Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2006, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2006, Qupperneq 28
28 LAUCARDACUR 6. MAÍ2006 Helgarblaö DV Bónorð á leiðinni? Vilhjálmur Bretaprins flaug á dög- unum til Karíbaeyjarinnar Must- ique en hann er talinn ætla að biðja um hönd Kate Middleton. Hinn ungi prins flaug til eyjarinnar í síðsutu viku og Kate rétt á eftir hon- um. Vinir parsins segja að þau ætli fljótlega að flytja saman í íbúð í London. „Þetta er í fyrsta skiptið í langan tíma sem þau eru ein og Kate heldur í von- ina um bónorð. Hún er tilbúin og hefur hugsað mikið um framtíðina upp á síðkastið," sagði vinur þeirra. Ekki fleiri hjónaskilnaði Samkvæmt heimildum frá bresku hirðinni hefur EUsabet drottning lýst þvíyfirað ekki verði fleiri hjóna- skilnaðir heimilaðir innan konungs- fjölskyldunnar. „Hún hefur látiö fjöl- skylduna vita að hún muni ekki leggja blessun sína yfir fleiri skiln- aði. Ekki svo lengi sem hún riki yfir landinu," sagði ónefndur heimildar- maður The Sun. „Drottningin vill ekki hnýsast í einkalíf fjölskyldu- meðlima sinna en hefur gert þeim grein fyrir að þeir verði að vera vissir áður en gengið er íþað heilaga." Maryá rokktónleikum Mary krónprinsessa Danmerkur skellti sér á rokktónleika um síðustu helgi. Prinsessan vinsæla sem er34 ára lét sig ekki vanta þegar hljóm- sveitin Red Hot Chili Peppers heim- ^sótti Danmörku. iPrinsessan mætti í fallegum bleikum kínabol úrsatíni viðblá- argallabuxurá tónleikana og skemmti sér vel að sögn við- staddra. I síð- ustu viku hafði Maryopnað nýja heilsulind I Odense ásamt eiginmanni sín- um Friðriki krónprins. Sonja drottn- ing Afargiæsi- leglþessumfal- „ lega hvíta og v brúnakjól. Fjórar stjörnur að mati flestra. Prinsar og prinsessur Evrópu söfnuðust saman í Stokkhólmi yfir helgina til að heiðra Karl Gústaf en sænski konungurinn hélt upp á sex- tugsafmæli sitt. Á meðal gesta voru fulltrúar konungsfjölskyldnanna í Mónakó, Noregi, Danmörku, Þýska- landi og Spáni auk fulltrúa frá sænska þinginu. Athygli vakti að breska konungsfjölskyldan var hvergi sjáanlég og hafa sænsku fjöl- miðlarnir farið hamförum í að lýsa snobbinu í Windsor-fólkinu. Elísa- bet Englandsdrottning hefur þó hingað til ekki verið þekkt fyrir að sækja veislur annarra en nánustu fjölskyldumeðlima og gerði enga breytingu þar á þrátt fyrir stóraf- mæli sænska kóngsins. Karl Gústaf eyddi laugardeginum við að opna afmælisgjafirnar og fékk meðal annars málverk, staðsetning- artæki og heimatilbúnar ostakökur sem almenningur skildi eftir fýrir utan höllina en þúsundir aðdáenda höfðu safnast saman til að heiðra konunginn. Mary krónprinsessa mætti í veisl- una fyrir hönd Danmerkur ásamt Henrik tengdapabba sínum en Mar- grét drottning varð að afþakka boðið vegna kvefs. Friðrik krónprins komst heldur ekki þar sem hann var vant við látinn við siglingar á ftalíu. Ólafur Ragnar Grímsson forseti ísiands lét sig ekki vanta í veisluna og voru hann og Dorrit Moussaieff glæsileg að vanda. Dorrit klæddist grænum kjól og grænum skóm í stfl, hafði feld um hálsinn og fallega græna hálsfesti og var því jafn glæsi- leg og flottustu prinsessurnar. Dætur Karls Gústafs, Viktoría krónprinsessa og Madeleine, mættu að sjálfsögðu með bros á vör enda fengu kærastarnir, Jonas Bergstrom og Daniel Westling, að fljóta með í þetta skiptið. m m 7 - * % Tengdabörn Jonas Berg- strom, kærasti Madeleine prinsessu, og kærasta Karls Philips, Emma Pernald, mættu saman í veisluna. Afmælisbarnfð Karl Gústaf fékk fjöldann allan afgjöfum og kortum frú almenningi. Sonja í fallegasta kjó Mette-Marit, krónprinsessa Noregs, hefur heldur betur fengið slæma útreið í sænsku fjölmiðlun- um vegna kjólavalsins í sextugsaf- mæii Karls Gústafs Svíakonungs. Sænsku tískulöggurnar segja prinsessuna hafa orðið sér til skammar með kjólnum en Mette- Marit mætti í veisluna í grænum og svörtum kjól með gult belti og í gulum skóm í stíl. Tískusérfræð- ingar í sænsku fjölmiðlunum hafa keppst um að dæma kjóla hinna háttsettu gesta og flestir setja fatn- að Mette-Marit í neðsta sæti. í sænska dagblaðinu Expressen fékk kjóll prinsessunnar til dæmis að- eins eina stjörnu af fimm möguleg- um en enginn annar gestanna var dæmdur svo harkaiega. „Kjóllinn er svo víður að Mette-Marit lítur út eins og kraftajötunn og hvað er málið með þetta gula veski?" sagði ein tískulöggan og bætti við að prinsessan gæti lært ýmislegt um föt og tísku af Mary krónprinsessu Dana. Sú sem skaraði fram úr í klæðaburði í veislunni er án efa Sonja drottning, tengdamóðir Mette-Marit. Flestir tískusérfræð- ingarnir gáfu Sonju fjórar stjörnur fyrir glæsilega kjólinn hennar. Glæsileg ÓiafurRagnar og Dorrit voru glæsileg oð vanda i veislu konungsins. I Mette-Marit Krónprinsessan hefur verið þekkt fyrir sérstakan stll sem ó sjaldnast upp ó pall- Karl Gústaf Svíakonungur hélt mikla veislu um síöustu helgi í tilefni sextugsaf- mælis síns. Gestirnir voru í fínni kantinum en í veislunni voru fulltrúar flestra konungsfjölskyldna Evrópu. Athygli vakti aö enginn úr bresku konungsQölskyld- unni mætti þrátt fyrir að vera á gestalista. Forseti íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff mættu fyrir hönd íslands. Dorrit var jafn glæsileg og fínustu prinsessurnar. Karl Gústaf sextugur $ Í DV-mynd Nordic Photos Getty Images

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.