Freyr

Årgang

Freyr - 15.04.1960, Side 21

Freyr - 15.04.1960, Side 21
FREYR 125 maðurinn, Egill Gunnarsson. Voru nú teknar myndir af dýrunum og síðan talið eftir þeim. Reyndust dýrin á myndunum 1668. Tuttugu og sjö dýr sáu þeir þar að auki og fréttu til sex, — samtals 1701 dýr. Þegar dýrin voru talin á sama hátt næsta ár, 21. júlí 1958, reyndust þau 1882. Við talningu eftir ljósmyndum, teknum úr flugvél 13. júlí 1959, reyndust dýrin vera 2376. Á 20 árum hefur hreindýrunum þá fjölgað úr um það bil 100 í 2376, þrátt fyrir nokkra veiði. Má það teljast góður árangur. Til þess að laga nokkuð óhagstætt hlutfall milli fjölda karl- og kvendýra i hreindýra- hjörðinni var heimildin i lögum frá 1940 til fækkunar hreintörfum notuð sem hér segir: Árið 1940 Engin fækkun — 1941 — — — 1942 — — — 1943 13 hreintarfar felldir — 1944 20 — — — 1945 38 — — — 1946 18 — — — 1947 24 — — — 1948 30 — — — 1949 49 — — — 1950 53 — — — 1951 64 — — — 1952 60 — — — 1953 50 — — Hreindýrunum fór brátt að fjölga upp úr 1940, hvort sem tarfafækkunin hefur átt í því mikinn þátt eða lítinn. Hitt er hafið yfir allan efa, að starf hreindýraeftirlitsmanna hefur verið mjög þýðingarmikið, t. d. í þá átt að tryggja, að friðun dýranna væri virt. Um 1953 tóku dýrin að dreifast nokkuð á þær slóðir, sem þau gengu á fyrrum, meðan margt var um þau, svo sem í Skriðdal, Fossár- dal, Hamarsdal, Hofsdal og Víðidal, auk þess sem þau gengu út alla Fljótsdalsheiði og jafn- vel út á Fjarðarheiði og Fagradal. Ekki hefur þess þó orðið vart, að þau leituðu á öræfi Þingeyjarsýslna. Við fjölgun dýranna hófust kvartanir um að þau spilltu beitilöndum og búfjárhögum. Voru þau líka orðin svo mörg, að tímabært var að gera sér grein fyrir, á hvern hátt þau yrðu hagnýtt. Var augljóst, að ef ekki yrði að gert, myndi dýrunum fjölga svo innan tíðar, að sami leikur hæfist og jafnan áður, þegar þeim fjölgaði mjög, að allir teldu syndlaust ef ekki sjálfsagt að veiða þau og ganga þá svo hóf- laust fram, að stofninum gæti orðið hætta bú- in áður en varði. Menntamálaráðuneytið taldi þvi tímabært á árinu 1954 að leggja til við Alþingi, að hrein- dýralögunum frá 1940 yrði breytt, þannig að heimild til hreindýraveiða yrði gerð víðtækari. Myndi stofninn nú þola verulega aukna veiði, en það ætti aftur á móti er stundir liðu að sýna fram á arðsemi dýranna. Kjöt þeirra og skinn er góð vara, ef vel er verkað, og íslenzku dýr- in eru talin hafa öllu meiri kjötþunga en norsku dýrin. Stefnt var að því frá upphafi, að bændur, sem lönd eiga að aðalbithaga dýr- anna, nytu fyrst og fremst arðs af veiðunum, enda mikið undir því komið, að þeir vilji ekki hreindýrastofninn feigan. Þar næst ættu sveitar- og sýslufélög Norður- og Suður- Múlasýslu að njóta arðs af dýrunum, því að þau rása vítt um. 1 samræmi við þetta var lagt fyrir Alþingi í aprílbyrjun 1954 stjórnarfrumvarp um breyt- ing á lögum nr. 28/1940, um friðun hreindýra og eftirlit með þeim. Var það frumvarp sam- þykkt á þinginu óbreytt 13. apríl og lögin stað- fest af handhöfum forsetavalds 24. sama mán- aðar og eru nr. 72/1954. Þar sem lögin um frið- un hreindýra og eftirlit með þeim (nr. 28/1940) með áorðnum breytingum (nr. 72/1954) eru stutt, fara þau hér á eftir í heilu lagi: 1. gr. Hreindýr skulu friðuð fyrir skotum og öðr- um veiðivélum. Nú telur eftirlitsmaður hrein- dýra, að þeim hafi fjölgað svo, að stofninum stafi eigi hætta af veiðum, og er ráðherra þá rétt að heimila veiðar, enda skal hann þá setja reglur um veiðarnar, að fengnum tillögum hlutaðeigandi sýslumanna og eftirlitsmanns, og kveða á um, hvert renna skuli hagnaður, er verða kann af veiðunum. Heimilt er ráðherra að veita mönnum leyfi til að handsama dýr til eldis. 2. gr. Ráðherra er heimilt að skipa sérstakan mann eða menn til aðstoðar yfirvöldum landsins við

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.