Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2006, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2006, Síða 42
50 LAUGARDAGUR 6. MAÍ2006 Sviðsljós DV Hin árlega útskriftarsýning Listaháskólans í Reykjavík verður opnuð með pompi og pragt í dag í Hafnarhúsinu. Hún stendur yfir til 25. maí og er þekkt fyrir að vera sú alfrumlegasta og skemmtilegasta í bænum. DV spurði fjóra nemendur um framtíðina, listina og verkin. >j J 0» JJTÍa "JíJí'J JiJJilT Oddný Magnea Arnbjörnsdóttir Útskrifast úr vöru- hönnun og þrlvlöri hönnun. 1 u f ' Kristjana Rók Guðjohnsen Útskrifast úr myndlist. „Ég ákvað að hanna vöru sem ég geri alveg sjálf. Bjó til mótið, umbúðir og kynningar- bæklinga fyrir súkkulaðið," segir Oddný Magnea Ambjörnsdóttir, sem sýnir súkkulaði í formi alls kyns líkamshluta. „Ég fékk hráefnið þaðan sem bakarar versla. Gott súkkulaði. Þetta eru líkams- partar en hugmyndin kom frá innyflum. Ég byrjaði á því að taka mót af mér og tók eftir því hvað línurnar í húðinni eru falleg- ar og smáatriðin æðisleg," segir Oddný. Hún bjó til tær, varir, tungu, tennur, fmg- ur og kjúkur og viðurkennir að hún sé hálf- gerður nammigrís. Afhverjulistin? „Þetta er mitt helsta áhugamál og á best við mig. Hæfileikar mínir fá að njóta sín eftir að ég komst að því að ég væri á réttri braut." Framtíöin? „í sumar ætía ég ásamt sjö manns að opna vinnustofu á Grettisgötu. Síðan ætía ég að- sjá í hverju mig fangar að sérhæfa mig." Peningaáhyggjur? „Ekkert sérstakar. Það er björt ffamtíð í hönnun á íslandi. En þetta verður basl, ég vissi það áður en ég fór í skólann." Súkkulaðiö ljúffengt? „Ljúffengt, gott og kom skemmtilega á óvart." „Þetta eru sex verk og þau tengjast öll. Hálfgerð sería sem er abstrakt. Verkin eru glansandi og það er eins og þau fljóti á striganum. Ég teiknaði upp hreyfingar á myndum sem ég tók upp í Noregi," segir Kristjana Rók Guðjohnsen en verkið hennar heitir Ég vil heldur dansa. Hver er stefnan? „Ég vinn vonandi sem listamaður í stúdíói í eitt ár. Svo ætía ég að sækja um master- nám í Bandaríkjunum og Evrópu. Ég er ótrúlega spennt. Þetta er í raun ný byrjun. Það er mildlvægt að vinna sem listamaður á meðan maður hefur tækifæri til þess." Veröuröu rík aflistinni? „Ég hef aldrei pælt neitt í því. Ég á alltaf eftir að vinna sem myndlistarmaður hvort sem ég verð rík eða ekki." ■im Erstriginn aö deyja? „Allt hefur sínar hæðir og lægðir. Yngri nemendur í skólanum vinna margir með striga. Ég held að hann sé að koma inn aft- ur.“ Innblástur? „Innblásturinn er ég sjálf. Ég og umhverf- ið. Þetta er allt voðalega jarðbundið." Listamenn framtíðarinnar sýna súkkulaði, teppi, málverk og boli /il'ÍiJiJfiJJJJiliJ JjílJjJiJ/Í yy/'j'UjifrÍ iiuu'jjllf Helga Lilja Magn- úsdóttir Útskrifast úr fatahönnun. „Hönnunin mín er byggð út frá frum- byggjaflokki sem ég rakst óvart á þegar ég bjó í Amsterdam á seinustu önn. Þeir nota gamla boli og gera þá að sínum. Ég tók boli og „dreiperaði" þá á gínu og út frá því kemur mín lína," segir Helga Lilja Magn- úsdóttir. Afhveiju fatahönnun? „Ég slysaðist inn í þetta fyrir þremur árum. Hafði alltaf mikinn áhuga á að sauma fyrir vini mína, ákvað að sækja um og komst inn." Ahyggjur afblankheitum? „Nei, ég er með góða aðila í kringum mig. Ég hef ekki áhyggjur." Hvaö tekur viö? „Lffið tekur við. Skólinn er búinn og nú þarf maður að byrja að taka ábyrgð á sjálf- um sér og reyna að komast áfram í þessu. Myndiröu taka þátt i „Project Runway"? „Eg er í raun búin að taka þátt. Þessi skóli er Project Runway. Við könnuðumst öll við það sem þau voru að ganga í gegnum." „Þetta er algjör bilun. Tíu þúsund bútar. Saumakonan saumaði heilan kílómetra af efni og það tók rúmlega tvö hundruð klukkutíma. Hún heitir Jóhanna Vilborg og er sú besta á íslandi. Þetta á víst að vera eitthvert met," segir Siggi Eggertsson. Afhverju bútateppi? „Ég fékk æði fyrir þessu í sumar. Rakst á myndabók fýrir teppi og sá þar svipaða hluti og ég hef gert undanfarið." Ánægöurmeö útkomuna? „Þetta er 100 prósent fullkomið. Örugg- lega stórkostíegasta teppi íslandssögunn- ar." HvaÖ tekur viö? „Ég veit það ekki. Ætía að slaka aðeins á. Fer síðan að vinna sjálfstætt og er með nokkur áhugaverð verkefni erlendis við hendina." Innblásturinn? „Myndefni teppisins er æskuminningar mínar. Ýmsir hlutir sem höfðu áhrif á mig, jafnvel Michael Jordan. Þegar ég var 12 ára var hann átrúnaðargoð mitt þannig að það er stór mynd af Michael á teppinu, umvaf- in táknum og tilvísunum í æsku mína." Ætiaröu aökúra undir teppinu? „Ég veit ekki hvort að ég tími því. Kannski eina nótt, það er mjög kósí."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.