Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006
DV Erlendar fréttir
Jack Palance er
látinn
ur þeirra til að ná sér niðri á honum
síðar.
Allt snýst um peninga
Vinir Pauls segja að hann hafi
tekið þá afstöðu í baráttu sinni gegn
Heather að allt snúist um peninga hjá
henni. Dóttir hans Stella er á sama
máli og hefur raunar verið óspör við
að viðra þá skoðun sína að Heath-
er sé ekkert annað en „gullgrafari"
sem tekist hafi að læsa klóm sínum í
föður hennar. Paul mun annars vera
bjartsýnn á að áætlun hans muni
ganga upp sökum fégræðgi Heath-
er. Og fjöiskyldulögfræðingur segir
í samtali við NOTW að góðar líkur
séu á að Paul fá forræðið yflr Beat-
rice dæmt sér fyrir dómstólum. Lög-
fræðingurinn Helen Howard segir:
„Ef bæði samþykkja þennan ráðahag
með samningi er líklegt að dómari
samþykki hann einnig."
Heather hefur annars
farið fram á 80 milljón-
irpunda, eða um 10,5
milljarða króna, eftir
fjögurra ára hjónaband
þeirra. Þessi upphæð er
um W% af áætluðum
auðæfum Pauls.
indi í framtíðinni ef Heather fær for-
sjána yfir dótturinni. Hann óttast að
smátt og smátt muni hann missa að-
gang að dóttur sinni og það er hugs-
un sem hann getur ekki hugsað til
enda. Skiinaðurinn er aftur kominn
í hnút eftir nýjustu kröfur Heather og
Paul óttast að hún muni nota dótt-
Paul vonar að Heather taki þessu tilboði og þau komist þannig
hjá miklum slagsmálum um forræðið fyrir dómstólum. Og til-
boðið hefur litið dagsins ljós þrátt fyrir yfirlýsingar beggja um að
þau muni fara sameiginlega með forsjá dóttur sinnar.
Vikuritið News of the World seg-
ir að Sir Paul McCartney hafi boðið
Heather Mills leynilega hina ótrú-
legu upphæð 2,6 milljarða króna ef
hún gefur eftir forræðið yfir Beatrice,
þriggja ára dóttur þeirra. Og að þessi
upphæð verði fyrir utan það sem
Paul greiðir Heather fyrir skilnað
þeirra. Það stefnir því allt í að skiln-
aðurinn við Heather muni kosta bít-
ilinn fyrrverandi allt að 13 milljörð-
um króna.
VIII komast hjá forræðisbaráttu
Að sögn vina Pauls setti hann
fram þetta tilboð til Heather þar sem
hann vill komast hjá því að þurfa að
berjast við hana um forræði Beatrice
fýrir dómstólum. Og hann setur til-
boðið fram þrátt íyrir opinberar yfir-
lýsingar þeirra beggja um sameigin-
lega forsjá að loknum skilnaðinum.
Heather hefur annars farið fram á 80
milljónir punda, eða um 10,5 millj-
arða króna, eftir fjögurra ára hjóna-
band þeirra. Þessi upphæð er um
10% af áætluðum auðæfum Pauls.
Óttast leiðindi í framtíðinni
Paul mun hafa tjáð Heather að
þetta sé einfalt: „Ég fæ Beatrice og
þú færð peningana. Punktur." Það
sem liggur hér að baki, að sögn
vina Pauls, er að hann óttast leið-
Paul McCartney hefur leynilega boðið Heather Mills alveg ótrúlega upphæð fyrir að
fá forræðið yfir Beatrice, þriggja ára dóttur þeirra. Paul býður Heather andvirði 2,6
milljarða króna fyrir forræðið. Upphæð þessi er fyrir utan það sem Heather fær út úr
skilnaði þeirra hjóna.
Paul og Heather Paulhefur boðið
Heather grlðarlega fjárhæö fyrir
foiræðiðyfir dóttur þeirra Beatrice.
Heath'
mill
>ðnivv2,6
rir barnið
Minnisvarði um
hvítkál
Bæjaryfirvöld í Bosmu ætla að
reisa risavaxinn minnisvarða um
mikilvægustu framleiðsluvöru
bæjarbúa, hvítkál. Mico Micic bæj-
arstjóri í bænum Bijeljina segir að
bændurnir í bænum vilji heiðra
þetta grænmeti sem er mikilvæg-
ur hluti af mataræði Bosníubúa.
„Við höfum samþykkt áætlanir um
að reisa minnisvarða um hvítkál,"
segir Mico Micic. „Þetta grænmeti
fæðir íbúana í þessu héraði og það
á skilið virðingu okkar." Hinn risa-
vaxni minnisvarði verður hann-
aður af listamönnum í bænum og
settur upp á næsta ári.
