Freyr - 15.04.1960, Page 20
eftir talningu úr flugvél og 1957 og síðan eftir
ljósmyndum, teknum úr flugvél:
Árið 1940 150 hreindýr
— 1941 rúml. 230 —
— 1942 — 300 —
— 1943 — 383 —
— 1944 — 430 —
— 1945 — 520 —
— 1946 um 610 '
— 1947 rúml. 820
— 1948 um 1000 —
— 1949 — 1335 —
— 1950 — 1610 —
— 1951 vantar
— 1952 vantar
— 1953 vantar
— 1954 — 2000 —
— 1955 — 2000 —
— 1956 — 1380 —
— 1957 — 1790 —
— 1958 — 1882 —
— 1959 — 2376 —
í sumum skýrslum sínum tekur eftirlitsmað-
ur fram, að talningin sé ekki nákvæm, og eru
þau ummæli því oftar endurtekin, sem dýrun-
um fjölgar meir.
Árið 1956 fékk ráðuneytið Björn Pálsson,
flugmann, til þess að fljúga yfir hreindýra-
svæðið og telja dýrin. Var ferð þessi farin 10.
og 11. október. Voru þeir með í flugvélinni fyrri
daginn Friðrik Stefánsson, fv. eftirlitsmaður,
Egill Gunnarsson, eftirlitsmaður og Erlendur
Björnsson, sýslumaður Norður-Múlasýslu. Lúð-
vík Ingvarsson, sýslumaður Suður-Múlasýslu,
gat ekki komið því við að vera með.
Flogið var yfirleitt í 100—200 metra hæð og
sáu leitarmenn úr þeirri hæð m’ög greinilega
yfir, t. d. sauðfé og rjúpur, og telur flugmaður-
inn, að engar líkur séu til, að hreindýr hafi
lsynzt fyrir þeim svo að nokkru næmi. Engin
dýr sáust utar en við Álftavatnshæðir, en eftir
það sáust hreindýr dreift um Fljótsdalsheiði,
allt inn að Snæfelli, á Vestur-Öræfum og í
Kringilsárrana. Flogið var sunnan við Snæfell
úr Kringilsárrana með Eyjabökkum að Kelduá,
en báðum megin við ána voru hreindýr og á
múlanum milli Kelduár og Jökulsár voru
nokkrir smáhópar. Síðan var flogið út með
Hraungarði og Hallormsstaðahálsi, en þar sá-
ust engin dýr. Töldu þeir félagar sig hafa séð
á þessu flugi 883 hreindýr.
Næsta dag flaug Björn Pálsson yfir það
svæði, sem komið gat til greina að hreindýr
héldu sig á, en eigi var kannað fyrri daginn,
þ. e. öræfin inn af Skriðdal, Breiðdal, Beru-
firði, Fossárdal og Hamarsfirði. Sáu þeir á
þessu flugi 78 dýr. Lenti flugvélin á Djúpavogi
til að mæla fvrir sjúkraflugvelli, en hélt svo
á ný til Egilsstaða, og kannaði síðan svæðið
sunnan Bessastaðaár og austan Gilsárvatna.
Sáust þar 58 dýr í tveimur hópum. Skammt
norður af Snæfelli sáust tveir hreindýrahóp-
ar, um það bil 60—70 dýr, sem gátu hafa
verið talin daginn áður. Samtals sáu leiðang-
ursmenn þessa tvo daga 1019—1089 hreindýr.
Nokkru fleiri dýr kunna að sjálfsögðu að hafa
verið eystra, en naumast hafa mörg dulizt fyr-
ir talningarmönnum. Er ekki líklegt, að dýrin
hafi verið fleiri en 1089. Þá var búið að fella
300 dýr, svo að um haustið hafa þau þá verið
1389. Skýtur þetta mjög skökku við það, sem
menn höfðu áður haldið, því að þegar árið
1954 var fullyrt, að dýrin væru um og líklega
a.llmikið yfir 2000. Sumir fullyrtu, að dýrin væru
þá þegar um þrjú þúsund.
Að beiðni menntamálaráðuneytisins flaug
Björn Pálsson yfir hreindýrasvæðið í talning-
arerindum 8. júlí 1957. Voru þeir þá með hon-
um sýslumennirnir Erlendur Björnsson og
Lúðvík Ingvarsson, svo og hreindýraeftirlits-