Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2006, Side 32
40 LAUGARDAGUR 6. APRlL 2006
Helgarblað DV
-E
CMANEL
Guerlain-sólarpúður
„Ég hef notað þetta púður
síðan ég var 15 ára
og ætla mér
ekki að
skipta."
Helena
Ruben-
stein-krem
„Þetta krem
hefur svipuð
áhrif og litað
dagkrem. Ég
nota það á
hverjum degi
nema þegar ég
vakna verulega
seint."
Yves Saint
Laurent-
maskari
„Þegar ég var
yngri gat ég ekki
einu sinni farið
út með ruslið án
þess að vera með
maskara en ég er nú
öll að koma tii og
finnst bara töff að
geta verið ómáluð."
Kanebo-kinna-
litur
„Ég nota
hann
þegar
ég fer
út að borða
eða um helgar.
Reyni að hafa hann svona
spari."
Chanel-ilmvatn
„Þetta ilmvatn
heitir Chance og
er frá Chanel.
Glasið er nú
næstum
tómt svo
ég verð að
fara að
endur-
nýja."
Kristín Kristjánsdóttir hannar föt undir merkinu Ryk. „Ég er á öðru ári í Iðn-
skólanum i Reykjavík á fataiðnabraut og er í prófum núna," segir Kristín
sem er bæði i bóklegum og verklegum prófum. Hún er 23 ára og býr í
Reykjavfk á sumrin en Akureyri á veturna. „Ég byrjaði að sauma þegar ég
var fimm ára en fór ekki að ganga i fötunum fyrr en ég var 13 ára," segir
Kristfn sem á ekki kærasta en heldur úti bloggsíðunni blog.central.is/ryk-
design þar sem hægt er að skoða hönnun hennar.
með HJ-ILBRIpiÐUM
LIFSSTIL
Athafnakonan
Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur stendur,
ásamt fleirum, fyrir Megrunarlausa deginum í dag. Sigrún
hefur starfað að átröskunarmálum og segir að megrun sé
alltaf megrun, sama hvernig á málið sé litið. Sigrún segir
stóran hluta íslendinga hafa verið í megrun hálfa ævi en að
árangurinn sé enginn.
„Við viljum benda á með þessum
degi að megrun getur verið fyrsta
skrefið að átröskun. Það veit enginn
fyrir fram hvort hann missir tökin
eða ekki. Megrun er áhættuhegðun
sem við eigum ekki að líta á sem sak-
laust athæfi," segir Sigrún Daniels-
dóttir verkefnisstjóri Megrunarlausa
dagsins sem haldinn er víða um
heim í dag. Sigrún er sálfræðingur og
starfar meðal annars að átröskunar-
málum. Hún kynntist þessum degi í
gegnum alþjóðleg fagsamtök um
átraskanir og hafði lengi gengið með
hugmyndina að koma svipuðu verk-
efni af stað hér á landi. Að verkefhinu
standa einnig Guðrún Beta Mána-
dóttir, ráðskona staðalímyndahóps
Femínistafélagsins, Alma Dögg Geir-
dal og Edda Ýr Einarsdóttir stofn-
endur Forma, félags átröskunarsjúk-
linga á íslandi auk fleiri aðila. Dag-
skrá í tilefni dagsins fer fram í öskju,
náttúrufræðihúsi Háskóla íslands,
þar sem allir eru velkomnir.
í megrun hálfa ævina
„Dagurinn snýst fyrst og ffemst
um að fá fólk til að elska líkama sinn
eins og hann er og fagna fjölbreyti-
leikanum. Við viljum vekja athygli á
að við getum öll stefnt að heilbrigði
og hamingju í þeim líkama sem við
höfum," segir Sigrún þegar hún er
beðin um að lýsa verkefninu. Sigrún
segir að samkvæmt rannsóknum
skipti ekki máli hvort krakkar noti
heilbrigðar eða óheilbrigðar aðferðir
til að grenna sig, megrun sé alltaf
megrun og geti haft neikvæð áhrif.
„Margir tala einungis um megrun
þegar um ofsalega stranga megrun
er að ræða en í rauninni er öll fæðu-
takmörkun í þeim tilgangi að grenn-
ast megrun. Það er ekki til nein að-
ferð sem er algjörlega hættulaus,"
„Það ermiklu
skemmtilegra að
synda góðan sund-
sprett með líkamann
fullan aforku vitandi
afgóðum hádegismat
en að hamast orkulaus
á hlaupabretti og eiga
ekki von á neinu nema
skyrdrykk á eftir."
segir hún og bætir við að fjöldi fólks
hafi verið í megrun hálfa sína ævi.
„Vesturlandabúar hafa verið í megr-
un alla síðustu öld en árangurinn er
lfkt og hjá einstaklingnum, enginn.
Við erum í hringekju og það er kom-
inn tími til að við spyrjum okkur
hvar þetta endar og horfa gagnrýnni
augum á þetta ferli. Við förum í
megrun, léttumst, fitnum aftur og
verðum óánægð. Er þetta eitthvað
sniðugt ef útkoman er alltaf sú
sama? Hvernig værum við ef við
hefðum aldrei farið í megrun? Mjög
líklega í svipuðum sporum en hefð-
um samt sparað okkur bæði pening
og leiðindi."
Orkulaus á hlaupabretti og
skyrdrykkur á eftir
Sigrún segir að ef við hugsum um
okkur af umhyggju og virðingu, líkt
og við myndum hugsa um góða vin-
konu eða bamið okkar, myndum við
annast líkama okkar á heilbrigðari
hátt. „Það eru til margar rannsóknir
sem sýna að fólk getur bætt heilsu
sína til muna með því að hreyfa sig
reglulega og borða hollan mat þrátt
fyrir að grennast ekki. Þetta tvennt
þarf ekki að fara saman. Við ættum
mun frekar að hugsa um að bæta
heilsuna en að grennast því það
markmið skemmir bara fyrir og leið-
ir til þess að við gefumst upp. Það er
miklu skemmtilegra að synda góðan
sundsprett með líkamann fufian af
orku vitandi af góðum hádegismat
en að hamast orkulaus á hlaupa-
bretti og eiga ekki von á neinu nema
skyrdrykk á eftir."
Allir eiga rétt á sér
Sigrún viðurkennir að Megrunar-
lausi dagurinn sé á skjön við það
sem flestir prediki í dag. „Það er allt í
lagi að einhver tali um eitthvað ann-
að en hvað offita er mikið vandamál.
Ég held að það væri hægt að koma í
veg fyrir mörg vandamál nútímans
ef okkur væri innrætt frá blautu
barnsbeini að þykja vænt um líkama
okkar og hugsa vel um hann, hvern-
ig sem hann er," segir hún og bætir
við að útlitsdýrkunin í samfélaginu
sé mjög mikil. „Við verðum hins veg-
ar að byrja einhvers staðar og því
ekki hjá sjálfum sér og sínum nán-
ustu? Það eiga allir rétt á sér, sama
hvernig þeir eru í laginu og það er
ósanngjamt að benda einum hóp á
að hann sé ómögulegur. Fólk virðist
ekki þurfa að vera mjög feitt til að
finna fyrir neikvæðum straumum og
það á sér í lagi við um stelpur og
konur."
Dagskráin í öskju hefst klukkan
13 í dag og em allir velkomnir en
það er ókeypis aðgangur. „Við stefn-
um á að halda þennan dag hátíðleg-
an ár hvert og ef einhver vill slást í
hópinn er hann hjartanlega velkom-
inn."
indiana@dv.is