Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2006, Blaðsíða 42
62 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006
VeiBimál DV
Veiði lokið í Veiðivötnum
Veiðisumrinu er lokið í Veiðivötnum þetta tímabilið.
Stangveiðin gekk mjög vel á þessum slóðum og er þetta ann-
að besta veiðisumarið hingað til. Aílinn nú var 16.278 fiskar
sem er litlu færri fiskar en á síðasta ári en þá veiddust 16.766
fiskar sem var metár í stangveiðinni. Veiði á urriða var minni
framan af sumri en undanfarin ár en glæddist þegar leið
á. Skýringin er líklega kuldi í vötnunum framan af sumri.
Bleikjan gaf aftur á móti vel í kuldanum og var tæplega 50%
af heildarveiðinni í sumar, sem er hærra hlutfall en áður
hefur sést í Veiðivötnum. Þyngsti fiskurinn var 11,6 pund og
meðalþyng var 1,55 pund.
Veiðimaður
vikunnar
Eflaust eru margir sem
kaupa fluguveiðistöng og
standa svo á bakkanum og
skilja ekki hvernig á að koma
flugunni út. Gummi í Arko
og Pálmi Gunnarsson hafa
stofnað fluguveiðiskóla.
Helmingur nemenda eru konur
Þaö hefur veriö gríðarleg ásókn I fluguveiöi-
skólann. Yfir helmingur nemenda eru konur.
Veiðimaður vikunnar að
þessu sinni er alþingismaður-
inn Gunnar örlygsson. „Ég held
ég geti fullyrt að aldrei áður hafi
ég veitt jafnmarga daga og þetta
sumar. Veiðisumarið hófst fyrir
alvöru í Hofsá í Vopnafirði dag-
ana 8.-10. júlí. Ógleymanlegur
túr þar sem veiddust einir 60 lax-
ar á 7 stangir og flestir rígvænir
eða frá 10-15 pund, stærstu fisk-
amir voru 17 og 18 pund.
Þá heimsótti ég, ásamt fjöl-
skylduminni, Stóru-Laxáí
Hreppum um mitt sumar og átt-
um við þar ljúfar stundir við fína
veiði þar sem bæði lax og bieikja
létu glepjast af flugum okkar.
Umhverfi Stóru Laxár hefur að
geyma seiðandi fegurð og er áin
að mínu viti ein af fallegustu lax-
veiðiám landsins. Þá fór ég til
veiða í Fnjóská og fékk þar 2 laxa
og nokkrar vænar sjóbleikjur.
Fnjóská er mjög krefjandi á
þar sem hún rennur um langan
veg bæði vatnsmikil og straum-
hörð. Fnjóská mun ég án efa
heimsækja aftur. Ég fór einn-
ig til veiða í Laxá f Leirársveit
og veiddi vel af bæði vænum
sjóbirtingi og lax eða samtals
9 fiska. Þá fór ég til veiða í Ytri
Rangá á afmælisdaginn minn
4. ágúst og lenti í sannkallaðri
mokveiði. Á sjálfan afmælisdag-
inn náði ég að landa 14 löxum
og flesta þann daginn eða 9 laxa
veiddi ég á tveimur klukkustund-
um á veiðistað sem nefndur er
Rangárflúðir."
„Ég stofnaði þennan skóla síðasta
haust og ætlaði að vera með eitt eða
tvö námskeið í sumar til að kynna
þetta. Ég ætlaði svo að fara á fullt
næsta sumar. En það varð spreng-
ing. Ásóknin var svo mikil að ég varð
bara að byrja á fullu strax," segir Guð-
mundur Guðmundsson, sem er best
þekktur sem Gummi í Arko, um nýj-
an fluguveiðiskóla sem hann rekur.
Ég fór að hugsa um hvernig það
er þegar maður er að byrja að veiða.
Ég var svo heppinn að ég sjálf-
ur fékk góða leiðsögn strax í byrjun
en það eru ekki allir svo heppnir og
þess vegna stofnaði ég skólann. Ég
fékk Pálma Gunnarsson með mér
í lið. Hann er einn af okkar færustu
fluguveiðimönnum og hann er líka
gríðarlega góður kennari. Það helst
nefnilega ekki endilega í hendur að
vera fær og að vera góður kennari en
Pálmi hefur þetta allt.
