Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 Fréttir DV Ummæli vikunnar „Geir Haarde heldur kannski að ég liggi andvaka í svitakófi á nóttunni og öfundist út í ofurlaun frábærra. Það er ekki alveg svo slæmt en ég segi stundum við Lufsuna að ég bara nái því ekki af hverju ég er á mlnum lúsarlaunum en eitthvað lið út um allan bæ á geðveikum ofurlaunum. Hún tekur ekki þátt í öfund minni enda skráð í Sjálfstæð- isflokkinn..." Dr. Gunni í Bakþönkum Frétta- blaðsins aö ræða um að hann sé svo frábær að hann ætti að vera á ofurlaunum. Mikið rétt, dr. Gunni á aðveraáofurlaunum. W Enefþaðgerist i einhvern tímann mun Geir Haarde tiggja andvaka af áhyggjum í svitakófi vikum saman. „Hinn frjálslyndi þjóðhyggjumað- ur Magnús Þór Hafsteinsson er sagður hugleiða að flytja sig I Kragann með þingsætinu enda um að gera að sinna fjölmennu kjördæmunum þegar gæsirnar gefast, en stjórnmálaskýrendur í Málstofu Kormáks og Skjaldar telja fullvfst að frjálslyndir geti klófest viðvarandi fylgi upp á 10-12% með því að gera út á heimóttarskapinn. Vafalaust taka Kragamenn vel á móti nýbúanum af Skaganum." Andrés Magnússon i Klippt & skorið i Blaðinu að ræða tilflutning Magnúsar / Þórs á milli kjördæma. Rétt, Kragamenn. Fram með fiðrið og JKyn tjöruna og tökum vel á móti Magnúsi Þór. „Hér á landi er þjónustuleysi á mörgum stöðum. Þjónar hafa yfirleitt lítinn áhuga á starfi sínu, eru í gallabuxum og jafnvel með bert á milli eða í slitnum strigaskóm, bjóða varla góðan daginn, eru oft og iðulega jórtandi tyggjó og sjaldan yfirtuttugu ára." Víkverji Morgunblaðsins að ræða hina slæmu þjónamenningu hér á landi. Heyr, heyr. Gestir veitingahúsa eru oft heppnir ef tyggjóklessan er ekki límd við kaffibolla þeirra. Þetta með bert á milli er hins vegar í lagi ef viðkomandi erbeib. „Samkvæmt þessu ætti Þorgerður Katrín að hafa á sér andvara þegar hún kemur næst á landsfund. Hefðin segir að varaformað- ur i flokknum verði formaður Sjálfstæðisflokksins. Nú er hún greinilega farin að þvælast fyrir nýja flokkseigendafélaginu og er því næst á listanum yfir þá stjórnmála- menn sem Geir og Þorsteinn, og þá væntanlega Don Gullfreð, Klandri framkvæmdastjóri og Borgar Bjarnarbani, ásamt Ara Edwald og Jóni Ásgeir, sem aftur er kominn í hina flokkslegu náð gegnum Gullfreð, ætla að fleygja á hina flokkslegu hauga." Ofurbloggarinn Össur Skarphéð- insson á heimasíðu sinni að ræða vitt og breitt um nýafstaðin prófkjör og afleiðingar þeirra. Það er oft svo að þeir sem fleygt er á flokkshaugana ná að krafla sig aftur upp úr forinni. Til dæmis Árni Johnsen. „...því eins og allir vita eru jólin ekkert skemmtileg lengur heldur leggjast á mann eins og lögfræð- ingur á hverju ári og hafa af manni peninga. Fyrir átta milljarða væri hægt að gera svo margt. íslending- ar gætu til dæmis keypt eyju einhvers staðar (hitabeltinu. Við gætum kallað hana Vestmannaeyjar syðri og bara geymt Árna Johnsen þar." Atli Fannar Bjarkason i fjölmiðla- pistli á Blaðinu að fjalla um uppskeruhátið kapítalismans, það erjólin. Loksins rödd skynseminnar I umræðunni um„tæknileg mistök“ Tveir hópar fjárfesta eiga meira og minna alla bari og skemmtistaði í miðborg