Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2006, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2006, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006 Fréttir DV Óskar Hrafn Þorvaldsson • í sunnudags- blaði Morgunblaðs- ins var birt viðtal við milljarðamær- inginn Björgólf Thor Björgólfs- son. Þetta var ekkert venju- legt viðtal heldur var eytt heilum átta síðum og einu aukablaði undir það. Stiklað var á stóru á glæsileg- umviðski ' ' ekki verður sagt að viðtalið hafi ver- ið persónulegt. Þeir eru til sem segja þetta viðtal og umfang þess heldur óheppilegt þar sem Björgólfur Thor sé í forsvari fyrir Straum/Burðarás sem er einn af aðaleigendum Árvakurs, útgáfu- félags Morgunblaðsins. Velta menn því fyrir sér hvort þetta hafi verið pantað af eigendum... • Bjarni Ár- mannsson, for- stjóri Glitnis, verður meðal þátt- takenda í Osló- armaraþoninu í Noregiþann 1. október næstkom- andi. Það fór varla framhjá neinum að Bjarni tók þátt í Reykjavíkurmara- þoninu á dögunum, enda var Glitn- ir aðalstyrktaraðili hlaupsins. Það sama er uppi á teningnum í Osló og spyrja menn sig hvort Glitnir hyggist styrkja öll maraþon sem Bjarni tekur þátt í. Fyrir Bjarna og aðra áhuga- menn um maraþonhlaup má benda þeim á Beirútmaraþonið þann 26. nóvember næstkomandi. Verst að Glitnir er ekki með útibú í Líbanon... • Eigendur íslendingasagnaút- gáfunnar, sem keyptu nýver- ið öll tíma- rit Fróða, hafa ákveðið að bjóða öllum blaðamönn- um útgáfunn- ar á árshátíð til Kaupmanna- hafnar í byrjun október. Með þessu ætlar aðaleigandinn Sig- urður G. Guðjónsson að reyna að efla starfsandann hjá útgáfunni sem hefur ekki verið upp á það besta í ólgusjó og óvissu undan- farna mánuði. Starfsmennirnir eru víst afskaplega ánægðir með þetta uppátæki Sigurðar enda er ansi langt síðan almennileg árs- hátíð var haldin hjá Fróða... • Þremenningarnir Róbert Traustason, Arnaldur Birgir Kon- ráðsson og Evert Víglundsson, sem hlupu 100 kílómetra frá Hellu til Reykjavíkur til styrktar samtök- unum Blátt áfram, eru á leiðinni til Bandaríkjanna í herþjálfun. Þeir hafa staðið fyrir svokölluð- um „bootcamp-námskeiðum" að undanförnu við miklar vinsæld- ir en þar er líkt eftir herþjálfun. Þeir ætla samt greinilega ekki að láta þar við sitja og koma væntan- lega ferskir úr þjálfuninni með nýj- ar æfingar í farteskinu til að pína landann... Skjár einn ætlar að hrinda af stað nýjum raunveruleikaþætti í vetur. Þátturinn sem er að ástralskri fyrirmynd byggist á því að sex einstaklingar, þrír karlar og þrjár konur, ætla að reyna að grenna sig fyrir framan tökuvélar í sex vikur. Búast má við fjöri því meðal þátttakenda eru Árni Johnsen og Gaui litli. prógrammi á Skjá einum Umræða um offitu í íslensku þjóðfélagi hefur verið áberandi á undanförnum misserum. Skjár einn hyggst í vetur leggja sitt á vogarskálarnar með því að vera með raunveruleikaþátt sem byggist á því að sex manneskjur reyna að létta sig fyrir framan myndavélarnar. Einn af þeim er nýr handhafi æru sinnar Árni Johnsen „Ég ætla að leggja mitt afmörkum til að þess- ir þættir verði skemmti- legir" „Ég ætla að leggja mitt af mörk- um til að þessir þættir verði skemmtilegir," sagði athafna- ^ maðurinn og