Freyr

Årgang

Freyr - 15.04.1960, Side 19

Freyr - 15.04.1960, Side 19
FREYR 123 gang verið mjög á reiki. Sumir hafi haldið, að þau skiptu hundruðum, næðu jafnvel þúsundi, en aðrir álitið, að þau væru fremur fá. Sumir teldu þeim fara fjölgandi, en aðrir að þeim fækkaði stöðugt. En þeir, sem tóku þátt í leið- angrinum, telja nokkurnveginn öruggt, að þeir hafi komizt að því, hve mörg hreindýr hafist við á þessum slóðum. Segja þeir dýrin um eitt hundrað, þar með taldir kálfar. Er því aug- ljóst, segir flutningsmaður, að hreindýrunum hafi mjög fækkað undanfarin ár og að þau séu orðin mun færri en menn gerðu ráð fyrir. Virðist hætta á, að dýrin deyi út hér á landi, og sé það hinn mesti skaði og skömm. Enn sé ekki að fullu athugað, hvern hag landsmenn gætu haft af hreindýrunum, ef rétt væri að farið. — Ég vil skjóta því hér inn í, að árið 1901 voru hreindýrin á öllum Fljótsdalsöræfum álitin 50 samtals. — Landbúnaðarnefndir beggja þingdeilda fengu hreindýrafrumvarpið til meðferðar og lögðu til, að það yrði sam- þykkt óbreytt. Urðu litlar umræður um málið á þingi, og var frumvarpið afgreitt óbreytt sem lög frá Alþingi 22. desember 1939 og staðfest af konungi 12. febrúar 1940. Með lögunum eru hreindýrin friðuð, en ráðherra þó heimilt að láta veiða hreintarfa, ef sérstök ástæða virðist til, en talið var, að þeir væru óheppilega marg- ir. Haldið var heimildinni frá 1927 til að hand- sama dýr til eldis. Heimilað var að skipa sér- stakan mann eða menn til aðstoðar yfirvöld- um landsins við eftirlit með því að lögunum sé hlýtt og til þess að hafa eftirlit með hrein- dýrunum. Greiðist kostnaður við þetta úr rík- issjóði. 1 lögunum var haldið því ákvæði, að sektir fyrir brot skyldu hálfar renna til uppljóstrar- manns. í sambandi við þetta ákvæði kom fyr- ir spaugilegt atvik endur fyrir löngu. Maður, sem skotið hafði dýr ólöglega, fór til hlutað- eigandi valdsmanns, játaði á sig brotið og krafðist hálfs sektarfjárins fyrir uppljóstrun- ina! Aðdragandi lagasetningarinnar var sá, að sumarið 1939 ritaði Eysteinn Jónsson, er þá var viðskiptamálaráðherra, Helga Valtýssyni, rithöfundi, og Eðvarð Sigurgeirssyni, ljós- myndara á Akureyri, og hét þeim nokkrum fjárstyrk úr ríkissjóði til þess að gera leiðang- ur um Fljótsdals- og Mývatnsöræfi, rannsaka fjölda hreindýra og annað, sem máli skipti í því sambandi, og skyldu þeir síðan gefa ríkis- stjórninni skýrslu um málið. Má lesa um ferð- ina í bókinni „Á hreindýraslóðum", er Helgi Valtýsson ritaði og út kom hjá bókaútgáfunni Norðra h.f. árið 1945. Er bókin prýdd mörg- um ágætum myndum eftir Eðvarð Sigurgeirs- son. Þetta „tarfafækkunarfrumvarp" Eysteins Jónssonar varð Eiríki alþingismanni Einars- syni yrkisefni. Lætur hann hreinkú kveða svo við dóttur sína: „Minnugur skyldir þú, meyhreinn, manns þess, sem heitinn er Eysteinn; tók hann í taumana þar sem tarfarnir áttu sér harem.“ Að lögunum samþykktum var Friðrik Stef- ánsson, bóndi að Hóli í Fljótsdal, skipaður eft- irlitsmaður með hreindýrunum 7. ágúst 1940. Hann er þaulkunnugur á öræfunum, ágæt skytta og mikill ferðamaður. Friðrik gegndi eftirlitsstarfinu til ársins 1956, en 24. ágúst það ár var Egill Gunnarsson á Egilsstöðum í Fljóts- dal skipaður eftirlitsmaður, og hefur hann gegnt því starfi síðan með mestu prýði eins og fyrirrennari hans. Eftirlitsmanninum var sett erindisbréf. Átti hann samkvæmt því m. a. að tilgreina árlega í skýrslum fjölda hreindýranna, hvernig þau þrifust og annað það, er hann teldi ástæðu til að geta um. Má segja, að unnt hafi verið nokkurnveginn að framkvæma talningu dýr- anna meðan þau voru mjög fá, en alls ekki með nokkurri nákvæmni eftir að þeim fjölg- aði til muna. Talning dýranna er ofætlun eft- irlitsmanninum eftir að þau fóru að vera í stórhópum á ýmsum stöðum. Gengið hefur verið út frá, að hreindýrin hafi verið um eitt hundrað árið 1939. Er ekki að efa, að sú talning hefur verið gerð af mikilli samvizkusemi. Hitt er jafnaugljóst, hve erfitt er fyrir gangandi eða ríðandi menn að telja dýr, sem ber jafn hratt yfir og hreindýr. En á síðari árum hafa dýrin verið talin úr flugvél eða eftir ljósmyndum, teknum úr flugvél. Fer hér á eftir yfirlit um fjölda dýranna eftir skýrslum hreindýraeftirlitsmanns, árið 1956

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.