Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1960, Síða 40

Freyr - 15.04.1960, Síða 40
144 FREYR arnótt, og síðar heyrði ég gamla menn segja, að slíkt hret hafi ekki komið um þetta leyti árs í manna minni. Ferðafólkinu leið ekki illa þessa nótt, því bíllinn var hlýr og góður. Við komum í húsaskjól í Varmahlíð um sexleytið um morguninn, en höfðum þar skamma við- dvöl. Á Öxnadalsheiði var sumstaðar hné- djúpur snjór og nokkrum sinnum urðum við að láta tvo menn ganga á undan bíln- um, sinn á hvorri vegarbrún, svo að ekki yrði ekið útaf. Þegar komið var niður í byggð fóru menn að halda til sinna heim- ila, og til Akureyrar komum við um kl. 11 f. h. Allt hafði farið betur en á horfðist þeg- ar útlitið var verst um nóttina. Nú var 17. júní, þjóðhátíðardagurinn, en hátíðahöld- um var aflýst um allt Norðurland vegna ó- tíðarinnar. Ég hraðaði mér inn á Hótel KEA og fór að sofa, því næsta morgun átti ég að fara til móts við bændur úr Borgarfirði á Blönduósi. Þann 17. júní var snjór yfir flestum byggðum Norðurlands, alveg niður að sjó og hitastig um frostmark. Það var því ekki tilhlökkunarefni fyrir mig að eiga að koma á þessar slóðir næsta dag með fjölmennan hóp bændafólks úr Borgarfirði. Norðan- menn höfðu líka nokkrar áhyggjur og var ég beðinn að tala suður, ef nokkur leið væri að fresta förinni um fáa daga. Var það neyðarúrræði þegar allt hafði verið undir- búið syðra og nyrðra. Lofaði ég þó að tala suður, en þá kom í ljós, að símar höfðu bil- að í ofviðrinu og ekkert samband fékkst og var því fyrirsjáanlegt að Borgfirðingar myndu halda af stað eins og ákveðið hafði verið. Ég fór frá Akureyri árla morguns þann dag og var kominn á Blönduós um hádegi. Nokkru eftir hádegi komu svo Borgfirðing- ar, i 4 stórum bílum, 130 manns að bílstjór- um og mér meðtöldum. í þessum hópi voru 53 konur, flestar húsmæður. Þarna voru komnir allmargir Húnvetningar og þar beið matur á borðum, í boði Búnaðarsambands Austur-Húnvetninga, en formaður þess, Hafsteinn á Gunnsteinsstöðum, bauð gesti velkomna. í lok veizlunnar las ég örfáar lífs- og ferðareglur yfir Borgfirðingum og það hrós eiga þeir skilið, að ekki var brotið á móti þeim þá sjö daga sem ferðin stóð yfir og að heita má allt gekk eftir áætlun. Frá Blönduósi var haldið upp Langadal og yfir Vatnsskarð í Skagafjörð, en staldrað við í Byggðasafni Skagafjarðar í Glaum- bæ. Þótti öllum gaman að koma þar og skyggnast aftur í liðna tíð. Fjöldi gesta kemur nú í Glaumbæ á hverju sumri, inn- lendir og erlendir. Árlega bætast munir og mannamyndir í safnið og í Glaumbæ er margt að skoða. Hjörtur Finnbogason, bæj- arvörður, er líka starfi sínu vaxinn að sýna gestum húsakynni og muni, sem þar eru og útskýra það allt fyrir þeim. Aðeins er leitt að hann skuli vera kominn á áttræðisaldur, en vonandi endist hann þó í mörg ár enn. Þarna er hann réttur maður á réttum stað. Næsti viðkomustaður var Hólar í Hjalta- dal og var ekið rakleitt þangað frá Glaum- bæ. Þar tóku skólastiórahjónin og stjórn Búnaðarsambandsins á móti Borgfirðing- um. Þar var neytt kvöldverðar í leikfimi- húsinu, en þar á eftir var litast um á Hóla- stað, skoðuð kirkjan og annað markvert. Allmargir lögðu leið sína upp í torfbæinn gamla, sem var að hruni kominn, en hefur nú verið endurreistur með mestu prýði og er bað staðnum og stjórnendum til sóma að hafa gert það. Nú var kvöld bess 18. júní, og hvernig var umhorfs á Hólastað? Grasið var allvel sprottið, en nú lá bað bælt undir snjólagi og með kvöldinu fór að frjósa. Þetta var heldur óefnilegt um þetta leyti árs — og fór víst hrollur um suma, er barna voru. Marg- ir gistu á Hólum bessa nótt en hinir gistu á bæjum í nágrannasveitunum. Morguninn eftir var farið að hlýna og það gengur undri næst hve sumarsnjór er fljótur að bráðna

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.