Jólaljósin of
vinsæl
Bæjaryfirvöld
í Scarborough
hafa hætt við að
kveikja á jólaljós-
um sínum því að
athöfnin sjálf er
orðin of vinsæl að
þeirra mati. Tíu
þúsund gestir mættu í desember
á síðasta ári en brunamálayfirvöld
segja að ekki sé hægt að tryggja
öryggi nema um 2.000 gesta við
núverandi aðstæður. Svo í stað
þess að snúa fólki frá var ákveðið
að hætta við allt saman. Ekki eru
allir jafn hrifnir afþessari ákvörð-
un og verslunareigandinn Penny
Marsden segir hana vera „brand-
ara". „Þetta er hamingjustund fýr-
ir börnin og við ætíum að ræna
henni fr á þeim," segir Penny.
Meistaraverk
fannst í geymslu
Elísabet Bretadrottning hefur
fundið mjög verðmætt meistara-
verk eftir málarann Caravaggio í
einni af geymslum sínum. Sérffæð-
ingar segja að verkið, The Calling of
Saints Peter and Andrew, sé rúm-
lega 6 milljarða kr. virði á markað-
inum í dag. Verk þetta hefur verið í
eigu konungsfjölskyldunnar í næst-
um 400 ár og var geymt og gleymt
í geymslum í Hampton Court ára-
tugum saman. Á sínum
tímavarþaðmetið
sem endurgerð af sam-
nefndu verki Cara-
vaggios en nýrri rann-
sóknir sýna að það er
fr umgerð og ein af
aðeins um 50 slfk-
um sem til eru í
heiminum.
Gamli leikarinn og vestraskúrk-
urinn Jack Palance hefur skotið
sínu síðasta skoti en hann lést úr
elli um síðustu helgi á heimili sínu
í Kaliforníu, 87 ára gamall. Jack hóf
leiklistarferil sinn á Broadway 1947
en skipti fljótt yfir í kvikmyndir þar
sem hann lék skúrka í fleiri vestr-
um, besta hlutverkhans var sem
kaldrifjaður byssumaður í Shane
en hann hlaut fleiri óskarstilnefii-
ingar fýrir leik sinn. Hann
vann svo Óskarinn
1992 fýrir hlutverk sitt
sem Curly í myndinni
‘W City SÚckers. Áður
^|enhannhóf
WMmk leik var Jack
ð
hnefaleikari
og stríðshetja
í seinni
heimsstyrj-
öldinni.
Ekkja Steves McQueen hélt uppboð á eigum hans og fékk rúma 2 milljarða króna
Sólgleraugu McQueens slegin á 5 milljónir
Sólgleraugu úr eigu leikarans
Steves McQueen voru slegin nýlega
á uppboði hjá Bonham í Los Angel-
es. Sólgleraugun voru slegin óþekkt-
um kaupanda fyrir andvirði 5 millj-
óna króna. Gleraugu þessi notaði
McQueen í myndinni The Thomas
Crown Affair.
Það var Barbara ekkja McQueens
sem hélt uppboðið en á því voru tíl
sölu um 200 munir úr eigu leikarans,
þar á meðal leðurjakkar, glymskratt-
ar og kvikmyndamunir. Alls seldust
eigur McQueens fýrir rúma 2 millj-
arða króna. McQueen sem lést 1980
var þekktur fyrir leik í myndum á
borð við Bullitt og The Great Escape.
Eitt af mótorhjólum McQueens,
Croker árgerð 1937, seldist fýrir met-
fé, eða andvirði nær 200 milljóna
króna. „Hann elskaði virkilega mót-
orhjólin sín," segir Barbara Minty-
McQueen í spjalli við BBC. „Það
skiptí hann engu máli hvemig þau
litu út, hann var bara hrifinn af þeim.
Það er gaman að aðrir getí átt hluti
frá McQueen og notið þeirra á hverj-
um degi."
McQueen hafði viðurnefnið „king
of cool" og hann var einn þekkt-
asti leikari heims á árunum 1960 til
1980. Þekktasta hlutverk hans er ef-
laust sem einn af föngunum í mynd-
inni The Great Escape. Þar flýr hann
undan nasistum á mótorhjóli. Hins
vegar framkvæmdi hann ekki sjálfur
áhættuatriðin á hjólinu í myndinni
eins og margir telja. Það gerði vinur
hans Bud Ekins, sem lék áhættuat-
riði fýrir McQueen í nokkrum mynd-
um.
Steve McQueen
Þekktastur fyrir leik sinn I
myndinni The Great Escape.