Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 Fréttir DV ERU ÚTLENDINGARVELKOfl Umræöan um útlendinga á íslandi hefur ekki farið framhjá neinum undanfarna daga. Skiptar skoðanir eru á því hvort það eigi að takmarka straum útlendinga til landsins eða ekki. Á undanförnum tíu árum hefur fjöldi þeirra útlendinga, sem hafa flust til landsins til að leita sér að vinnu og sækja um búseturétt á landinu, tvöfald- ast. Þingmenn Frjálslynda flokksins hafa gefið út þá yfirlýsingu að flokkurinn telji að það eigi að takmarka innflutning útlendinga til landsins. Sú afstaða þeirra hefur komið af stað umræðu um útlendinga á íslandi sem mörgum finnst vera neikvæð í þeirra garð. í allri þessari umræðu um útlendinga á íslandi hefur ekki borið mikið á því að útlendingarnir sjálfir séu spurðir að því hvað þeim fínnist um þessi mál. DV hafði samband við íjölda útlendinga, sem eru búsettir á íslandi og starfa í félagasamtökum landa sinna, til að heyra þeirra viðhorf til þessarar umræðu og hvað þeim finn- ist um ummæli Frjálslynda flokksins að takmarka eigi straum út- lendinga til íslands til búsetu. Konurumburðar- lyndari en menn „íslenskar konur hafa nreira umburðarlyndi gagnvart útlend- ingum en íslenskir karlmenn. I’eir vilja að island sé fyrir íslendinga. Annars hef ég ekld orðið var við kynþáttafordóma hér nema að því leyti að údendingum er ekki gefið tækifæri á að vinna við meira met- in störf. Þrátt fyrir að margir út- lendingar hafi menntun frá sínu landi til að sinna ábyrgðarstörfum þá fá þeir ekki slíka vinnu nema að tala fullkomna íslensku. Mér finnst að ísland tapi á því að gefa útlendingum ekki fleiri möguleika til vinnu, því þeir koma oft með þekkingu og reynslu sem gætu nýst íslendingum vel. Ekkert land vex og daihar án fjölbreytileika og fslendingar verða að átta sig á en það má ekki setja öll eggin í sömu körfuna." Godson Anuforo, búsettur á íslandi i 7ár ogformaður Félags Nígeriumanna á íslandi. j íslendingar eru ekki rasistar „ísland skrifaöi undir Schengensáttmálann og verður aö virða hann. Það er ekki hægt að neita því fólki, sem undir hann fellur, að koma til landsins. Atvinnumarkaðurinn á fslandi stjómar sér sjálf- ur og þeir útlendingar sem koma til íslands að leita að vinnu vita að það er næg vinna. Það sem vantar er að bæta kerfið til að taka á móti þessu fólki. Údendingar vinna mjög vel og kannski betur en íslend- ingar en það má spyrja sig hvort það eigi að vera meira eftírlit með því hverjir koma til landsins. Sum fyr- irtæki ráða ekki fólk nema það sé með hreint sakarvottorð. Þannig gætu fyrirtækin í land- inu hjálpað okkur að velja og hafrta fólki. Ég er orðinn meiri íslendingur en Pólverji og á marga góða vini hér en það var erfitt að vera á íslandi áður en ég lærði málið. Það er alltaf hætta á því að fólk einangrist ef það talar ekki íslensku." Witek Bogdanski, búsettur á fslandi í 21 ár og meðlimur i Menningarsamtökum Pólverja á ís- landi. Frjálslyndir eru bara að fiska atkvæði „Frjálslyndi flokkurinn seg- ir þetta bara tíl að fá atkvæði og svo gleymist það eftir kosningar. Oft er einhverju slegið fram fyrir kosningar en svo er ekkert meira að baki því. Mér flnnst gott að vera útlendingur á fslandi en ég held að það séu ekki meiri for- dómar hér en annars