augun í er HrafnhUdur kærasta hins
þjóðþekkta tónlistarmanns Bubba
Morthens. MikiU aldursmunur er á
parinu en að sögn vinkvenna Hrafn-
hildar hefur hún aUtaf verið gömul
og þroskuð sál sem hafi róandi og
þægilega nærveru auk þess sem ást-
in spyr ekki um aldur. Fólkið henn-
ar hefur gefið henni frið tíl að skoða
hug sinn og gefið parinu tíma tíl að
kynnast friði. Ingibjörgu, æskuvin-
konu Hrafnhildar, líst vel á ráðahag-
inn enda treystir hún vinkonu sinni
tíí að taka eigin ákvarðanir.
HrafnhUdur á eina dóttur, ísabeUu
Ósk, sem er rúmlega eins árs. Hún og
barnsfaðir hennar voru nýlega byrjuð
saman þegar HrafnhUdur varð ófrísk
en samband þeirra entíst ekki. Dótt-
irin þykir sláandi lík mömmu sinni
nema hvað hún er ljóshærð með blá
augu. Móðurhlutverkið er það verk-
eftii sem Hrafnhildur hefur tekið
hvað alvarlegast á lífsleiðinni og að
sögn vinkvenna hennar er hún afar
góð mamma. Hún og Birta Björns-
dóttír urðu óffískar á svipuðum tíma
og eyddu því stórum hluta af barn-
eignarleyfinu saman. „Hún var rosa-
lega flott þegar hún var ófrísk," segir
Birta og bætír við að HrafnhUdur sé
yndisleg móðir sem myndi gera aUt
fyrir dóttur sína.
Geislar af hamingju
Eftir námið útí kom Hrafnhildur
heim og starfaði um tíma hjá vinkonu
sinni í versluninni Oasis. Ekki leið þó
á löngu þar til henni var boðið starf
hjá Námsgagnastofnun þar sem hún
hefur verið síðan. Þeir sem þekkja til
Hrafnhildar segja greinilegt að hún
Fegurðardrottning Hrafnhildurvar 19ára
Reykjavíkurmær þegar hún var kjörin
fegurðardrottning Islands árið 1995.
Fyrirsætan Hrafnhildur reyndi fyrir sérsem
fyrirsæta úti i hinum stóra heimi með
ágætum árangri.
Suðræn og seiðandi VinkonurHrafnhildar
segja strákana hafa slegist um hana. Hún var
hins vegará föstu meðsama stráknum frá 15
til 18 ára aldurs.
Nýorðin þrítug Hrafnhildur er án efa ein
glæsilegasta kona landsins og hefur núnáð
sér I þekktasta tónlistarmann landsins.
Arnar Gunnlaugsson Stuttu eftirað
Hrafnhildur varkosin fegurðardrottning
Islands byrjaði húnmeð knattspyrnumannin-
um Arnari Gunnlaugssyni.
sé afar hamingjusöm í dag og að hún
hreinlega geisli af hamingju.
„HrafnhUdur hefur alltaf verið
glæsileg og haft mikla útgeislun en í
dag glóir hún og því augljóst að hún
er mjög hamingjusöm," segir einn
viðmælenda blaðsins um vinkonu
sína.
indiana@dv.is
VILTU SKJOL A
VERÖNDINA?
www.markisur.cöm
t iarfesti#e
Dalbraut 3,105 Reykjavik • Nánari uppiýsingar í sima
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
I JI®. I
f P * JW
11» í
íir..:- , ..
! 1 4Ié F m Mif/i aL
’rí' -í V* i ** flff
Góð með kjúklingi, svínakjöti, reyktum laxi, graflaxi, sem
salatsósa og í kalt pastasalat hverskonar.
VOGABÆR
Frábær köld með kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna.
Góð á saltkexið með rifsberjahlaupi og sem ’dýfa.