Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Blaðsíða 33
PV Helgin
\
Fjöldabrúðkaup „Moon er hvað frægastur fyrir fjöldabrúðkaupin en fregnir afhverju meti hans á fætur öðru íþeim efnum hafa ratað á
forsiður dagblaðanna. Sr. Moon kemur aðeins nálægt makavali afkomenda gamalla fylgismanna sinna núna en yfirleitt er þetta I höndum
leiðtoga staðbundinna safnaða og er enginn sagður neyddur til neins.“
Ekki sammála öllu „Ég er ekki moonisti og er ósammála þeim um harla margt Itrúarefnum.
Ég hefánægju afþvl að ræða við fólk með margbreytileg trúarviðhorftil að kynnast þvi nánar
og erþvlalveg tilbúinn að hlusta á hvað moonistar hafa fram að færa“
„Þegar ég hlýddi á sr.
Moon síðast talaði
hann um það að Guð
hefði lofað sér nokkr-
um árum til viðbótar og
ætti hann enn eftir að
opinbera fylgismönn-
um sínum ótalhluti,
ekki síst í tengslum við
andaheiminn"
stoðir fjölskyldunnar. Á ráðstefnun-
um sem yfirleitt fara fram á bestu hót-
elum í stórborgum víða um heim má
sjá fjölda þekktra einstaklinga, svo
sem fyrrverandi þjóðarleiðtoga á borð
við forseta Bandaríkjanna þá George
Bush eldri og Bifl Clinton en í kynning-
armyndefni moonista má gjaman sjá
þá standa brosandi við hlið sr. Moons
þar sem þeir klappa fyrir orðum hans.
En þótt moonistar hafi þannig náð til
fjölda alls kyns leiðtoga víða um heim
hefur sr. Moon lengst af verið svo ilia
þokkaður í Vestur-Evrópu að fáir það-
an hafa séð sér fært að sækja ráðstefn-
ur hans. Með tilkomu Schengensamn-
ingsins var sr. Moon ennfremur settur
á svartan lista á trúarlegum forsend-
um sem gerði það að verkum að hann
mátti ekki ferðast tii neins aðifdarrík-
is, jafnvel þótt trúfélag moonista væri
þar skráð og í tengslum við ríldsvaldið,
eins og á fslandi. Mikil orka hefur farið
í það hjá moonistum að fá banninu af-
létt og var svo komið að aðeins Þýska-
land stóð í vegi fyrir komu sr. Moons
til Schengenríkjanna en 10. nóvem-
ber síðastliðinn úrskurðaði hæstiréttur
landsins að banninu skyldi aflétt enda
skerðing á trúffelsi."
Hjónabandið hefur áhrif á stöðu
fólks í eilífðinni
Margir hér á landi halda að moon-
istar heyri sögunni til en svo kemur í Ijós
að samtök í hans nafni hafa starfað hér
lengi.
„Það er af og frá að moonistar séu
liðnir undir lok. Að vísu bendir ýmis-
legt til að þessi trúarhreyfing sé ekkert
tiltölulega fjölmenn - meðlimir telja
á annan tuginn hér á íslandi - og telja
sumir trúarbragðafræðingar að moon-
istar um allan heim kunni að vera um
250.000, en áhrifin eru þeim mun meiri
sem sést m.a. af fjöldabrúðkaupunum
og ráðstefiiunum þar sem þátttakend-
ur eru flestir utan raða safitaðarmeð-
lima. Þá eiga samtökin miklar eignir og
stórfyrirtæki og eitt af helstu dagblöð-
um Bandaríkjanna, The Washington
Times. Moonistar koma enn töluvert
við sögu f fjölmiðlum en umræðan er
samt ekki nálægt því eins neikvæð og
hún var áður fyrr og það kann að vera
skýringin á því hvers vegna trúarhóp-
urinn fer framhjá svo mörgum í dag.“
Moon einn getur frelsað heiminn
ftrúarhópum er oft einn leiðtogi sem
allir verða að hlýða, einn Guð...
„Það er rétt að trúarhópar geta ver-
ið valdboðskenndir og þar er yfirleitt
um að ræða félagslegt taumhald að
einhvetju marki enda eru öll mannleg
samskipti skilyrt. Enginn kemst upp
með hvað sem er, algjörlega óháð því
hvaða trúarhópi eða trúarbrögðum
viðkomandi tifheyrir. Moonistar hafa
sannarlega verið sakaðir um valdboðs-
hneigð og hafa sjálfir viðurkennt að
ýmislegt hafi farið úrskeiðis hjá þeim á
árum áður, en þeir vilja meina að þeir
hafi reynt að læra af því. Til eru trúar-
leiðtogar sem halda því fram að þeir
séu Guð og má til dæmis finna slíka
trúarhópa hér á landi. Sr. Moon er ekki
þar á meðal enda segist hann vera út-
valinn af Guði. Engu að síður hefur sr.
Moon verið óspar á yfirlýsingar um
eigið mildlvægi og hef ég sjálfur heyrt
hann halda því fram í ræðu að hann
hafi verið útvalinn sem messías vegna
þess að enginn annar, ekki einu sinni
Guð, geti frelsað heiminn."
íslenskir ráðamenn hafa þekkst
boð Moons
Er þér kunnugt um að margir fs-
lendingar sœki samkomur hjá moon-
istum?