staðar en þeir eru samt til staðar. Það verð- ur að passa að tala ekki of mik- ið um fordóma, þá er eins og að þeir aukist í okkar garð." TeiturMinh Phouc, formaður Félags Víetnama á íslandi. Fóikhugsarekkimáiið til enda ísiandþarfað venjastþessu „Mér finnst ummæli Frjálslynda vera eingöngu til að fá fleiri til að kjósa sig. Ég held að þetta sé ekki hættuleg umræða en fólki finnst oft gott að vera á móti einhverju og sameinast í því. íslendingar þurfa að venjast því að útíendingar komi til landsins til að setj- ast að og fslendingar þurfa að tengjast betur menningu útíendinga. Það þurfa allir að vinna saman að því að bæta þjóðfélagið og mér hef- ur alltaf verið tekið vel á fslandi en mér finnst sorglegt hvemig talað er um múslima. Það er svo mikil fáffæði um þá og almenningsálitið er að þeir séu allir hryðjuverkamenn." Maurizio Tani, búsettur á íslandi ifimm ár og meðlimur ífélaginu tsland-Ungverjaland. „Mér finnst allt í lagi að taka á móti öllum þess- um útíendingum því það hefði slæm áhrif á efna- hagskerfið ef ekki væm útlendingar hér að vinna. Vandamálið er að fsland er ekki nógu vel undirbú- ið til að taka á móti þessu fólki. Það þarf að bæta móttökukerfið og undirbúa komu þessa fóiks til landsins. Mér flnnst umræðan um þessi mál í lagi en ekki hvermg henni er stýrt því undanfarið hef- ur hún verið neikvæð í garð útlendinga. Hver á að vinna þá vinnu sem útlendingamir vinna? Mér finnst miður að flokkur sem vill hefta iimflutn- ing útlendinga skuli auka fylgi sitt. Ég held að fólk hugsi ekki málið til enda og það verður að passa að það verði ekki tilfinningalegur æsingur í garð út- lendinga, það er ekki gott." Toshiki Toma frájapan, búsettur á íslandi í 14 ár og prestur innflytjenda. íslendingar vilja bara Evrópubúa „Margir íslendingar eru ekki hrifnir af útlendingum og viija ekki að það komi fleiri útlendingar tíl landsins, sérstaklega ef þeir eru frá Asíu. Ég er gift íslenskum manni og líður mjög vel hér en margir landar mínir eiga erfitt með að læra málið því þeir hafa ekki tíma til að fara í skóla. Flestír eru með fleiri en eina vinnu því Tælendingar segja aldrei nei og vinna eins og maskínur. Það þarf að leggja meira í það að kenna útíend- ingum íslensku því margir eiga mjög erfitt með að læra tungumálið." Pattama Boonma, búsett á íslandi í sex ár ogfélagi í Taílensk-íslenska félaginu. Finnstþetta upphlaup miðii „Mér finnst mjög miður þegar svona upphlaup verða eins og umræðan um útlendinga ber glöggt merki. Það má ekld setja alla útlendinga í sama pakkann og tala um að all- ir útlendingar séu hér á landi á sömu forsendum, það er rangt. Fjöldi fólks af erlendum uppruna hefur verið búsett héma um áratuga skeið og aðrir koma til að stunda vinnu tímabundið. Það em til fordómar í íslensku samfélagi og það fólk sem er með þá er ekki öruggt með sjálft sig eða stöðu sína og er alltaf að agnúast út í útíendinga, sem eru hentugir sökudólgar. Uppsveiflan í efnahagsmálum á Islandi er að mörgu leyti útlendingum að þakka. Við viljum ákveðnum lífsgæðum og erum ekld nógu mörg tíl að haida þeim við." Hólmfríður Garðarsdóttir, dósent íspœnsku við Háskóla fs- lands ogformaður Spœnsk-rómanska menningarfélagsins á fs- landi. my§

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.