Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2006, Page 39
PV Helgin
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006 59
fólk er að ^áf^^‘í15KSÍu^Snsta^eHda
ÞárttÖkr,HrTrfáernumánumaðMaPgni sé nú þegar sigur-
Rúnar Júl „Magni er
vandaður og finn
drengur sem á þetta
skilið. Hann hefur
þennan innri styrktil
að standa i þessu og
erekkisvona
uppskrúfaður eins og
Kaninn er oft.“
Kemst alla leið ef hann vill
„Þetta er alveg frábært og Magni
er til fyrirmyndar," segir Rúnar Júlíus- i
son tónlistarmaður sem hefur eins og I
aðrir fslendingar fylgst með þættin-
um Rock Star: Supernova. „Magni er
vandaður og fínn drengur sem á þetta
skilið. Hann hefur þennan innri styrk
til að standa í þessu og er ekki svona
uppskrúfaður eins og Kaninn er oft,
segir Rúnar og bætir við að hann hafi
fulla trúa á að Magni fari alla leið. „Ef
hann langar það getur hann það. Ég
er samt ekkert viss um að hann langi
það eitthvað voðalega mikið. En hann
er kominn helvíti nálægt því. Ég held
að hann ætti betur heima í hljómsveit
með húsbandinu. Þeir eru frábærir
tónlistarmenn og hann myndi passa
betur með þeim en hinum púkunum."
Aðspurður segist Rúnar ekkert fylgj-
ast með hinum söngvurunum og geti
því ekki spáð um það hver veiti Magna
mesta keppni í úrslitunum. „Ég sé hin
ekki, bara hann. Ég held með Magna
alla leið."
Þorvaldur Bjarni „Hann fer ihörkubaráttu
við Dilönu sem erstórkostuleg og Ástralann.
Ég spái þviað þau þrjú komist lengst."
Jónsi „ífyrstu þáttunum
voru nokkrir söngvarar sem
höfðu litið sem ekkert fram
að færa en sveitaballamark-
aðurinn er mjög góð
uppeldisstöð fyrir söngvara,"
segirJónsi.
Barátta milll Magna,
DilönuogTobys
„Ég er búinn að horfa á
nokkra þætti," segir Þorvald-
ur Bjarni Þorvaldsson tónlist-
armaður og bætir við að þegar
Magni hafi toppað allt þeg-
ar hann hafi tekið gítarútgáf-
una af Dolphins Cry. „Enda
fékk hann umspil eftir það lag,
þetta var alveg geggjað," segir
Þorvaldur Bjarni og bætir að-
spurður við að hann hafi ekki
gert sér grein fyrir hversu góð-
ur söngvari Magni væri í raun
og veru. „Ég held að það lýsi
best bransanum hér. Ef þú
I L.te«SÍ
ert þekktur fyrir að vera í ein-
hverju ertu partur af því þótt
þú getir í rauninni allan fjand-
ann. Hann á svo miklu meira
til en hann hefur sýnt og það
er frábært." Þorvaldur Bjarni
segir sina fjölskyldu taka þátt
í að kjósa og að hann fýlgist
spenntur með framhaldinu.
„Hann gæti þess vegna staðið
uppi sem sigurvegari. Hann
fer í hörkubaráttu við Dilönu
sem er stórkostuleg og Ástr-
alann. Ég spái því að þau þrjú
komist lengst."
Getur allt gerst
„Ég held að baráttan standi
á milli Dilönu og Lukas Rossi,"
segir Sverrir Bergmann Magn-
ússon söngvari og bætir við að
þótt þau tvö séu ekkert endi-
lega bestu söngvararnir passi
þau best við hljómsveitina Su-
pernova. „Dilana er mjög góð
en fyrir utan það passa þau tvö
best með þessum vitleysing-
um." Sverrir Bergmann segir
Magna eflaust besta þáttakand-
ann sönglega séð eða allavega
þann næstbesta. „Hann er bú-
inn að sanna sig og hefur aldrei
slegið feiltón og það verður
Sverrir Bergmann „Medlimir Supernova
hafa ausidyfir hann lofinu og það er aldrei
að vita hvaðþeir gera fyrir hann,"segir
Sverrir um Magna.
Getum verið stolt af
Magna
„Magni hefur staðið sig
mjög vel, allavega af því sem
ég hef séð," segir Andrea Gylfa-
dóttir söngkona og bætir við
að íslendingar geti verið afar
stoltir af honum. Aðspurð seg-
. ist Andrea trúa að Magni kæm-
ist alla leið. „Það getur allt gerst
í svona þætti og hann á alveg
jafn mikla möguleika og hver
annar," segir hún en Andrea
segist ekki hafa fylgst svo vel
með þættinum að hún geti
nefnt einhvern ákveðinn sig-
urvegara. „Ég hef ekki mynd-
að mér skoðun á hinum kepp-
endunum og hef ekki fylgjst
svo vel með að þekkja nöfnin
þeirra. Magna hefur farið mik-
ið fram í keppninni og ég held
að þetta væri góð reynsla fyrir
hvern sem er," segir Andrea og
bætir við að lokum að hún ætli
að fylgjast með næsta þætti ef
hún hafi möguleika á því.
