Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2006, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2006, Síða 35
DV Fréttir LAUGARDAGUR 6. MAl2006 43 #2 Hinn fullkomni glæpur Númer tvö á listanum er flótti sem ekki hefur oft verið sagt frá í fjölmiðlum en er þó fyrir löngu orðinn goðsagnakenndur á meðal fanga á Litla- Hrauni. Flóttinn átti sér stað á sjöunda áratugnum og hefði að öllum lfkindum verið hinn fulikomni glæpur, ef ekki hefði verið fyrir málglaðan fanga sem kom upp um félaga sinn. Á meðal fangavarða á Litla-Hrauni er sag- an sögð á þann veg að góðkunningi lögreglunn- ar ákvað í félagi við nokkra samfanga sína að gott væri að eiga sér varasjóð sem biði þeirra þegar þeir losnuðu úr betrunarvistinni á Hrauninu. Það var því afráðið að kippa því í liðinn og snilldaráætlun var kokkuð upp í snatri. Rændi Buick oddvitans Upp úr miðnætti eitt haustkvöldið var áætl- unin sett í framkvæmd. Á þessum tíma var allt- af einn fangavörður á næturvakt. Nokkrir fang- ar áttu því auðvelt með að afvegaleiða hann með ýmsum verkefnum á meðan félagi þeirra laum- aði sér út Hann skokkaði áleiðis inn á Eyrarbakka í leit að farartæki og staðnæmdist ekki fyrr en hann hafði komið auga á fallegasta bílinn í bænum. Silf- urgrænan Buick sem var í eigu þáverandi oddvita Eyrarbakka, Vigfúsar Jónssonar. Með peningaskáp kaupfélagsins í skottinu Fangi þessi var vel skólaður í afbrotafræðunum og átti því ekki í miklum vandræðum með að kom- ast inn í bjúikkinn og ræsa hann. Því næst var ekið til Hveragerðis. Fangamir á Hrauninu voru á þess- um tímapunktí hættir að angra eina fangavörðirm á vakt og gat hann því hallað sér á beddann sinn án þess að verða var við að nokkur væri horfinn. Bjú- ikknum var því ekið í mestu makindum tíl Hvera- gerðis án þess að nokkur gerði athugasemdir. í Hveragerði var haldið beint að húsnæði kaup- félags bæjarins. Og á meðan bærinn svaf svefiii hinna réttlátu burðaðist fanginn með peninga- skáp kaupfélagsins í farangursgeymslu bjúikksins. Því næst var ekið aftur á Eyrarbakka. Fjársjóðurinn grafinn Þegar þangað var komið fann fanginn pen- ingaskápnum stað til þess að grafa hann í sandin- um og það var gert með þeim hættí að auðvelt væri að finna hann aftur hefðu menn réttar leiðbeining- ar. Og áður en morgunsólin kom upp, og dagvakt- in mætti á Litla-FIraun, var fanginn kominn aftur í ldefann sinn. Án þess að nokkur, nema nokkrir félagar á sama gangi, hefði áttað sig á því að hann hefði nokkum tímann horfið. Biðin eftir f relsinu óbærileg Daginn eftir uppgötvaðist innbrotið í Hvera- gerði. Það þótti stórt rán í þá daga enda sjóðir kaupfélaganna yfirleitt feitir. Greint var frá innbrot- inu í fjölmiðlum. Þar kom fram að lögreglan hafði Buick Blll oddvitans á Eyrarbakka vareittsinn notaður viðæsilegtinnbrot. engan grunaðan um ránið. Þó þóttí líklegt að söku- dólgurinn væri úr borginni. Fanginn, sem tryggt hafði sér og nokkrum fé- lögum sínum vænan eftirlaunasjóð, hugsaði sér gott til glóðarinnar. Biðin eftir frelsinu varð hins vegar enn óbærilegri en áður þegar menn fóm að ímynda sér hvað hægt væri að gera við alit það fé sem þeir vissu af gröfrtu fáeinum metrum fyrir utan girðinguna á Litla-Hrauni. Kjaftaskúmur kemur upp um allt En tétt um það bil sem lögreglan var orðin von- lítil um að finna nokkum tímann kaupfélagsræn- ingjann í Hveragerði gaf kjaftaskúmur sig fram við fangaverðina á Litla-Hrauni. Sá hafði krafist þess að fá hlutdeild í eftirlauna- Eyrarbakki Fanginn skimaði bæinn í leit að álitlegri flóttabifreið. Hveragerði I skjóii nætur braust strokufanginn inn I kaupféiag bæjarins og hafði á brott með sér