Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2006, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 Helgin DV PV Helgin FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 51 BARNABÆTUR Barnabætur eru að mestu tekjutengdar en ekki eignatengdar. Þær eru ákvarðaðar eftir skattframtali og greiddar eftir á. Barna- bætur eru greiddar með börnum til 16 ára aldurs. Óskertar barnabætur hjóna eru: Með fyrsta barni 139.647 kr. Með hverju barni umjram eitt 166.226 kr. Viðbót vegna barna yngri en 7 ára 46.747 kr. Óskertar barnabœtur einstæðraforeldra: Með fyrsta barni 232.591 kr. Með hverju bami umfram eitt 238.592 kr. Viðbót vegna barna yngri en 7 ára 46.747 kr. Nánari upplýsingar máfinna á vefsíðu ríkisskattstjóra, rsk.is. FÆÐINGARORLOFOG FÆÐINGARSTYRKUR Tryggingastofnun ríkisins annast greiðslur á fæðingar- og for- eldraorlofi til foreldra þegar um er að ræða: Fæðingu, frumættleiðingu barns yngri en átta ára, töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði fá foreldrar sem hafa verið samfellt í starfi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæð- ingu barnsins. Starfshlutfall í hverjum mánuði þarf að hafa verið 25 prósent hið minnsta. Fæðingarstyrk fá þeir sem hafa verið utan vinnumarkaðar, það er í minna en 25 prósent starfi. Skilyrði fyrir því að eiga rétt til fæð- ingarstyrks er að eiga lögheimili hér á landi við fæðingu barns og hafa átt það síðustu 12 mánuði þar á undan. Fæðingarstyrkur foreldris utan vinnumark- aðar eða í minna en 25% starfi er 41.621 kr. á mánuði. Fæðingarstyrkur foreldris í fullu námi er 93.113 kr. á mánuði. Ekki er heimilt að stunda vinnu á sama tíma og greiðslur fæðingarstyrks eiga sér stað. Nánari upplýsingar má finna á síðu Tryggingastofnunar ríkisins tr.is ORLOFSRÉTTUR FORELDRA Hvort foreldri á rétt á að fá greitt úr orlofs- sjóði í þrjá mánuði, sá réttur er óframseljanleg- ur. Saman fá þeir svo þrjá mánuði til viðbótar sem annað foreldrið getur tekið í heild eða þeir skipt á milli sín. Skilyrðin fyrir orlofi er að leggja niður störf. Réttur til fæðingarorlofs/fæðingarstyrks fellur niður við 18 mánaða aldur barns. Nánari upplýsingar má svo flnna á síðu Tryggingastofnunar ríkisins tr.is DAGGÆSLA Þegar foreldri byrjar að feta sig aftur á vinnumarkaði eftir að barn er komið í heim- inn er það sjaldnast komið á leikskólaaldur. Þangað til dvelur bamið því yfirleitt hjá dag- foreldri, það getur reynst þrautinni þyngra að finna þá nú til dags. Dagforeldrar hafa frjálsa gjaldskrá. Af símtölum við þjónustumiðstöðvar Reykja- víkurborgar kom þó í ljós að verð fyrir gæslu og fæði fyrir eitt barn sem dvelur í um það bil átta tíma á dag er venjulega á bilinu 40- 45 þúsund kr. Sveitarfélög niðurgreiða þessa upphæð svo misjafnlega mikið og má finna upplýsingar um þær upphæðir á vefsíð- um sveitarfélaga en til dæmis má nefna að Reykjavík niðurgreiðir 21.600 kr. af upphæð- inni. LEIKSKÓLAGJÖLD Flest börn dvelja á leikskólum yfir daginn. Gjaldskrá leikskólanna má finna á heimsíð- um sveitarfélaga en ef miðað er við verðið í því fjölmennasta, það er Reykjavík, greiðir par í sambúð 18.810 kr. fyrir eitt bam sem dvelur í átta tíma á leikskóla. Sé annað foreldrið í námi er upp- hæðin 15.330 kr. en einstæðir foreldrar greiða 11.250 kr. ÖMÆLANLEG GLEÐINÝBAKAÐRA F0RELDRA YFIR KRAFTA VERKINU SÍNU MEÐLÖG FÆÐINGA RSTYRKIR BARNABÆTUR Það að eignast barn getur verið erfið ákvörðun. Að mörgu þarf að huga ekki síst varðandi fjárhag þótt dæmin sanni að allt er hægt sé viljinn fyrir hendi. Á fólk að láta vaða og leiða lítinn einstakling