Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2006, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2006, Síða 35
PV Helgin FÖSTUOAGUR 1. SEPTEMBER 2006 55 tveimur öðrum manneskjum það fyrst. „Ég sá að það yrði nú alveg nógu erfitt fyrir börnin mín og manninn minn að missa mig á aðventunni eða jólunum þótt ég færi nú ekki að láta þau bera þá byrði að velta fyrir sér útförinni minni," segir hún og fær sér kaffísopa. Gekkfrá jarðarförinni sinni Engin sjálfsvorkunn, engin kaldhceðni, bara bláköld staðreynd. „Ég pantaði mér því tíma hjá Út- fararstofú íslands og hitti Bryndísi Valbjamardóttur og Sverri Einarsson. Þau gáfu mér góðan tíma og ég held þau hafí nú orðið svolítið hissa þeg- ar ég sagði þeim að það væri mín eig- in jarðarför sem ég væri að leita efdr tilboði í. Helst hefði ég nú bara vilj- að fara niður í svörtum plastpoka eða eplakössum en það má víst ekki," seg- ir hún og hlær. „Lægsta tilboðið hijóð- aði upp á sjötíu þúsund, alit innifalið, kistan, krossinn með nafninu mínu á. Auðvitað mátaði ég enga kistu," svar- ar hún aðspurð. „Þess þarf ekki. Þetta em bara standard stærðir. Sverrir út- fararstjóri hefur leyfi til að lesa mig niður og ég sagðist vilja að égyrði kist- ulögð heima, kistan sett á borðstofu- borðið og ef fjölskyldan vildi tónlist mætti setja á góðan geisladisk. Aðal- lega var hugmynd mín með kistulagn- ingu heima sú að spara bílferðir niður í Fossvog og aftur í Mosfelfskirkjugarð. Óþarfa ferðaiög fannst mér. En það var ekki samþykkt af fjölskyldunni að kistuleggja heima." Fundur með fjölskyldunni „Eftir að ég hafði gengið frá samn- ingi við útfararstofuna fór ég heim, skrifaði æviágripið mitt og allt sem Mogginn myndi viija fá við andlát, setti í brúnt umslag og boðaði svo til fjölskyldufundar." Mamma hennar kom að sjálfsögðu á „fundinn" og saman satfjölskyldan með dýrin sín í stofunni þegar Ósk sagði þeim frá staðreyndum. „Þau tóku þessu nokkuð vel," seg- ir hún. „Auðvitað var þetta erfiðast fyrir Sögu mína sem þá var bara níu ára en eins og ég benti henni á þá veit maður aldrei hvenær maður er kallaður til að sinna verkefnum ann- ars staðar en hér á jörðinni." Veislur fyrir lifandi, ekki látna Þú nefnir engan prest í þessari upptalningu. Ertu ekki trúuð? „Trúuð? Ég er sko mjög trúuð," svarar hún að bragði. „En til hvers þarf að borga aukaiega einhverjum embættismanni til að lesa mig nið- ur? Ég verð ekki hér hvort sem er, ég verð uppi. Þetta fólk fær hvort sem er tékkann sinn! Og úr því ég er nú komin í blaðaviðtai með óskir mín- ar, þá vona ég að allir í kringum mig viti það að mér finnst erfidrykkjur fá- ránlegar. Ég vil vera í mínum partí- um sjálf. Það á að halda veislur með- an fólk er lifandi, ekki eftir að það er dáið. Hugsaðu þér allt gamla fólk- ið sem enginn hefur heimsótt árum saman en svo mæta 200 manns í erfidrykkjuna! Nei, takk, ekki þegar ég kveð. Vinkonur mínar vita þetta, enda eru þær stöðugt að halda ein- hverjar veislur fyrir mig!" Frumurnar í líkamanum / lyfjameðferðinafór hún, albúin að mœta dauðanum efkallið væri komið. „Ég fór í fjólubláu peysuna mína og nýpijónaða sokka í stíl, kom mér í djúpa hugleiðslu og þeir sprautuðu lyfinu í mig. En ég hef verið í þess- ari meðferð á hálfs mánaðar fresti í fjögur ár ásamt öðrum lyfjum. Og hér er ég enn. Eitthvað stundaði ég af „óhefðbundnum" lækningum, drakk lúpínuseyði og ólífuolíu, stunda hug- leiðslu og öndunaræfingar og þegar ég gat ekki sofið fór ég með hundana niður að sjó um miðjar nætur og and- aði að mér súrefni og orku h'fsins. Ég tala mikið við sjálfa mig í huganum, ímynda mér að frumurnar í líkaman- um séu eins og fóik í færeyskum dansi þar sem allir dansa