Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Blaðsíða 56
<r
76 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006
Síðast en ekki síst DV
*
Flugdólgará Akureyri
Iceland Express íhugar að hætta
millilandaflugi til Akureyrar vegna
ítrekaðra árekstra við farþega. í
fréttum í vikunni var sagt frá því
að það hafi legið við handalögmál-
um þegar farþegar lentu í 17 tíma
hrakningum á leið til Akureyrar frá
I Kaupmannahöfn.
_____ Flugvélin átti að lenda á
' Akureyrarflugvelli en lenti
á Reykjavíkurflugvelli sökum veð-
urs. Farþegarnir fóru þaðan með
rútu til Akureyrar.
Akureyringar voru ekki sáttir
við skýringar flugfélagsins og kom
nærri til handalögmála.
Bjarnveig Ingvadóttir, forseti
Ha?
bæjarstjórnar á Dalvík, telur
að félagið hafi sagt farþegum
ósatt þegar sú skýring var
gefin að veðurfarsaðstæður
kæmu í veg fyrir lendingu á
Akureyri.
Töldu Akureyringarn-
ir greinilega það best að
berja vonda veðrið í burtu.
Iceland Express íhugar að
hætta flugi frá Akureyri út af
slagsmálahundunum.
Furðufréttin
Árni sýni iðrun
og auðmýkt
Furðufrétt vikunnar er í
Morgunblaðinu þar sem fjallað
er um „tæknileg mistök" Árna
Johnsen og viðbrögð SUS við
þeim ummælum þessa fýrrver-
andi tugthúslims og verðandi
þingmanns. Morgunblaðið vitn-
ar í upphaf ályktunar þar sem
segir:
„Að gefnu tilefni gerir stjórn
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna þá kröfu til Árna John-
sen sem hugsanlegs þingmanns
Sjálfstæðisflokksins að hann sýni
auðmýkt þegar hann ræðir um
þau brot sem hann var sakfelld-
ur fyrir í starfi sínu sem þing-
maður. Háttsemi sú sem Árni var
dæmdur fyrir var ekki „tæknileg
mistök" heldur alvarleg og mjög
ámælisverð afbrot... Fyrsta skref-
ið í að endurvinna traust flokks-
manna og almennings í landinu
er að iðrast fyrri mistaka af ein-
lægni og koma fram af auðmýkt
og virðingu."
Árni svarar þessu af þeirri
„auðmýkt og iðrun" sem hon-
um er einum lagið með því að
segja að störf hans fyrir bygging-
arnefnd Þjóðleikhússins, það er
þjófnaður á eigum þess, komu
bara á engan hátt þingmennsku
hans við. Já og við sem stóðum í
þeirri trú að Árni hafi fengið sæti
sitt í téðri byggingarnefnd í krafti
þingmennsku sinnar.
Það voru Sjálfstæðismenn
sjálfir sem kusu Árna í öruggt
þingsæti í liðnu prófkjöri. Raunar
munaði mjóu að þessi fyrrver-
andi íbúi á Kvíabryggju myndi
leiða flokkinn í kjördæmi sínu í
komandi kosningum. Ef samtök
Sjálfstæðismanna halda áfram
að agnúast út í Árna vegna þess-
ara „tæknilegu mistaka" hans er
líklegt að Árni losi um
Ég á Hraunið og
svo á þing!
/
Skipstjórinn eins og kæst skata
Hrólfur tapar áhöfn í Amsterdam
frí
Hrólfur hét maður og var Þór-
hallsson. Hann bjó á Húsavík fyrir
tæpum tveimur áratugum er saga
þessi gerist. Hrólfur var háseti á ein-
um af togurunum í plássinu og stóð
sig vel á sjó. Hann og aðr- ir
skipverjar um
borð þjáð-
ust nokkuð
af sérkenni-
legri hjátrú
skipstjórans.
Skipstjór-
inn var sum-
sé með það
á hreinu að
ef hann þreif
sig um borð
á meðan á
veiðum stóð
myndi hann ekki
fá bein úr sjó. Hann snerti því
ekkert sem sápa hét er hann var
um borð. Þetta mátti svo sem halda
út í fyrstu en fór í verra þegar tog-
aranum var breytt í frystitogara og
úthöldin lengdust
til muna.
Eitt sinn er
togarinn var
að stíma heim
úr löngu úthaldi
og Hrólfur var í
brúnni kom skip-
stjórinn upp. Lykt-
in af honum var þá
orðin svo megn að
auðveldlega hefði
mátt byggja bíl-
skúr á henni. Varð
þá fyrsta stýri-
manni að orði út um
annað munnvikið að
ef „mannætur næðu
einhvern tímann í
lcarlinn myndu þær
sennilega éta hann á
Þorláksmessu".
Að loknu þessu út-
haldi áttu skipverjar
í um tíma þar sem
togarinn þurfti í
slipp til viðhalds.
