Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.04.1960, Qupperneq 47

Freyr - 15.04.1960, Qupperneq 47
FREYR 151 Á endanum komust þó bílarnir af stað og ferðafólkið í gististaði og mátti nú sofa fram undir hádegi næsta dags, því þann dag þurfti aðeins að aka lítinn spöl, til Eyjafjarðar. Þetta var Jónsmessunótt. Ég gisti á Garði í Aðaldal, hjá Skafta Bene- diktssyni héraðsráðunaut og frú hans. Jónsmessudagurinn var bjartur og blíð- ur. Fyrir hádegi fór Skafti með okkur, sem gistum í Garði, að Nesi og Árnesi, þar sem þeir búa Steingrímur Baldvinsson og Her- móður frá Sandi, tengdasonur hans. Þegar borðað hafði verið fór ferðafólkið að tínast saman á vegamótum í Aðaldal og nú fórum við um neðri brúna á Skjálfanda- fljóti, yfir í Köldukinn. Hjá Hálsi í Fnjóskadal komu allmargir Eyfirðingar til móts við Borgfirðinga. Lögðu þeir til, að ekki skyldi farið Vaðlaheiði, heldur út Fnjóskadal og um Da’smynni út að Eyjaf. Á Fnjóská er, þar neðra, gömul og mjó járnbrú, og það tók langan tíma að koma bílunum yfir hana og mátti engu muna að þeir kæmust það óskemmdir. En far- þegarnir nutu veðurblíðunnar og fegurðar Eyjafjarðar á meðan, og var svo ekið að Laufási og gengið um hinn gamla bæ séra Björns Halldórssonar, sem nýlokið er við að gera upp að nýju. í Félagsheimilinu Freyvangi í Öngul- staðahreppi var sezt að kaffidrykkju á- samt mörgum heimamönnum. Þar hitti ég marga góða kunningja úr bændaför Ey- firðinga, sem gist höfðu í Borgarfirði í sinni ferð, og vildu nú endurgjalda Borg- firðingum góðar viðtökur þá, og hafa þá heim með sér til gistingar. Þarna var á- gætur fagnaður og hófleg ræðuhöld. Skemmtilegustu ræðuna flutti Stefán Stef- ánsson á Svalbarði, en hann er nú 86 ára gamall. Kom hann víða við og sagði m. a. frá næturlífi sínu í París fyrir ári síðan. Stefán er fæddur húmoristi — en þeir eru því miður allt of sjaldgæft fyrirbrigði hér á landi. Þessa nótt gistu Borgfirðingar í Öngul- staðahreppi, á Svalbarðsströnd og fáeinir fóru alla leið út í Höfðahverfi. En nú kom í ljós, að of margir óskuðu að fara til Akureyrar og gista hjá vinum og kunningjum þar. Varð það til þess, að sumir gestgjafanna í Eyjafirði fengu færri gesti en þeir vildu og höfðu búið sig undir að taka á móti, en sumir fengu jafnvel engan gest. Eru slík mistök leiðinleg og verður að reyna að koma í veg fyrir þau framvegis. Þetta sama hafði komið fyrir síðustu nóttina á Fljótsdalshéraði, þar sem ég hafði leyft nokkrum fleirum, en ráð hafði verið fyrir gert, að gista á Egils- stöðum. Var það einkum eldra fólk, sem var orðið þreytt, sem varð fegið að þurfa ekki að fara frá Egilsstöðum í veizlulokin. En gát verður að hafa á þessu í næstu kynnisferðum, að þau heimili, sem hafa búið sig undir að taka á móti gestum, fái þá. Hér með eru þeir beðnir afsökunar, sem urðu fyrir þessum mistökum. En miklu verra er að sjá við slíku í svo fjölmennum leiðangri sem hér var á ferð heldur en ef hópurinn hefði verið helmingi minni. Fimmtudagurinn 25. júní rann upp, síð- asti dagur ferðarinnar. Fólkið kom saman við Freyvang og var ráð fyrir gert að aka fram í Eyjafjörð. En nú var dimm þoka yfir allri byggðinni og því var haldið beint til Akureyrar. Þar var sameiginlegur hádegis- verður, í boði Búnaðarsambandsins og margir forustumenn bænda og samvinnu- manna í héraði mættir. Burtför frá Akur- eyri var ákveðin kl. 5 síðdegis, en tímann notuðu Borgfirðingar vel og á ýmsan hátt. Þeir gengu um Lystigarðinn, skoðuðu at- vinnufyrirtæki K.E.A og S.Í.S., eyddu pen- ingum í barft og óþarft í verzlunum og virtust allir vera ánægðir með komuna til Akureyrar, þó stutt væri staðið við. Allir voru mættir stundvíslega þegar kominn var burtfarartími. í austurleið, fyrsta daginn. höfðu þeir lofað Húnvetningum að koma við hjá þeim í bakaleið, en þar biðu þeir í Húnaveri, með kvöldkaffi handa ferðafólkinu. Þar voru mættir bændur úr

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.