stútfuiian peningaskáp. sjóðnum og hótaði að kjafta yrði honum neitað. Þegar það var gert lét hann verða af hótunum sín- um og kom upp um samfanga sína. Peningaskáp- urinn fannst skömmu síðar. Hann hafði aldrei ver- ið opnaður og var skilað til kaupfélagsstjórans í Hveragerði. Oddvitanum á Eyrarbakka var líka til- kynnt, honum til mikillar fúrðu, að bjúikkinn hans hefði verið notaður við innbrotíð í Hveragerði. Hann hafði þó aldrei hátt um aðkomu sína að mál- inu. Sólbaðsstofuneninginn sleppur Miðvikudaginn 28. júlí 1993 struku þrír fang- ar af Litla-Hrauni og héldu áleiðis til Reykjavík- ur. Flóttí þeirra vakti mikla athygli, enda þótti einn strokufanganna, Björgvin Þór Ríkharðsson, með hættulegri glæpamönnum landsins. Björgvin er í daglegu tali nefiidur sólbaðsstofú- ræninginn. Viðumefnið hlaut hann efttr óhuggu- legt rán sem hann framdi á sólbaðsstofu á Akur- eyri í nóvember 1992. Þar mddist hann inn með stærðar hníf sem hann lagði að hálsi afgreiðslu- stúlkunnar og hótaði lífláti afhenti hún ekki alla peningana. Ránið vaktí mikla athygli, ekká síst vegna um- fangsmMlar leitar lögreglu að Björgvini sem fannst tveimur dögum síðar á Hótel íslandi. Á meðan hann sat í varðhaldi hrönnuðust upp á hendur honum alvarlegar ásakanir um að hann hefði nauðgað þremur ungum konum á hrotta- fenginn hátt fyn: það sama ár. Björgvin hótaði konunum ítrekað og hélt þeim í heljargreipum löngu eftír að nauðganimar áttu sér stað. Það var því mikill óttí sem greip um sig þegar það spurð- ist að Björgvin hefði strokið úr prísundinni á Litla- Hrauni. Strokið olli skelfingu Ásamt Björgvini struku þeir Hörður Karls- son og Hans Emir Við- VX A < ^ ^ Björgvin Þór Ríkharðsson Þótti einn hættulegasti giæpamaður iandsins. Flúði Hraunið ásamt tveimur félögum. Fannst eftir að fjölmiðlar birtu afhonum mynd og nafn. arsson. Við flóttann notuðu þeir blað úr jámsög sem þeir höfðu stolið af verkstæði fangelsisins og söguðu í sundur rimla eins klefagluggans. Fyrir utan fangelsið beið þeirra svo flóttabíll, af gerð- inni Suzuki Fox, og bílstjóri sem keyrði með þremenning- ana til Reykjavíkur. Þeir Hörður og Hans Emir fund- ust innan við 24 tímum eftír að þeir flúðu fang- elsið, báðir undir miklum áhrifúm fíkniefna. En hvorki tangur né tetur fannst af manninum sem allir óttuðust. Fátt var um annað talað þann tíma sem Björg- vin var laus en hvar hann gætí verið niður kom- inn. Lögreglan fékk fjöldann allan af vísbending- um eftir að fjölmiðlar höfðu birt nafri hans og mynd og leiddu þær vísbendingar lögregluna á endanum á sporið. Til marks um móðursýk- ina, sem sumir segja að einkennt hafi þann tíma sem Björgvin gekklaus, bámst lög reglunni tilkynningar um að til Björg- vins hefði sést í Hvalfirði, á Akureyri, á Austfjörðum, í Breiðholtí og á Laugavegi á sama tfina. Á endanum var Björg- vin handtekinn í kjallaríbúð f Yrsufelli þar sem fyrrverandi ástkona hans hafði aðset- ur. Hann streittist ekki á mótí handtöku en sagð- ist hafa ætlað að skila sér sjálfur aftur á Hraunið eftír helgina. Margir önduðu léttar þegar tilkynnt var að sólbaðsstofuræninginn hefði náðsL í nóv- ember þyngdi Hæstiréttur svo tíu ára fangelsis- dóm hans í tólf ár. Fangelsisyfirvöld gagnrýnd Nokkuð bar á gagnrýni í garð fangels- isyfirvalda, annars vegar vegna þess að að minnsta kostí hálftími leið frá því að fangaverðir á Litla-Hrauni fengu visbendingu um strok úr fangelsinu þar til staðfest var að mennimir hefðu strokið. Einnig vom það mistök við efttrlit með verkfærum í fang- elsinu sem ollu því að engan grunaði að strok væri í undirbúningi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.