Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1960, Síða 9

Freyr - 15.04.1960, Síða 9
FRE YR 113 Þessari lagasetningu ríkisstjórnarinnar var mjög hampað af sumum talsmönnum henn- ar, sem einhverju því þarfasta sem stjórnin hefði aðhafzt. Voru allmargir farnir að trúa því, að hækkun á landbúnaðarvörum kæmi ekki til mála. Störf hinnar nýkjörnu sexmannanefndar byrjuðu snemma í janúarmánuði eins og fyrr segir. Gengu þau heldur seint til að byrja með og bar margt til þess og þó fyrst og fremst, að starfssvið nefndarinnar hafði verið fært út allverulega eins og áður er sagt. Sennilega hefur og gætt nokkurrar tortryggni hvors nefndarhluta í annars garð, þótt það væri ekki að ráði. Um tíma var ekki hægt að gera sér grein fyrir því, að til nokkurs samkomulags drægi í sexmannanefndinni og að engra kosta væri völ annarra en að vísa málinu til yfirnefndar. En þrátt fyrir allt fór þó svo, að samkomulag náðist um verðlagsgrundvöll, sem gildir frá 1. sept. 1959 til 1. sept. 1960. Verðlagsgrund- völlurinn hækkar um 2.85% í heild. Ríkis- stjórnin hefur ákveðið að greiða þessa hækk- un frá 1. sept. s.l. Mun ég þá fara nokkrum orðum um verðlagsgrundvöllinn. Það er skoðun mín, að í hinum nýja verð- lagsgrundvelli sé gjaldahliðin vel viðunandi í heild, miðað við bústærð. Að vísu hefðu full- trúar framleiðenda skipt nokkuð á annan hátt niður hinum einstöku gjaldaliðum, t. d. fært á milli áburðarliðsins og véla — lækkað á- burðarliðinn og hækkað vélaliðinn. Er það meira í samræmi við hina ahnennu eyðslu, eins og hún kemur fram í búnaðarskýrslum. Fóðurbœtisliðurinn er ákveðinn þannig, að kúnni er ætlað 400 kg. og kindinni 10 kg. Má telja þetta sæmilegt miðað við afurðaáætlun- ’na, að minnsta kosti á nautgripabúinu. Áburðinn er erfiðara að áætla, t. d. hvað þurfi að bera á við almenn skilyrði fyrir hv. 100 h.b. töðu. Er það að sjálfsögðu mjög breytilegt eftir ræktunarástandi túnanna, jarðvegi o. fl. Viðhald fasteigna er liður, sem lítið breyt- ist árlega. Tekur hann breytingum eftir verði á timbri, þakjárni og málningu. Liðurinn fær ekki mikinn stuðning í framtölum bænda, sam- kvæmt búnaðarskýrslum. Viðhald girðinga, sem er í búnaðarskýrs) unni í liðnum annar reksturskostnaður, va\ gerður að sérstökum lið í verðlagsgrundveJ)- inum fyrir nokkrum árum og tekur breyting um eftir verðbreytingum á timbri og gadda vír. Flutningskostnaður er fundinn af tveim liðum, eftir flutningatöxtum kaupfélaganna — Arnesinga — Borgfirðinga — Evfirðinga og Héraðsbúa, og eru flutningataxtar þessara fé- laga notaðir til þess að finna verðbreytingar, þegar hagstofustjóri reiknar út verðlags- grundvöllinn. Hins vegar hefur líka verið stuðzt við það að áætla flutningaþörfina mið- að við 50 km. leið, með tilliti til þess magns, sem þarf að flytja að og frá búinu. Vaxtaliðurinn hefur hækkað allverulega. Sem undirstaða vaxtareikningsins er notað skattmat á búpeningi. Fjós reiknuð kr. 5000.00 á kú með heygeymslu, kr. 500.00 yfir kind, sömideiðis með heygeymslum. Jarðarverð án húsa sem næst fasteignamati. Vélar og áhöld kr. 60.000.00. Skuldir kr. 87.679.00. þar af skuldir við Ræktunarsjóð kr. 40.679.00, vextir reiknaðir af Ræktunarsjóðsláni kr. 1.528.00, af öðrum skuldum kr. 3.290.00 og af eigin fé kr. 6.796.00, sem er með 3.43%. Annar reksturskostnaður. Undir þennan lið kemur margt, sem ekki er rúm til að telja hér, þar á meðal lækningar og meðul búfjár, bað o. fl. Sala á bráðapestarbóluefni, garnaveikis- bóluefni og allskonar serum, sem er selt frá Rannsóknarstofu Háskólans og frá Keldum, nam kr. 2.434.637.00 árið 1959. Að auki eru

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.