Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Blaðsíða 47
OV Fréttir
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 67
Nafn?
„Aðalheiður Ólafsdóttir.1
Hvað á hug þinn allan þessa
dagana?
„Það er tónlistin, að syngja
hér ogþar og svo að sjálfsögðu
nýi þátturinn sem ég stjórna á
Skjá einum."
Leyndur hæfileiki?
„Hmmm... nei, veistu ég held
bara ekki, ég kæmist aldrei í
Heimsmetabók Guinness."
Hvað bjóstu til/skapaðir síð-
ast?
„Bakaöi æðislega súkkulaði/
karamellusprengju."
Biðuru bænirnar þínar á
kvöldin?
„Iá.“
Hvenær labbaðirðu siðast út
úrbíó?
„Hef aldrei gert það."
Hvenær fórstu að sofa í
nótt?
„Klukkan tvö."
Skemmtilegasta stefnumót-
ið?
„Átti eitt mjög skemmtilegt
í sumar þar sem góður hvít-
laukshumar kom við sögu og
góður félagsskapur."
Hvað er næst á dagskrá?
„Næst á dagskrá er vinna við
sjónvarpsþáttinn og að syngja
og syngja."
Aðalheiður Ólafsdottir, betur þekkt sem Heiða,
er aðeins að söðla um. Hún er nýjasta ancllitið á
skjánum þar sem hún mun kynna tónlistarmynd-
bönd á Skjá einum í fyrsta sinn í kvöld. DV fékk
Heiðu til þess að svara nokkrum spurningum.
Sigga Ella
stormar um bæinn
Ysog þys út af engu
Brá mér í bíó um daginn. Komst inná
Borat eftir tilraun númer tvö því alltaf
var uppselt. Enda er þetta grínmynd í
sérflokki. Myndin hefur verið mikið í
umræðunni því aðalhlutverið er í
höndum sniliingsins sem lék Ali G á
sínum tíma.
Eini tilgangur minn með því að fara á
myndina var að skemmta mér því ég
vissi að hún var fyndin og mig langaði
að skella uppúr í skammdeginu.
Myndin var stórgóð enda fléttuðust
saman raunveruleg atriði og leikin
atriði þannig að maður greindi ekki á
milli. Mér fannst Borat frábær karakter
og setti fram fína landkynningu á
Kasakstan þó heimafólk þar og margir
aðrir líti ekki svo á. Mörg atriðin voru
mjög lýsandi fyrir bandarískt samfélag
eins og þegar hann var staddur á
ródeó-sjóvinu og snéri áhorfendum í
kringum sig og skoðunum þeirra.
Mér fannst fyndnast af öllu að Banda-
ríkjamenn geta ekki séð grínið í
sjálfum sér. Hvað er maður ef maður
getur ekki haft húmor fyrir sjálfum
sér?
Við erum öll viðkvæm, við dettum öll
einhvern tímann á hausinn eða
missum vitleysur út úr okkur en er ekki
sniðugra að hlæja fremur en að hoppa
oni holu og veslast þar upp?
Einstakar innréttingar
- hannaðar að þínum þörfum
Innanhússarkitektar hanna fyrir þig allar innréttingar og aðstoða þig við val á
tækjum, gólfefnum, flísum, lýsingu og öllu því sem prýðir falleg heimili.
Við sérsmíðum allar innréttingar og þær koma samsettar og tilbúnar til
psetningar. Útvegum iðnaðarmenn og fylgjum verkinu eftir allt til loka.
,d
P1
pHANÁK
íllllM INNRÉTTINGAR
H E I M I L I Ð I
H E I L D
*
www.heild.is
Síðumúla35 ■ 108 Reykjavík ■ Simi 517 0200 • heild@heild.is