saman, engar tvær eru að skera sig úr og valda tjóni." „Ég held aðþegar Guð útdeildi rómantíkinni hafi Guðmundur verið fremst í röðinni, en ég aftastl Við erum eins og svart og hvítt og höfum alltafverið. Það trúði enginn á að samband okkar myndi ganga." Öllu er afmörkuð stund Ertu sátt við að deyja? „Já, veistu það að ég er alveg sátt við að deyja," svarar hún án umhugs- unar. „Mér fannst erfiðast þarna fyr- ir fjórum árum að hugga fjölskyld- una og fá þau til að sætta sig við að öllu er afmörkuð stund. Ég trúi því að við séum öli köliuð til annarra verka. Mér líður þannig í dag að ég óttast ekki dauðann. Mér ieið þannig iíka í gær. Svo getur vel verið að ég verði skítlirædd korter fyrir dauða. Hvað veit ég um það? Ég hef aldrei dáið áður." annakristine@dv.is Eitthvað nýtt „Það eina sem ég velti mikið fyr- ir mér var hverjir myndu taka við stelpunum. Ég vissi að Guðmund- ur minn kæmist vel af með Kolbein, systur mínar myndu báðar viija taka stelpumar en það sem ég óttaðist var að Brynja færi í móðurhlutverkið og tæki að sér að axla ábyrgðina sem áður hafði verið á mínum herðum. En einhvern veginn var ég viss um að ég væri ekkert að deyja." Að meðferð lokinnifór Ósk í reglubundið eftirlit. Hana langaði að söðla um og prófa eitthvað alveg nýtt. „Þá datt mér í hug grunnskólinn í Mosfehsbæ, Varmárskóii. Ég hafði alið upp þrjú böm með ágætis ár- angri, stutt þau við námið og náð vel til þeirra. Mér datt í hug að ég gæti gert gagn í skólanum, var ráðin þar stuðningsfuUtrúi haustið 2001 og fékk til mín verkefni sem mér gekk vel að leysa úr. Úrskurður um leikslok En svo dundi áfalliðyfir. Krabba- meinið tók sig upp að nýju. „Þá tók við önnur meðferð og ég varð virkilega veik í október árið 2002 og sá ekki fram á að ég yrði fimmtug í desember. f nóvember sögðu lækn- „Ég sá að það yrði nú alveg nógu erfitt fyrir börnin mín og manninn minn að missa mig á aðventunni eða jólun- um, þótt ég færi nú ekki að láta þau bera þá byrðiað velta fyrirsér útförinni minni." arnir mér að lyfin væru ekki að virka. Það væri tíl önnur lyfjameöferð en hún væri hættuleg að því leyti að lyf- ið veldur oft bráðaofnæmi í fyrstu meðferð. Sú lyfjameöferð myndi ekki gera neitt annað en lengja líf mitt um einhverja mánuði. Ég sagði krabba- meinslækninum mínum að ég vildi álit annars læknis áður en ég tæki ákvörðun. Það var auðsótt mál og þegar sá læknir sagði hið sama, fór ég heim að hugsa minn gang." Og það gerði hún. Ákvað að taka sénsinn, „enda leiðinlegt að deyja á jólunum," eins og hún orðarþað. En áður en hún tilkynntifjölskyldunni að slagnum vœri lokið, tilkynnti hún Á aðventunni fyrir fjórum árum sat 49 ára kona á skrifstofu útfararstofu og ræddi kostnað og tilhögun jarðarfarar. Hún tók ásættanlegu tilboðinu og fór sátt af stofunni. Um kvöldið hélt hún fjölskyldufund og sagði móður sinni, eiginmanni og þremur börnum að leiknum væri lokið. Óttalítil manneskja „Ég greindist með brjóstakrabba- mein árið 1998," ségir hún eins og hún sé að segja mér hvernig veðr- ið sé. „Það reyndist hafa dreift sér í eidana í kring og brjóstið var fjar- lægt. Ég fór í gegnum hefðbundna, nokkurra mánaða meðferð og get varla sagt að ég hafi fundið fyr- ir henni. Auðvitað varð mér óglatt eins og öðrum og missti hárið. En ég kastaði aldrei upp og tók þessu eins og hverju öðru verkefni lífsins. Ég er óttalítil manneskja; kvíði og ótti eru ekki til í minni orðabók." Þarna áttirðu tvo unglinga, sautján og þrettán ára ogfimm ára gamla stúlku. Varðstu virkilega ekki hrædd við dauðann? „Nei, ég var ekki hrædd við dauð- ann og er ekki enn," svarar hún af einlægni. i um eiqin V/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.