Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.04.1960, Qupperneq 29

Freyr - 15.04.1960, Qupperneq 29
FRE YR 133 norsku Finnmörku er ekki einungis Löppum, heldur öllum, heimilt að hafa hreindýr á þeim svæðum, þar sem hreindýrahald er á annað borð leyft. Álitið er, að lágmarkstala hreindýra, sem meðal Samafjölskylda, hjón með 2 börn, geti lifað af, séu 200 dýr. En í Svíþjóð eru þeir hreindýrabændur taldir allvel efnum búnir, sem eiga 3—400 dýr. Fullyrt var hvarvetna, segir Guðmundur Þorláksson í skýrslu sinni, að hreindýr nagi aldrei börk af trjám, bíti aldrei sprota af barrtrjám og valdi yfirleitt engum skemmdum á skóglendi. Hinsvegar éti þau nýja sprota af víði og e.t.v. alveg ný blöð af fjalldrapa. Hið síðasta þó vafasamt, þar sem þau þola illa harpix. 1 Noregi eru sérstakir eft- irlitsmenn með „sport“-veiði og sérstök leyfi eru gefin út til veiðanna. Ákveðnar reglur gilda um skotvopn, t. d. má eigi nota fjölskotariffla og kúlur skulu vera með blýoddi. Veiðimaður verður að hafa sýnt vissa skothæfni áður en hann fær veiðileyfi, þ. e. gengið undir próf í skotfimi. Þurfa eftirlitsmenn að viðurkenna bæði skotfimi og skotvopn veiðimanns. Gjald fyrir veiðileyfi er mismunandi. Bændur, sem næst búa svæðunum þar sem dýrin ganga, fá ódýrari veiðileyfi en þeir, sem fjær búa. Lægsta gjald er tíu norskar krónur fyrir allt að þrjú dýr, og er slíkt leyfi einungis veitt bændum, sem taiið er að verði fyrir miklum ágangi af dýrunum. Annars er gjald fyrir leyfi til að fella eitt dýr, frá 100—300 norskar krónur. Bændur eiga veiðirétt á jörðum sínum og ráða sjálfir verði á veiðileyfi þar. Veiðiaðferðir bænda hafa verið þannig, að þeir, sem veiðileyfi hafa, fara margir saman með dráttarvél inn á veiði- svæðin, þar sem dýranna er von. Fara þeir þegar vænta má hópa, sem liggja vel við veið- um og flutningum til verzlunarstaðar. Geta þeir áætlað nokkuð ferðir dýranna eftir vind- átt og hitastigi. Dráttarvélin er svo hlaðin kjöti og skinnum og varningnuin ekið strax til byggða. Fæst þannig betri vara við minna

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.