Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 Helgin PV Eddan, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin, verða veitt á sunnudag. Tilgangur verðlaunanna er að heiðra þá sem skarað hafa fram úr á líðandi kvikmynda- og sjónvarpsári þótt fyrst og fremst séu þau íjöður sem kvikmyndagerðarmenn geta skreytt sig með við peningaöflun erlendis. Þessi fá Edduna Hér heima gerir Eddan tæpast annað en vekja athygli á því hversu lítill og óburðugur þessi bransi er. Flokkarnir eru skringilega saman settir og þar keppa tilnefndir aðilar um ein verðlaun fyrir gerólík verk- svið. Spurningin um hverjir keppa fyrir hönd fslands til óskarsverð- launa er það eina sem skiptir máli. Aðalvandamálið er þó hversu fáir sem tilheyra „akademíunni", sem hefur úrskurðarvaldið, taka þátt í valinu. DV fékk nokkra blaða- menn sem áhuga hafa á kvikmynd- um og sjónvarpsefni til að spá til Kvikmynd ársins „Að Mýrinni ólastaöri eru Born betri, en akademlan stendur frammi fyrir þvlað þurfa að gera upþ á milli ódýrs braut- ryðjendaverks eða alvöru stórmyndar og ætli sú stóra verði ekki ofan á.“ „Mýrin. Hún er áhorfendavænust hinna tilnefndu." „ „Ég segi Mýrin en akademían Born. '„Börn. Hún er einfaldlega þannig ^„Mýrin verður að teljast mynd ársins eri'da langt slðan nokkur mynd hefur dregið annan eins fjölda I bió." Leikstjóri „Ragnar væri llklega best að þessu kominn en hér verður ekki dtt viö ægivald Baitasars og Mýrarinnar." „Láttu ekki svona! Auðvitað Ragnar Bragason. f Ijósiþess að akademían og pöpullinn er sitt á hvorum enda ássins." „Baitasar Kormákur - Mýrin." „Ragnar Bragason, engin spurning." „Baltasar ætti að vinna þetta." um verðlaunaveitinguna. Áhuginn á Eddunni var hins vegar ekkert í samræmi við áhugann á kvikmynd- unum eða sjónvarpsefninu, eða viðlíka og hjá akademíunni sjálfri. Nokkrir létu þó til leiðast og voru tilbúnir að giska á úrslitin. Athygli vekur þó hve stuttmyndirnar eiga erfitt uppdráttar og þar verða sjón- varpsstöðvarnar að taka sig á. Kvik- myndabransinn hér er þó í örum vexti og nýtur vaxandi velvildar stjórnvalda. Aukin framlög til kvik- myndagerðar næstu ár er fagnaðar- efhi en betur má ef duga skal. 1 r Sjónvarpsþáttur ársins „Baráttan stendur milli Kompáss og Sjálfstæðs fólks en þetta fer að verða vandræðalegt af Jón Ársæll er með Edduna ffastri áskrift. Segi Kompás." „Þennan flokk skil ég alls ekki. Hver er munurinn á þætti ársins og skemmtiþætti ársins? Er þátturJóns Ársæls ekki skemmtiþáttur? Er Innlit-útlit ekki sjónvarpsmarkaður? Græna herbergið? Fyrstu skrefin? Hvað erþetta? Ég verð þvl að segja Kompás." „Kompásmenn eru I það minnsta að hreyfa við heitum málum, sem höfða til okkar blaðamanna, held með þeim." Skemmtiþáttur ársins „Aftilnefndum eru Strákarnir skemmtiiegastir og eiga þvíað taka þetta en þar sem netsvindi er ekki inni í myndinni gæti Jón tekið þetta á sjarmanum." „Jón Ólafs er náttúriega svo gúddi gæ að hann á alltafvið f góðu partíi." „Skemmtiþáttur ársins. Þetta eru ekki gæðaverðlaun heldur vinsælda svo sennilega fær KF Nörd þau verðlaun. Jón Olafs fengi gæðaverðlaun." „KFNörd sló algerlega ígegn og á þessi verðlaun fyllilega skilið." HVil H fiöi Vinsælasti sjónvarpsmaðurinn „Glsli Einarsson er ekta og höfðar til fjöldans með þvi að fara langt út fyrir staðlað piparkökukallaformið sem fslenskt sjónvarpsfólk er mótað eftir en hjarta þjóðarsálarinnarslærmeð Ómari um þessar mundir og hann rústar netkosningunni með virkjanaandófí slnu." „Hemmi Gunn." „Gfsli Einarsson er frábær og endurskapar Stiidur fyrir nýja kynslóð." > ÍTi