Hrólfi fannst til-
valið að þeir
skryppu til
gleðiborgar-
innar Amster-
damsértilupp-
lyftingar í eina
viku. Fór hann í málið,
græjaði stóra lúxusíbúð skammt frá
rauða hverfinu í borginni og keypti
flugmiða fyrir hópinn.
Áhöfnin týnist
Menn voru orðnir nokkuð góð-
glaðir þegar vél þeirra lenti á Schip-
ol-flugvelli. Þar sem Hrólfi hafði
láðst að kaupa toll sinn í Keflavík,
skapp hann í fríverslun vallarins og
sagði hinum að bíða sín við útgang-
inn. Er Hrólfur kom þangað bólaði
hvergi á félögum hans. Hann ákvað
því að halda einn í lúxusíbúðina og
bíða þar.
Hrólfur var mættur og tók við
íbúðinni um hádegisbilið en skips-
félagarnir létu bíða eftir sér. Fór
Hrólfur því sjálfur á stjá í rauða
hverfinu, svona til að kanna móinn
fyrir kvöldið. Dróst sú ferð nokkuð
og var hann ekki kominn í íbúð-
ina fyrr en um áttaleytið um kvöld-
ið. Ekki voru skipsfélagarnir búnir
að skila sér þangað og fór Hrólfur
að hafa áhyggjur af þeim. Hringdi
Rauða hverfið Hrólfur leigöi lúxusfbúð við hliðina á rauða hverfinu IAmsterdam.
hann því norður til Húsavíkur til
að kanna hvört þeir hefðu eitthvað
látið vita af sér. Stóð það á jöfnu að
þeir voru allir nýlentir á flugvell-
inum á Húsavík. Höfðu þeir tapað
áttum á Schipol og leist svo illa á
að fara á eigin vegum til miðborg-
arinnar að þeir ákváðu að koma sér
bara heim aftur með sömu vél og
þeir flugu út með.
Slökkviliðið mætir
Hrólfur var því einn í íbúðinni
næstu vikuna. Ekki fór hann mik-
ið út eftir fyrsta kvöldið. Það kvöld
heimsótti hann strippbúllu í næstu
götu og eitthvað virtist í ólagi með
krítarkortið hans eftir þá heim-
sókn. Kom í ljós síðar að kortið
hafði verið straujað um 130.000 kr.
fyrir þennan eina drykk sem hann
keypti þar.
En eina heimsókn fékk Hrólfur
í íbúðina. Um miðja vikuna braut
hópur af slökkviliðsmönnum nið-
ur útidyrnar og réðst til inngöngu
í fullum búnaði, vopnaðir öxum.
Töldu þeir að mikill vatnsleki kæmi
frá íbúðinni en svo reyndist ekki
vera. Hrólfur hafði keypt forláta te
til að g'efa frænku sinni heima en
fyrst slökkvilið var mætt hellti hann
því upp á könnuna. Voru slökkvi-
liðsmennirnir þarna í góðu yfirlæti
hjá Hrólfi um stund og drukku teið.
Varð Hrólfi oft á tíðum skeggrætt
um það síðar hve þetta voru al-
mennilegir gaurar sem brutu niður
útidyr hans.
Með ráma rödd eins og Rod Stewart
Gamla myndin
Gamla myndin að þessu
sinni er tekin í Hljóðrita
suður í Hafnarfirði og
sýnir Björgvin Hall-
dórsson söngv-
ara, Gunnar Smára
Helgason hljóð-
mann og írska
söngvarann Peter
0‘Donnell við upp-
töku á lagi með þeim
síðastnefnda. Björg-
vin man vel eftir þessu
en hann kynntist Peter þeg-
ar Björgvin tók þátt í írsku sönglaga-
keppninni á þessum tíma.
„Peter var mjög skemmtilegur
og töff strákur," segir Björgvin Hall-
dórsson. „Og hann hafði álíka rödd
og Rod Stewart, mjög ráma og gríp-
andi."
Björgvin segir að hann hafi far-
ið til írlands, ásamt Jóni Ólafssyni
í Skífunni, til að taka þátt í
sönglagakeppninni þar
þetta árið. Gekk það
ágætlega, Björgvin
hafnaði í þriðja sæti
í keppninni og Peter
í öðru sæti. í fyrsta
sæti var söngkonan
sem söng um að...
„video killed the rad-
io star"... en Björgvin
man ekki í svipinn nafn
hennar.
„Það var mjög gam-
an að taka þátt í keppninni þarna
á írlandi," segir Björgvin. „Og þar
kynntíst ég meðal annárs hinum
þjóðsagnakennda Johnny Logan
sem oftar en aðrir hefur unnið Euro-
vision."
Björgvin segir að hér heima hafi
þeir hljóðritað eitt laga Peters „We
all need love" sem síðar var gefið út
á plötu á írlandi. Hljómsveitin sem um svo með Peter út á lífið í Reykja-
spilaði undir var að grunni til sú víkoghannhafðigamanafþvíenda
sama sem fór svo í sögufrægan túr léttur í lund eins og flestír frar," seg-
til Sovétríkjanna árið 1983. „Við fór- ir Björgvin.
•f.