Velgengnin undir Magna
komin
„Það er erfitt að ímynda sér
eittíivað. Á þessu stigi er þetta
fyrst og fremst sjónvarpsþáttur,"
segir Eiður Árnason útgáfustjóri
Senu þegar hann er innmr eftir
því hvað velgengnin gæti þýtt fyr-
ir Magna peningalega. „Ef maður
uppfærir þetta á svipað fyrirbæri
sem Idolið er, þótt það sé alls ekki
eins og snúist um annan mark-
hóp, þá er erfitt að ímynda sér
annað en að efstu tvö sætin gætu
virkilega gert eitthvað gott en það
veltur svo sannarlega allt á ein-
staklingunum sjálfum," segir Eið-
ur og bætir við að það gerist ekk-
ert sjálfkrafa. „Klárlega er verið að
opna margar dyr fyrir Magna sem
stóðu ekki opnar áður en í þess-
um heimi er erfitt að segja. Þetta
er allt undir honum komið, hvað
hann vill og hvað ekkt. Það eru
líklega margar hljómsveitir til-
búnar að bjóða honum til sm og
svo getur verið verið að eitthvað
útgáfufyrirtæki sjái hann fyrir sér
sem sóló-artista en fyrst og ffernst
opnar þetta marga möguleika fyr-
ir hann, án þess að ég sé að gera
eitthvað lítið úr þessu."
Eiður segist ekki vita annað en
að fyrstu verðlaunin hljóði upp
á að fronta sveitina Supemova
sem ætli í kjölfarið að gefa út eina
plötu og leggja í einn túr. „Hvað
það hefur svo að segja veit mað-
ur ekki. Sjálfsagt hefur það eitt-
hvað með beinharða peninga að
gera en þetta verður allt tengt ár-
angrinum. í íslenska Idolinu eru
engin peningaverðlaun, krökk-
unum er hjálpað með kostnað og
vinnutap og ég býst við að það sé
svipað uppi á teningnum þarna,"
segir Eiður og bætir við að Magm
hafi staðið sig frábærlega að hans
mati og að hvorki hann né hljóm-
sveitin Á móti sól sé á sammngi
hjá Senu.
Ef við setjum dæmið upp
þannig að Magni endi í öðru sæti
og fái fínan samning hjá útgáfu-
fyrirtæki, hvað gæti það mögu-
lega þýtt fyrir hann fjárhagslega?
„Ég gæti vel ímyndað mér að
Magni gæti haft vel ofan í sig og
á í nokkra mánuði, meðan plata
væri í gerð og kannski á meðan á
kynningartúrnum stæði. Fram-
haldið réðist svo af árangrinum
og gæti þess vegna margfaldast.
Það færi eftir viðtökunum. Næst-
um allir plötusamningar eru að-
eins upp á eina plötu í einu en
með möguléika á framlengingu.
Verðlaun þáttarins eru í raun
og veru þetta tækifæri og það er
voðalega erfitt að giska eitthvað
á hvað þetta gæti þýtt peninga-
lega."
spennandi að fylgjast með því
hvað hann gerir þegar hann
kemur heim." Aðspurður hvort
hann haldi að Magni flytji ekki
til Bandaríkjanna til að freista
gæfunnar segir Sverrir það
aldrei að vita. „Hann þarf alla-
vega að koma heim og ná í kon-
una og barnið. Hann er algjör-
lega búinn að stimpla sig inn
sem góðan söngvara og búinn
að kynnast fólki í tónlistargeir-
anum svo hann hefur tækifær-
ið. Meðlimir Supernova hafa
ausið yfir hann lofinu og það
er aldrei að vita hvað þeir gera
fyrir hann. Það getur allt gerst."
Sveitaballareynslan hjálpar
honum
„Sveitaballareynslan hefur reynst
honum rosalega vel í að standa upp
úr meðalmennskunni sem einkenndi
marga keppendur í byrjun þáttanna,"
segir Jón Jósep Snæbjörnsson, bet-
ur þekktur sem Jónsi í í svörtum föt-
um. „I fyrstu þáttunum voru nokkrir
söngvarar sem höfðu lítið sem ekkert
| fram að færa en sveitaballamarkað-
| urinn er mjög góð uppeldisstöð fyrir
söngvara," segir Jónsi og bætir við að
hugur hans sé hjá fjölskyldu Magna.
„Þar sem ég er sjálfur fjölskyldumaður
er hugur minn hjá þeim enda gæti ég
ekki hugsað mér að vera í hans stöðu.
Eg sendi því stuðningskveðjur til Mar-
ínós og Eyrúnar." Jónsi segist fullviss
um að við íslendingar hefðum ekki
getað sent betri mann í keppnina. „Ég
er mjög ánægður með Magna enda er
hann að standa sig mjög vel. Hann er
húinn að sanna að hann er ekki aðeins
prýðis söngvari heldur mjög góður gít-
arleikari líka, það er berlega að koma
í ljós."
F8UMSÝHDI. SlPTlMBlK
lipfi'i iRinn
mai"
sEf
. ,naur fðOOfllw
w*.
vi/M_K/iv/xrv
SMS
lEIKUR k
- C'A1 'j
■mÉÉáM CÆ^Bía)