JL ' Leikari ársins „Gísli Örn ætti að fá þetta en ætli Ingvar taki þetta ekki I Ijósi vinsælda Erlends og Mýrarinnar þótt hann eigiauðvitað nóg af þessu styttudóti fyrir." „Efmenn leika þroskahefta, bæklaða, skrýtna, aumingja... þá fá þeir verðlaun. Þannig að Ólafur Darri tekur þetta augljóslega." „Glsli Örn Garðarsson (ekki séð mynd- ina en allirsem ég tala við eru sammála um að hann sé besturj." „Gfsli Örn fer með tvö mjög óllk hlutverk i Börnum og er frábær I þeim báðum. Hann hiýtur hreinlega að vinna “ „Ingvar er alveg frábær sem Erlendur. Ég keypti hannalvegog skil ekki fólk sem segir hann ekki vera sannfærandi sem Erlendur." \ Leikið sjónvarpsefni ársins „Hér er úr vöndu að ráða. Stelpurnar eru I hressar og Frlmann i Sigtinu er ferskur og \ ég myndi slengja verðlaununum á hann." „EfSigtið færekkiþau verðlaun erþað I ekkertannað en hneyksli. Þetta er einfaldlega fyndnasta og ferskasta grin I sem sést hefur ísjónvarpi um áraraðir." „Ég hugsa að akademíunni þykisem tími sé kominn á Önnu Rögnvalds. Og þá er það Allir litir hafsins. Sjálfur hefði ég valið Sigtið, sem er reyndar stolið en Gunni Hans ersvo fyndinn." Heimildarmynd ársins „Jón Páll ruslar þessu upþ I krafti stærðar sinnar þótt myndin sé ekki gallalaus frekar enönnurmannannaverk." „Púff, auðvitað segjum við Ekkert mál. Hver þorir að messa I Úrsusinum?" „Ekki séð neina afheimildarmyndunum og'ekki einu sinni heyrt neinnar þeirra 9 IIjósi þess að myndin um Jón Pál gat dregið þúsundir I bíó verður að telja hana liklegasta. En hvar eru allir íslendingarnir sem eru að gera heimildarmyndir erlendis?" Útlit myndar „Óttar tekur þessa." „Epli og appeisinureða öllu heldur púrrulaukur og melónur. Hvernig á að vera hægt að bera þetta saman? Teiknimynda- dæmið skorar auðvitað alltafhátt afþvi að það hafa svo fáirvitáþvi. En KalliJúll hlýtur að vihna þetta. Hann ersvo flottur." „Þessi flokkur er reyndar útihött.Að bera saman kvikmyndatöku og leikmynd er fáránlegt." „Það eina góða við A Little Trip to Heaven var kvikmyndataka Óttars Guðnasonar og þess vegna vinnurhann." Leikari í aukahlutverki „Margrét Helga Jóhannsdóttir ætti að vera nokkuð örugg með þetta fyrir frábæra frammistöðu sína í Börnum." „Þótt akademíumenn þykist víðsýnirllta þeir mður á Stundina okkar. Margrét Helga er alltaf góð að giska áísvona dæmi - frábær leikkona og Ragnar virðist inni hjá akademíunni." „Margrét Helga er ótrúleg i hlutverki móður Olafs Darra og skapar átakanlega persónu þrátt fyrir fáar mínútur á hvíta tjaldinu." Stuttmynd ársins „Veðja á Önnu." 1 „Anna og skapsveiflurnar. Af þviað það 1 er teiknimynd." „Anna og skapsveifiurnar." „Anna og skapsveifiurnar. Hún er fru'mleg, með fíott lúkk og ekki spillirfynr 1 að fær rithöfundur skrifar handritið." „Anna og skapsveiflurnar er langlikleg- 1 ust til að vinna þennan flokk." 1 J J Hljóð og tóniist „Hér takast fóstbræður á en Pétur Þór er betur að þessu kominn en Itkurnar eru með Mugison." „Hér ernáttúrlega verið að bera saman epli og appelsínur. Mugison ernáttúrlega allra eftirlæti, Kjartan eryfírburðamaðurá sinu sviði En... Mugison erbesta bettið ísvona verðiaunaafhendingum." „Mugison fyrirMýrina - verðskuidað. Mjöq falleg vinna hjá honum þar.“ „Hljóðið og tónlistin ÍBörnum var til fyrirmyndar, bæði samspilið og gæðin. Pétur Þór vinnur i þessum fiokki." Innréttingamar eru sérsmíðaðar eftir þínum óskum. Þú ákveður viðartegund, höldur og innviði. Við teiknum, smíðum og setjum þær upp. Aðeins hágæða efni á verði sem hentar öllum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.