Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.04.1960, Qupperneq 13

Freyr - 15.04.1960, Qupperneq 13
FRE YR 117 Um íslenzk hreindýr Níels Fuhrmann, amtmaður, sem kom til ís- lands árið 1718 og andaðist að Bessastöðum 10. júní 1733, er fyrir annað frægari i sögu þessa lands en afskipti sín af hreindýrum. Þó hafði hann í hyggju að láta flytja þau hing- að. Er þessa getið i lýsingu Kjcsarsýslu (Kjose Syssels Descriptio geographica), dagsettri 28. apríi 1746, eftir J. Hjaltalín. Sú lýsing er þannig til orðin, að J. L. Holstein, greifi, aðal- ráðgjafi konungs og forseti hins nýstofnaða danska vísindafélags, lagði fyrir J. Lafrentz amtmann í bréfi 8. júní 1743 að láta hina hæfustu menn á Islandi semja svör við nokkrum spurningum um landið og náttúru þess og öðrum þeim spurningum, er amtmanni sýndist við að auka „hans hátign konungin- um til eftirlætis og ánægju og alþjóð til nytja.“ Birti amtmaður þenna boðskap á Alþingi um sumarið og fól sýslumönnum að gera lýsingar héraða þeirra, er þeir voru yfir settir. í einni hinna 16 sýslulýsinga, sem þannig urðu til, lýs- ingu Kjósarsýslu, segir, að Fuhrmann amtmað- ur hafi ætlað sér að flytja hreindýr til lands- ins, en eigi enzt aldur til að fá því framgengt. En Páll lögmaður Vídalín er þó sennilega hinn fyrsti, sem varpar fram hugmyndinni um inn- flutning hreindýra. Bendir hann á í riti sínu Deo, regi, patriæ, sem skrifað er árið 1699 á latinu, en kom út á dönsku í Sorö 1768 að ráð- legt væri að selja hesta úr landi, en kaupa síð- an hreindýr í Finnmörku fyrir hagnaðinn og flytja til íslands í tilraunaskyni, því að þau gætu orðið í mesta máta gagnleg, ef þau þrif- ust hér. Af framkvæmdum varð þó ekki í þessu efni, hvorki um daga Páls Vídalíns né Fuhrmanns. En 19. janúar 1751 var gefin út í Kristjáns- borgarhöll konungleg tilskipun varðandi flutn- ing hreindýra til íslands. Hafði Rentukamm- erið hinn 11. sama mánaðar gert um þetta til- lögu, eftir að Hans Wíum, sýslumaður að Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri. Skriðuklaustri, Þorsteinn sýslum. Sigurðsson, síra Hjörleifur Þórðarson, síra Magnús Guð- mundsson og Árni lögréttumaður Þórðarson höföu lagt til, að reynt yrði, hvort hreindýr gæcu lifað hér. Ef svo reyndist, myndu þau geta orðið íbúum landsins til mikils gagns, þar ej heyöflun brygðist iðulega. Segir ennfremur í rökstuðningi fyrir málinu, að Rantzau, stipt- amtmaður íslands, álíti að rétt muni að kaupa fjögur kvendýr og tvö karldýr í Noregi og flytja dýrin í aprílmánuði til Friðriksstaðar og þaðan til Eyrarbakka. Er kostnaður við þetta áætlaður 40 ríkisdalir. Rentukammerið ritaði síðan Lövenhjelm amtmanni í Bratzbergamti í Noregi og fól hon- um að kaupa fjögur kvendýr og tvö karldýr fyr- ir reikning konungs og senda á því ári með skipi verzlunarfélagsins til Eyrarbakkahafnar. Er Rantzau, greifa, stiptamtmanni, tilkynnt þetta í bréfi 23. janúar 1751. En af bréfi Rentu- kammersins til J. C. Pingel, amtmanns, 24. apríl s. á. sést, að Lövenhjelm hefur svarað fyr- irmælum þessum á þann veg 22. marz, að eigi hafi þá reynzt unnt að handsama hreindýrin vegna óvenjumikils fannfergis. Hefur Rentu- kammerið þá falið honum að láta taka dýrin fyrir næsta vor og senda til Islands með Bakkaskipi. Segir Rentukammerið ennfremur í bréfi til Pingels, að þegar það hafi fengið til- kynningu um, að búið sé að handsama dýrin, muni það athuga nánar, hvort orðið skuli við þeim tilmælum, að ef hreindýrin verði aðskil- in, skuli helmingur hópsins afhentur Magnúsi lögmanni Gíslasyni og þau flutt til vestur-

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.