Þriggja daga veiðitúr
Skólinn hjá Guðmundi og Pálma
virkar þannig að farið er með fólk
í þriggja daga veiðitúr og þar er allt
kennt. „Það er ekki endilega lögð
áhersla á að veiða sem mest heldur
eru allar aðferðir kenndar. Það er eitt
að vera í einhverjum sal og læra að
kasta flugunni en það er svo annað
þegar þú ert kominn út í vind og svo-
leiðis. Þá vandast málið þegar rok-
ið og rigningin eru byrjuð að stríða
þér. Við förum svo yfir grunninn og
kennum allar þær aðferðir sem við
kunnum. Við höfum aðallega verið
að kenna þetta á silungasvæðinu í
Vatnsdalsá. Það hentar mjög vel því
veiðihúsið er stórt og veiðisvæðið er
mjög gott til kennslu.
Helmingurinn konur sem koma
á námskeið
Ætíi það hafi ekki farið í gegnum
skólann hjá mér í kringum 60 til 70
manns og helmingurinn af þeim eru
konur. Það er greinilegt að það er
mikil aukning í fluguveiði hjá kon-
um. Fólk sem hefur komið til okkar
hefur viljað koma til okkar á fram-
haldsnámskeið enda er erfitt að
meðtaka allt á þremur dögum. Ég
reikna með því að á framhaldsnám-
skeiðinu verði farið meira í laxveiði. f
haust ætla ég svo að vera með einka-
námskeið í góðri sjóbirtíngsá. Þau
námskeið eru fyrir þá sem vilja fara
einir eða jafnvel hjón," segir Gummi
og bætir því við að reyndar sé upp-
selt á námskeiðin sem hann ætí-
ar að bjóða upp á í haust. Það sé þó
tímabært að byrja að skrá sig á nám-
skeiðin sem hefjast næsta vor. Fyr-
ir áhugasama er um að gera að hafa
samband við Guðmund í síma 893
7654 eða senda honum tölvupóst á
arko@arko.is.
Guðmundur með góða Nielsen-stöng
Gummihefur grlðarlega mikla reynslu enda
hefur hann stundað fluguveiöi i tugi ára.
Gummimeð einn Gummi og Pálmi Gummisegiraö
flottan Gummi Pátmi sé einn færasti fluguveiöimaður
vetddiþessafallegu landsinsoghannséllkafrábeerkennari
fískaiVlkurá.
army.is
Þetta er vefverslun sem selur not-
uð og jafnvel ný föt frá ýmsum herj-
um. Hægt er að gera mjög góð kaup
hjá þeim. Eins er bara mjög gaman að
skoða hvað þeir hafa upp á að bjóða.
skotfimi.is
Þessi vefur fjallar um allt sem við-
kemur skotfimi. Mjög skemmtileg-
ur og góður vefur. Um að gera fyrir
alla að kynna sér þetta skemmtilega
sport.
logreglan.is
Það er alveg nauðsynlegt fyrir alla
þá sem hafa áhuga á skotveiði að
kynna sér reglugerð-
ir og annað sem lög-
reglan hefur upp á að
bjóða varðandi skot-
veiði.
hlad.is
Á vefsíðu Hlaðs er hægt að fá
góðar upplýsingar um allt
sem viðkemur skotveiði.
Ífff Þar er líka spjallsvæði fyrir
notendur. Hægt er að fá góð-
W ar upplýsingar hjá þeim sem
B stunda spjallið. Svolítið um
’ skítkast og leiðindi en þó ekki
mikið.
byssusmiðs. Jóhann er einn af fær-
ustu byssusmiðum íslands og inni
á vefsíðunni hans er spjallborð og
fróðleikur.
Fyrir þá
sem eru ^Sky''3'
nettengd- 'vjac
ir þá er fullt af
skemmtilegum
vefsíðum með efni
um skotveiði. Bæði eru
skemmtilegar versl-
anir með góðar síður i
sem og félagasamtök i
og einstaklingar.
ust.is ^
Vefur Umhverfis-
stofnunar, þarna er hægt
að ná sér í góðar upplýs-
ingar varðandi skotveiði.
Á þessum vef eru nýj- A
ar fréttir og hægt að m
sækja um veiðikort, ^fl
einnig eru nýjar fll
rannsóknir birtar þar
og ýmislegt skemmtilegt.
hreindyr.is
Vefsíða veiðistjórnunarsviðs Um-
hverfisstofnunar. Hérna eru all-
ar upplýsingar um hreindýraveið-
ar. Hægt er að fá nýjustu fréttir um
hreindýraveiðina og fróðleik um alit
sem viðkemur veiðinni.
byssa.is
Vefsíða Jóhanns Vilhjálmssonar