Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2006, Blaðsíða 30
38 LAUGARDAGUR 6. MAÍ2006
Helgarblað DV
Með fjölgun sjónvarpsstöðva og auknum metnaði
1 islenskri dagskrárgerð verða til ^ein þekkt
andlit á skjánum. Mikið af þessu hæfileikarika
siónvarpsfólki er i yngri kantmum og a pvi
framtíðina fyrir sér í fjölmiðlum. Helgarblaðið
spjallaði við nýjustu sjónvarpsstjörnur landsins.
Ætlaði aldrei að
fíflast að atvinnu
„Ég lagði aldrei upp með að fá að fíflast í sjón-
varpinu í vinnunni en þetta tækifæri kom til mín
og ég gat ekki hafhað því,“ segir Atli Þór Albertsson,
annar nýrra liðsmanna í Strákunum sem sýndir eru
á Stöð 2, en hinn nýi liðsmaðurinn er Gunnar Sig-
urðsson. Atli segir æðislega gaman í vinnunni og að
hann sé ánægður að hafa slegið til. „Ég veit samt ekkert
hvort þetta verði ævistarf mitt. Mig langar líka að
leika á sviði enda er ég menntaður sem leik-
ari. Það kom mér samt á óvart hvað sjón-
varpsvinnan er skemmtileg og ég get al-
veg hugsáð mér að starfa við þennan
miðil áfram,“ segir hann og bætir við að
hann og Gunni hafi strax komist inn í
hóp Sveppa, Audda og Péturs. „Ætli við
séum ekki jafn ruglaðir og þeir."
Ekki einu sinni
hálfnaðar
hafa viðtökurnar venoiw
bærar," segir Ellen Lofts-
I dóttir, sem stjórnar þættm-
um Bak við böndin ásamt
' Ernu vinkonu sinni. „Það er
1 svo gaman að vinna við
áhugamálið sitt og að hafa
i séð hugmyndina okkar
verða að veruleika, segir
' Ellen en þær Ema hafa verið
i plötusnúðar saman siðustu
| tvö árin. Þær vinkonur hafa
I aldrei áður komið að dag-
skrárgerð en vona að þær
eigi eftir að sjást meira á
skjánumíframtíðinm.„Það
1 em aðeins þrír þættir eftir
en við ætlum okkur að gera
fleiri. Þaðersvo mikið að
eerast í íslensku tónlistarlih
i ogviðemmekkieinusmm
1 hálfnaðar."
Innslög fyrir konur
Vinkonumar Linda Pétursdóttir og Kristín Stefáns-
dóttir sjá um innslögin Tvær í þættinum 6 til sjö sem
sýndur er á Skjá einum. Innslögin em í beinni útsend-
ingu og þær vinkonurnar standa sig með prýði. Linda er
þaulvön að birtast í sjónvarpi en hún er að vísu vanari
að sitja fyrir svömm en stjórna og spyrja aðra. Innslög
Lindu og Kristínar fjallar um allt milli himins og jarðar
en em þó kannski frekar fyrir kvenþjóðina.
Veðurf réttir eru ekkert grín
„Draumurinn var alltaf að verða kennari," segir Sigríður
Ólafsdóttir, nýr veðurfréttamaður á NFS. Sigríður kláraði
jarð- og landfræði og meistaranám í umhverfisfræðum frá
Háskóla íslands og líkar vel að vera í sjónvarpinu. „Þetta er
náttúrlega dálítið stress og sérstaklega fyrst en maður skól-
ast til með tímanum," segir hún og bætir við að hún hafi
alltaf stefnt á að miðla upplýsingum. „Mig
langaði alltaf mest að kenna þessi
fræði í mennta- eða háskóla, það
var draumastarfið og ég sný mér
kannski að því þegar ég verð
eldri." Sigríður segir starfið
skemmtilegt en krefjandi. „í byrj-
un var mjög margt að læra og ég
varð fyrir ákveðnum byrjunarörð-
' ugleikum. Þetta snýst
nefnilega ekki bara um að
standa og þylja upp roms-
urnar heldur verðum við að
muna spána næstu fimm daga fram í tímann án
þess að hafa einhvern texta í höndunum. Þetta er
neftiilega ekki grín og hvað þá að reyna að brosa
og vera léttur á því í leiðinni," segir Sigríður hress
í bragði. „Þetta er samt mjög skemmtilegt starf og
hefur þróast í gegnum tíðina. í dag fjallar veður-
spáin um meira en tölur og vindátt því við reyn-
um að krydda þetta með fróðleik. Fyrir 50 árum
hlustaði fólk á veðurfréttir til að vita hvernig yrði
með vinnu á sjó eða grassprettu en í dag snýst
þetta aðallega um afþreyingu og hvort við
komumst út að hlaupa eða hvort við ættum að
drífa okkur austur í sumarbústaðinn eða bruna
vestur í staðinn."
