Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBEFt 2006 Helgin DV I »1*2 NÆRMYND Tvíburarnir, knattspyrnumenn- irnir, þjálfararnir, tisku- og fasteignakóngarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir hafa prýtt síður blaðanna síðasta áratuginn. Bræðurnir hafa verið að gera góða hluti á fasteignamarkaðnum upp á siðkastið og hafa verið á með- al vinsælustu piparsveina landsins en samkvæmt þeim sem til þeirra þekkja eru þeir alls ekki líkir þótt þeir séu báðir annál- aðir íjöl- skyldumenn. Samrýmdir Bræðurnir hafa alltafverið góðir vinir og samrýmdir i einu og öllu. Þeir eiga báðir tvö börn, stelpu og strák, og deila forræðinu með barnsmæðrum sínum. Samstiga tvíburar sem setja fjölskyíduna í fyrsta sætið Fótboltatvíburamir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir fæddust þann 6. mars árið 1973 og eru því 33 ára. Tvíburarnir fæddust og ólust upp á Akranesi en foreldrar þeirra eru Halldóra Jóna Garðarsdóttir kennari og Gunnlaugur Sölvason, starfsmað- ur íþróttahússins á Akranesi. Tvíbur- arnir eru elstir í bræðrahópi en Garð- ar bróðir þeirra hefur einnig getið sér gott orð sem knattspyrnumaður auk þess sem sá yngsti í hópnum, Rúnar, þykir efnilegur. Arnar og Bjarki hafa skreytt síður íslenskra tímarita í tíu ár enda hafa þeir getið sér gott orð sem knatt- spyrnumenn og þjálfarar og hafa upp á síðkastið látið til sín taka í ís- lensku viðskiptalífi. Bræðurnir þykja afar samrýmdir, virðast gera flest saman og eru samtaka í öðru. Garðar bróðir þeirra ber stóru bræðrum sínum góða söguna. „Ég leit auðvitað alltaf upp til þeirra," seg- ir Garðar en hann er tíu árum yngri en tvíburamir. „Þeir fóru út í lönd að spila þegar ég var tíu ára og ég ætl- aði mér alltaf að verða jafn góður í fótbolta og þeir. Þeir voru alltaf mjög góðir við mig en ég hugsa að ég hafi ekki alltaf verið góður við þá." Rammfalskir á árshátíð Amar og Bjarki eiga báðir tvö börn, strák og stelpu, og deila for- ræðinu með barnsmæðrum sínum. Báðir eru þeir annálaðir fjölskyldu- menn sem vilja allt fyrir börnin sín gera. „Tvímælalaust eru þeir miklir fjölskyldumenn. Ég efast um að það frnnist einhverjir sem eru meiri fjöl- skyldumenn en þeir og það er gaman Islandsmeistarar lA varð Islandsmeistari árið 1992. Á myndinni eru meðal annars Lúkas Kostic, Arnar Gunnlaugsson, Bjarki Gunnlaugsson og Þórður Guðjónsson. að fylgjast með þeim með börnunum sínum," segir Garðar bróðir þeirra. Ásdís Rán eiginkona Garðars og mágkona tvíburanna tekur undir þetta. „Þeir eru ofsalega miklir fjöl- skyldumenn og hugsa vel um börnin sín svo það er stórkostlegt að fylgjast með þeim. Einnig er mikið samband á milli þeirra, bræða þeirra og for- eldra þeirra, þetta er samrýmd fjöl- skylda," segir hún um mága sína. Þegar Garðar er inntur eftir skemmtilegri sögu af bræðrum sín- um nefnir hann skemmtiatriði á árs- hátíð barnaskólans á Akranesi. „Þeir tóku lagið 500 Miles með hljóm- sveitinni The Proclaimers á árshá- tíð í æsku og voru alveg rammfalsk- ir. Þetta þótti samt svo skemmtilegt að þeir voru beðnir um að taka lag- ið aftur," segir Garðar og bætir við að hann hafi séð upptöku af árshátíð- inni og hlegið að. Garðar segir bræður sína afar skemmtilega. „Þeir eru mjög hress- ir en mér finnst þeir ekkert líkir, nema að þeir eru báðir sköllóttir en þeir sem þekkja þá ekki rugla þeim saman. Bjarki er tvímælalaust með mun styttri þráð, hann er líkari mér og pabba en Arnar er með meira jafnaðargeð. Ef það gengur illa hjá Bjarka að setja eitthvað saman fær hluturinn að fjúka á meðan Arnar er mun rólegri." Garðar segir að það hafi verið mikið fjör á æskuheimilinu þrátt fyr- ir aldursmun bræðranna. „Það var mikið smð og hefur örugglega verið erfltt fyrir mömmu, hún hafði alla- vega nægan þvott að þvo." Hetjur frá barnsaldri Arnar og Bjarki eyddu æskuár- unum á Akranesi þar sem líf- ið snérist um fótbolta. Vegna hæfileika sinna á því sviði urðu þeir fljótlega hetjur bæjarins og vinsæl- ir meðal krakkanna og sérstak- lega stel nanna. Þeirsen þekkja þá best segja þá al i af hafa verið nána og bestu vini hvors annars þótt félagarnir hafi aldrei verið langt undan. „Þeir hafa alltaf verið góðir vinir. Það er allt- af stutt í hinn ef annar birtist," seg- ir Rósant Birgisson sem hefur verið besti vinur bræðranna frá unglings- aldri og tekur undir að þeir séu mikl- ir fjölskyldumenn sem haldi góðu sambandi við foreldra sína. Tvíburarnir hafi oftast verið í sama liðinu og því hafi þeir ekki keppt á móti hvorum öðrum. Þeir séu hins vegar miklir keppn- ismenn. „Ef þeir voru ekki sam- i í liði héldu þeir náttúru- lega allt- af með hvorum öðrum. En þeir eru mikl- keppnis- menn sem sést best í golfinu þar sem þeir eru miss- lakir," segir Rósant vinur þeirra. Atvinnu- mennsk- an kitlaði strákana og þegar þeir voru aðeins 17 ára fóru þeir út tíl Hollands og spiluðu með liðinu Feyenoord þar sem ballið byrjaði en Arnar hefur einnig spilað með enska liðinu Bolton, þýska liðinu FC Nu- remberg, franska liðinu Sochaux, ensku liðunum Leicester City og Stoke City og skoska liðinu Dund- ee United og Bjarki með enska lið-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.