ærueigandinn Íf Árni Johnsen við DV í gær en hann er einn þátttak- enda í nýjum raunveru- leikaþætti á Skjá einum þar sem sex einstaklingar taka þátt í sex vikna fitu- bolluprógrammi fýrir fram- an tökuvélarnar. Skemmtileg hugmynd Ámi sagðist ekkihafa getað skor- undan þegar þess var farið á leit við hann að hann tæki þátt í þessu verkefni. „Þetta er skemmti- leg hugmynd sem bygg- ir á ástralskri fýrirmynd. Þetta er ekki einn af þess- um gölnu raunveruleika- þáttum. Hann fjallar um heilsuna, mikilvægi þess að fólk æfi og það gæti að matar- Árnl Johnsen Tekurþáttí í . fitubolluprógrammiáSkjá ^inumogætla^ðgeraslttti^j^ Gaui litli Ætlar að gera enn elna tilraunina til að'grennasf! æðinu. Með öðrum orðum að það viti hvað það er að gera," sagði Árni. fínu formi Árni sagð- ist sjálfur vera í fínu formi þrátt fyrir að vera kominn á sjötugsald- urinn. „Auðvit- að þarf fólk alltaf að skerpa á líkam- anum og ég lít á þetta verk- efni sem lær- dóm. Það mikilvægt að hugsa vel um heilsuna og menn eru alltaf að læra, hvort sem þeir eru tvímgir eða sextugir," sagði Árni og bætti við að það væri ekki markmiðið með þessum þætti að tapa sem mestri þyngd. „Þetta verður afslappað og markvisst en auðvitað verður tekið á. Aðalmálið er að komast að stöðu líkamans og huga að innviðunum. Þeir skipta jafn miklu máli og allt hitt," sagði Árni. Gaui litli líka með Auk Árna verður þekktasta fitu- bolla landsins, Gaui litli, einn- ig með í þáttunum. Gaui litli hefur gert margar tilraunir til að grennast, bæði á síðum dagblaða og fjölmiðla en ekki haft erindi sem erfiði. Það verður gaman að fýlgjast með Gauja litla og Árna glíma við vigtina, mat- aræðið og þrekþjálfunina á Skjá ein- um í vetur. Æft eins og í hernum Ekki náðist í forsvarsmenn Skjás eins í gær en DV hefur heimildir fýr- ir því að þátttakendur verði mældir í bak og fýrir sem og að sálfræðingur verði til staðar til að hjálpa þeim yfir erfiða hjalla á tímabilinu. Auk þess verður boðið upp á alvöru herþjálf- un eða svokallað „bootcamp" þar sem þátttakendur munu fá að svitna svo um munar. oskar@dv.is Framkvæmdir við nýja stúku við Kópavogsvöll hefjast í haust Byggja stúku fyrir tvö úrvalsdeildarlið Bæjarráð Kópavogs samþykkti í vikunni að heimila bæjarverkfræð- ing að ganga til samninga við SÞ verk- taka ehf. um gerð sökkla og botnplötu stúku við Kópavogsvöll. Framkvæmd- ir við stúkuna hefjast í haust og er áformað að stúkan verði tilbúin fýr- ir Landsmót 2007, sem haldið verð- ur í Kópavogi í júlímánuði. Áætlað er að stúkan taki 1400-1500 manns í sæti en hún verður vestan vallarins gegnt núverandi stúku. Mannvirk- ið er hannað samkvæmt stöðlum frá Knattspyrnusambandi Evrópu UEFA en það er Jón Hrafn Hlöðversson hjá Vektor, sem hannaði stúkuna. Stúkan mun gerbreyta aðstöðu áhorfenda og blaðamanna við Kópavogsvöll en lít- ið skjól hefur verið að hafa fýrir veðr- um og vindi þar frá því að völlurinn var byggður. Stúkan verður á þremur hæðum með nýjum búningsklefum fýrir bæði Kópavogsliðin, veitinga- sal á miðhæð auk sérstakrar blaða- mannastúku og V.I.R stúku fýrir allt að 90 manns. Kópavogsvöllur Svona mun nýja stúkan við Kópavogsvöll llta út.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.