Konur mæta víst í viðtöl
„Þetta er búið að vera rosalega skemmtilegt enda hef
ég verið ofsalega heppin með viðmælendur. Mér hefur
tekist að draga inn fólk sem margt hefur aldrei komið í
sjónvarp áður," segir Halla Gunnarsdóttir, sem sér um þátt
inn Þetta fólk á NFS kl. 11 á sunnudögum. „Viðmæl-
endurnir hafa staðið sig alveg ótrúlega vel og að mínu
mati hefur mér tekist að afsanna þá kenningu að
konur vilji ekki koma í sjónvarp. Mér finnst mjög
að starfa að þessum þætti enda er þetta
sem stendur mér næst," segir hún en í
þætti tekur hún fýrir ákveðið land og|
til sín viðmælendur sem þekkja menn-
ingu þess.
Gæti ekki komist af án þess að vita hvað er í gangi
„Ég byrjaði í sjónvarpsfféttum í haust en hafði þar á undan verið í útvarpinu," segir Guðfinnur Sigurvinsson, frétta-
maður á fréttastofu Sjónvarpsins. Guðfinnur segir ekkert endilega skemmtilegra í sjónvarpinu en útvarpinu. „Þetta er
svo ólíkt að það er eiginlega ekki hægt að bera það saman, ekkert frekar en epli og appelsínur, en ég kann vel við mig í
hvoru tveggja." Guðfinnur hafði þreytt fréttapróf Ríkisútvarpsins fyrir nokkrum árum og ákvað í fyrra að sækja um.
„Það gekk eftir og ég byrjaði á kvöldvöktum en svo vann maður sig upp." Hann segir ekki hafa verið erfitt að vera fyrir
framan myndavélina til að byrja með. „Ég hafði reyndar smá reynslu þar sem ég hafði verið með innslög í íslandi f bít-
íð á Stöð 2 og sú reynsla nýttist mér vel svo ég var ekkert feiminn við myndavélarnar," segir hann en vill ekki taka und-
ir að hann sé fréttafíkill. „Ég held að ég sé nú ekki fíkill en er þó frekar þjóðfélagslega sinnaður og reyni að mynda mér
skoðanir á flestum hlutum. Eins gæti ég ekki komist af í marga daga án þess að vita hvað væri í gangi í heiminum."
Skemmtilegasta vinnaíheimi
„Ég byrjaði fyrir ári," segir María Sigrún Hilmarsdóttir, frétta-
kona á RÚV. „Ég var í mastersnámi í fféttamennsku þegar ég fór í
fréttaprófið og var síðan kölluð í viðtal til Elínar
Hirst sem svo réði mig til starfa," segir Mcir-
ía. „Mér líkar alveg rosalega vel og held að
þetta sé skemmtilegasta vinna sem til er í
heiminum. Mér finnst eiginlega forrétt-
indi að fá að hitta alla þessa viðmæl-
endur og fjalla um það sem er efst á
baugi hverju sinni," segir hún og
bætir við að hún geti ekki ímyndað
sér að það sé nokkuð skemmtilegra.
„Þetta er nokkuð sem mig hefur
alltaf langað að gera enda hef ég
alltaf verið fréttafíkill og enn meira
síðan ég fór að vinna í þessu."
Man'a segir að það hafi verið
erfitt að vera fyrir framan
myndavélina í fyrstu en að
hún sé öll að koma til. „Mér
fannst þetta mjög erfitt f
fyrstu og er með talsverða
linsufælni en ég er að
reyna að vinna bug á
henni."
Þáttur fyrir fólk fætt upp úr 70
Þátturinn er fyrst og fremst fyrir ungt fólk," segir Halldór Hall-
dórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, en hann og þrír strákar úr
Rottweiler-hundunum, þeir Ágúst Bent, Þorsteinn Lár og Lúlli Palh,
sjá um þáttinn Tívolí sem sýndur er á þriðjudögum á Sirkus. „Eg
held samt að flestir geti haft gaman af þessu, eða svo lengi sem fólk
er fætt upp úr 1970," segir Dóri sem sér um dagskrárliðinn Hverfið
mitt þar sem farið er með þekkta einstaklinga á þeirra heimaslóðir.
„Ég fæ fólkið til að segja mér sögur úr hverfinu og sýna mér hvar það
ólst upp. Bent sér hins vegar um bardagatengdan dagskrárlið þar
sem hann kíkir á æfingar hjá bardagaíþróttafólki, talar við boxara og
stráka sem eru að meika í það útlöndum og kennir stelpum, sem
vilja verja sig fyrir strákum sem vilja spila við þær Friendsspilið og
drekka með þeim hvítvín, sjálfsvöm," segir Dóri og bætir við að þeir
reyni að vera ofsalega flippaðir og fyndnir í þættinum.