inn í tilveruna eða ætti það heldur að huga að verjum og varnaðarorðum? DV tók saman nokkra þætti sem ber að huga að í sambandi við barneignir. MEÐLAG Lágmarksupphæð meðlags, smndum kallað einfalt meðlag, er núna 17.249 kr. á mánuði fyrir hvert barn. Það er ekki heimilt að semja um lægri upphæð en fólki er frjálst að semja um hærri greiðslur, til dæmis eitt og hálft meðlag eða tvöfalt meðlag. Beiðni um slíkt er þá metin út frá tekjum foreldranna. Meðlag skal greiða með barni til 18 ára aldurs. Taki fólk ákvörðun um að greiða einfalt meðlega er upphæðin á ári 206.988 kr. á ári. Eftir átján ár verður upphæðin orðin rúmlega 3,7 milljónir kr. FAÐERNISPRÓF Sé óvissa um faðemi barns er svokallað faðernispróf venjulega gert. Ferlið sem því fylgir hefst oft á meðgöngu þar sem hin verð- andi móðir getur fyllt út umsókn þess efnis að hún vilji að tekið verði blóð úr naflastreng barnsins við fæðingu sem síðar er notað til þess að ganga úr skugga um faðerni. Blóð er þá tekið við fæð- inguna og geymt fyrir DNA-rannsókn. Eftir að barnið er fætt fyllir móðirin út yfirlýsingu um hver fað- irinn er og er það gert hjá sýslumanni. Sýslumaður sendir síðan meintum föður pappíra til undirritunar sé hann samþykkur. Neiti maðurinn að vera faðir barnsins þarf hann að fara í blóðprufu til að hægt sé að gera á honum DNA-erfðaefnisrannsókn sem síðan er borin saman við erfðaefnið úr blóði barnsins. Rannsóknin get- ur tekið um það bil þrjá mánuði. Reynist viðkomandi maður vera faðir barnsins þarf hann að borga rannsóknina sem kostar á bilinu 120 til 130 þúsund krónur. Þessi upphæð er endurgreidd sé hann ekki faðir barnsins. Nánari upplýsingar má til dœmisflnna á síðunni doktor.is 0G BARN Grunnffamfærsla á íslandi er 87.400 krón- ur á mánuði samkvæmt upplýsingum á heima- Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Grunn- ifærsla hækkar um 39.300 kr. fyrir hvert barn vegna náms. 0G MEÐL0G Námsmaður getur sótt sérstaklega um við- bótarlán vegna meðlags, sem hann greiðir svo sannanlegt sé. Þegar veitt er lán vegna meðlags, greiðir sjóðurinn meðlag beint til Innheimtu- stofnunar sveitarfélaga. Lánað er vegna meðlags á námstíma 17.500 kr. á mánuði. ÓMÆLANLEGUR K0STNAÐUR Sumum fjárútlátum er ekki hægt að gera ráð fyrir nema að tak- mörkuðu leyti. Undir slíkt flokkast vinnutap eða hlé á námi. And- vökunætur sem taka á. Veikindi, ferðir á læknavaktina, lyf. Bensín- kostnaður vegna ferða til og frá leikskóla og fleira og fleira. ÓMÆLANLEGUR GRÓÐI Fáir foreldrar gráta þá peninga sem þeir verja í börn sín en telja þann gróða sem afkvæminu fylgir ómetanlegan. STARTKOSTNAÐUR Útsjónarsemi er fólki mikilvæg, ekki síst foreldrum. Ekki er hægt að slá á eina tölu því margir foreldrar hafa kosið að nota gamla rúmið sem það hvildi sjálft í sem barn í stað þess að festa kaup á dýrustu vöggunni í bænum. Að- itandendur eru líka misviljugir að hjálpa tíl og því getur oft verið hagkvæmt að semja frið við leiðinlega vanda- menn. 0G BARN Pör með eitt barn eða einstæðir foreldrar geta sótt um stærri íbúðir á Stúdentagörðum. Reglur eru mismun- eftir skólum en sé miðað við að fólk sæki um nám við Háskóla íslands getur barnafólk sótt um tveggja her- á Hjónagörðum og Vetrargörðum. Fólk með eða fleiri, eða barn eldra en 4 ára, getur sótt um þriggja herbergja íbúðir. Fjögurra herbergja íbúðin er fyrir stærri fjölskyldur og eru umsóknir þar um meðhöndlað- ar sérstaklega. ANDVÖKUNÆTUR 0G FERÐIR TIL OG FRÁ LÆKNUM LEIKSKÓLAGJÖLD MEDLÖG ___• STARTKOSTNADUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.