Reykja- víkur. Þessir tveir aðilar eiga alla vinsælustu og best sóttu skemmtistaði og veitingahús Reykjavíkur. Baráttan um næturlífíð 101 Heild heitir það fyrirtæki sem á flesta staðina og rekur það Sjávar- kjallarann, Silfur á Borginni, Café Operu, Sólon, Victor, Tapas-barinn og Thorvaldsen. „Við erum með sjö veitingastaði niðri í bæ. Þetta hef- ur líka tekið dálítið langan tíma hjá okkur. Við byrjuðum fyrir sjö árum síðan en þá opnuðum við Café Vict- or," segir Tómas Kristjánsson, einn af eigendum 101 Heildar sem er það félag sem á flesta skemmtistaði mið- borgarinnar. Allt rekið á sömu kennitölu ÁsamtTómasi eru það Ingvar Svendsen, . Guðmundur Hann- esson, Jón Snorra- son, Lárus Gunnar Jónasson og Ágúst Reynisson sem eiga fyrirtækið. „Það er sam- keppni á milli allra staða í miðbænum. Því fleiri staðir því fleira fólk kemur í bæinn. Menn verða að vera á tánum en ég fagna nýjum stöð- um," segir Tómas um hvort það sé ekki hörð samkeppni á milli skemmtistaða í miðborginni. „Þaðermunþægi- legra að reka staðina svona á einni kennitölu. Þá er bara einn ársreikn- ingur og öll innkaup verða þægilegri," segir Tómas en öll þessi fyrirtæki eru rekin á sömu kennitölu. „Þessi bransi 101 Heild Rekursjö skemmtistaði og veitingastaði ímiðborg Reykjavlkur. Arnar Þór Gfslason Arnar segir að I raun séu þeir ekki svo stórir. gengur svona upp og niður en þetta ár hefur gengið mjög vel. Þetta fyrirtæki er mjög ungt og það væri gaman ef veltan færi yfir milljarð- inn á þessu ári,“ segir Tómas. Minni hópurinn Annar hópur íjárfesta sem á mik- ið af börum í miðborginni sam- anstendur af Arnari Þór Gíslasyni, Níels Hafsteinssyni og Hafsteini Egilssyni. Þessir menn eiga hluti í mörgum af allra vinsælustu börum borgarinnar. „Við erum bara frekar litlir á þessum markaði," segir Arnar Þór um hvort hann og félagar hans séu ekki noklcuð stórir á barmarkaðn- um. Þessir staðir eru allir reknir sem sérrekstrareiningar hjá oklcur," seg- ir Arnar. Barirnir sem þeir reka eru til dæmis Barinn, Óliver og Qbar og þeir eru með ítök í Veislusölum í Iðu og Iðnaðarmannahúsinu Hallveigar- stíg 1 en þar eru stórir salir til leigu. Það er því ljóst að það eru tveir aðil- ar á markaðnum sem berjast um yf- irráð yflr miðborg Reykjavíkur. Sjávarkjallarinn Ereinn vinsælasti veitingastaður Reykjavlkur. Óliver Einn heitasti skemmtistaður Reykjavlkur. Café Ópera Hefur verið vinsæll veitinga- staður I gegnum tlðina. Silfurá Borginni Sjóðandi heitur þessa dagana. Veislusalir Iðu Þykja með þeim allra flottustu I Reykjavlk enda er útsýnið eins og bestverðurákosið. Thorvaldsen Bar Thorvaldsen erafar vinsæll meöal fasteignasala og þotuliðsins. Sólon Hefur verið einn vinsælasti bar miðborgarinnar I mörg Barinn Barinn ereinn af skemmtistöðum eigenda Ólivers. Victor Cafe Victor er upphafiö aö 101 Heildar-veldinu sem hófst fyrir 7 árum.. Iðnaðarmannahúsið við Hallveigarstíg Veislusalur I miðborginni, sem er mjög vinsæll fyrir alls konar veislur. Tapas-barinn Eini alvöru tapas- veitingastaðurinn I Reykjavlk. Barir í eigu Óliver-gengisins m gm t4 m D - '<mSm mBSm Qbar 1 Nýjasti bar Óliver- gengisins. 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.