„Samkomur moonista eru yfirleitt
fámennar og aðeins bundnar við þá
sjálfa. Það er frekar á ráðstefnur eða
fyrirlestra sem þeir reyna að bjóða ut-
anaðkomandi fólki og er allur gangur á
því hversu margir þiggja það boð. Það
eru ýmsir velviljaðir moonistum sem
einstaklingum og finna jafnvel sam-
svörun í ýmsu sem þeir boða, ekki síst í
siðferðilegum efnum, en þótt slíkir ein-
staklingar sjáist á fundum þeirra þýðir
það ekki að þeir séu þar með moon-
istar. Moonistar hafa boðið fjölmörg-
um fslendingum á ráðstefiiur víða um
heim og hafa margir þegið slík boð,
bæði fyrrverandi ráðamenn og enn
fleiri leiðtogar annarra trúarhópa, bæði
kristinna og frá öðrum trúarbrögðum."
Moonistar hafa verið rrteð tvcer
kynningar á finu hóteli í Reykjavík ný-
verið. Er það þekkt aðferð trúfélaga að
halda kynningatfundi?
„Það er ekkert nema gott eitt um
það að segja að trúfélög haldi kynn-
ingarfundi. Auðvitað vilja moonistar
að trúarleiðtogi þeirra sé tekinn alvar-
lega því að þeir telja að hann hafi ým-
islegt mMvægt fram að færa sem geti
stuðlað að sáttum milli manna og þar
með heimsfriði. Öflun nýrra meðlima
er þó ekki forgangsatriði hjá þeim því
að þeir vilja frekar sjá meðlimi ann-
arra trúfélaga og þá helst af öllu leið-
toga þeirra taka boðskap sr. Moons í
siðferðisefnum alvarlega. Aðalatriðið
fyrir þeim er því í sjálfu sér ekki það að
menn viðurkenni sr. Moon sem mess-
ías heldur meginatriði þess boðskapar
sem hann hefur að flytja og þeir telja að
þann boðskap sé að finna í kjama allra
helstu tniarbragða"
Samræður ólíkra trúarhópa
„Ég hef lengi haft áhuga á moonist-
um í tengslum við rannsóknir mínar
á trúarhreyfingum á íslandi og áhuga
mínum á samræðum milli trúarbragða,
kannski ekki síst vegna þess að maður
opnar vart fræðibækur í trúarlífsfélags-
fræði að ekki sé minnst á þá. Þess vegna
hef ég eins og með svo marga aðra
áhugaverða trúarhópa safnað öllu um
þá sem ég hef komist yfir og rætt við þá
þegar færi hefúr gefist. Ég hef ánægju
af því að ræða við fólk með margbreyti-
leg trúarviðhorf til að kynnast því nán-
ar og er því alveg tilbúinn að hlusta á
hvað moonistar hafa fram að færa, alls
óháð því hvað mér sjálfúm finnst um
það sem þeir segja. Ég er ekki moonisti
og er ósammála þeim um harla margt í
trúarefnum. Mér hefur verið boðið ótal
sinnum á ráðstefnur og fundi á vegum
þeirra bæði hér heima og úti í heimi og
oftast orðið að afþakka en hef þó far-
ið nokkrum sinnum. Sérstaklega þótti
mér áhugavert að kynnast ráðstefrium
þeirra úti í heimi og sjá hvemig þeir
standa að samræðum milli ólíkra trú-
arbragða, en trúarleiðtogar múslima
og gyðinga auk bandarískra trúarhópa
eru tíðir gestir hjá þeim. Slíkir fulltrúar
frá Vestur-Evrópu eru hins vegar sjald-
séðir enda hefirr sr. Moon lengi ver-
ið illa séður þar. Framlag moonista til
samræðna milli trúarbragða og frum-
kvæði þeirra í þeim efnum hefur verið
sagt merkilegt af þekktum trúarbragða-
fræðingum og má ekki vanmeta það."
Trúarleiðtogi með sterka
persónutöfra
Hefurðu hitt séra Moon ?
„Ég hef setið predikanir hjá honum
og staðið nærri honum, en ég hef aldrei
talað við hann. Hann er áhrifamikill
predikari og maður gleymir seint ræðu-
stílnum. Það er sannarlega áhugavert
að komast í návígi við svona þekktan
og jafriframt umdeildan trúarleiðtoga
með sterka persónutöfra og einlæga
fylgismenn, hreinræktaðan náðar-
valdsleiðtoga eins og Max Weber hefði
orðað það. Það var aUeftirminnilegt að
sjá Jerry Falwell leiðtoga siðferðilega
meirihlutans í Bandaríkjunum og sr.
Moon standa hlið við hlið, faðmast og
kyssast um leið og sá fyrmefhdi hélt
ræðu um mikilvægi þess að taka á móti
Jesú Kristi sem persónlegum frelsara,
meðan sá síðamefndi gaf sterklega til
kynna að hann væri sjálfúr messías. Sr.
Moon er orðinn 86 ára en h'tur út fyr-
ir að vera mun yngri. Maður sér það
þó á göngulaginu að hann á orðið erf-
itt með gang, sérstaklega upp tröppur.
Boðskapur sr. Moons hefur í grundvali-
araúiðum h'tið breyst í gegnum árin en
hann hefur samt þróast og hann bæt-
ir sífellt nýjum opinberunum við. Þeg-
ar ég hlýddi á hann síðast talaði hann
um það að Guð hefði lofað sér nokkr-
um árum til viðbótar og ætti hann enn
eftir að opinbera fylgismönnum sínum
ótal liluti, ekki síst í tengslum við anda-
heiminn."
annakristine@dv.is
Dv-mynd:Rósa
Hverfisgötu 105 • 101 Rvk ■ s 51 7 9440 ■ www.studiol 01 .is
Sérsmíðum
sófa og stóla
fyrir heimili,
veitingahús
og stofnanir.
Leitaðu frekari upplýsinga hjá okkur.