Freyr - 15.04.1960, Qupperneq 52
156
PRE YR
Danir
hafa um undanfarin ár miðlað vinnuafli til bústarfa
til margra landa, en nú er stöðvun á þeirri miðlun
því að í Danmörku skortir einnig fólk til sveita-
vinnu. Skólastjóri við bændaskóla þar sagði á fundi
nýlega, að bújarðir færu bráðum í eyði af því að
ekki yrði til fólk, er vildi sinna búskap. Nú eru um
90 þúsund piltar en aðeins 30 þúsund stúlkur starf-
andi sem vinnufólk í dönskum sveitum á 200 þús-
und bændabýlum. Fyrir fáum árum taldi vinnufólks-
hópurinn yfir 200 þús einstaklinga. ,,Það er að
minnsta kosti víst, að þau verða mörg sveitaheimil-
in án húsmæðra á komandi árum”, sagði skóla-
stjórinn.
Hníslasótt
sem einatt er nefnt með sína rétta fræðiheiti
coccidiose, er sá kjúklingakvilli, sem oftast mun valda
tjóni hjá þeim, er ala upp unga.
Þann kvilla ber að varast og það er hægt, en þess
ber að minnast að hann er alls staðar þar sem
hænsfuglar ferðast.
Til þess að forðast kvillann er nauðsynlegt að
hafa smáungana fráskilda hænsnunum, og ekki skal
ganga á sömu skónum — eða hreinsa þá vel ann-
ars — í hænsnahúsi og kjúlkingastíu. Forðast ber
súg á ungunum og þykkt lag af þurrum og hrein-
um undirburði er góð vörn. Drykkjartrog og fóðurílát
skulu einnig vera hrein, en slík ílát, er t. d. hafa
verið notuð í fyrra hjá ungum eða hænsnum, eru
mjög líklegir smitflytjendur, því að einn ættliður
sníkiis þess, sem kvillanum veldur, lifir eitt skeið
sitt í óhreinindum og hefur þar dvalaskeið sitt.
Ef sníkillinn kemst í ungana er sjálfsagt að fá
súlfalyf hjá dýralækni hið fyrsta og eftir notkun
þeirra er þörf á að nota B-vitamín, því að súlfalyf,
eða önnur lyf, sem til greina kemur að nota( eyða
gerlalífi í meltingarfærunum, en ýmissar bakteríur
þar mynda B-vitamín. Þess vegna er þörf á uppbót
fyrir þá eyðileggingu.
Frídagar bóndans
eru fáir og óvissir, skrifar LANDSBLADET — mál-
gagn dönsku búnaðarfélaganna og sannar mál sitt
með eftirfarandi sögu:
Bóndinn og nýi vinnumaðurinn voru ásáttir um
kaup og vinnudag, starfssvið og annað, aðeins var
eftir að ákveða sunnudagana. Vinnumaðurinn var
knattspyrnumaður og vildi helzt fá vikulega frídaga
hvern sunnudag, en bóndinn vildi helzt að frídagaran-
ir yrðu til skiptis sunnudagar og virkir dagar. Nú
jæja, sagði vinnumaðurinn, eigum við þá ekki að
segja að ég hafi frídaga á sunnudögum þegar keppni
er? Jú, það gat verið viðeigandi fannst bónda, en
spurði þó varlega hve oft mundi verða keppni.
— Á sunnudaginn kemur verður kappleikur, ann-
an sunnudag líka og ef við vinnum þá verðum við að
keppa áfram þá getur það orðið á hverjum sunnudegi
fyrst um sinn meðan héraðskeppnin varir.
— En hvenær mundi þá koma röðin að mér að geta
fengið sunnudagsfrí? spyr bóndinn.
— Ef þér er nauðsynlegt að vita það nú get ég
svo sem athugað það í keppnisskránni, var svarið.
Reynslubúin
eiga ekki að fagna bjartsýni né góðum undirtektum
hérlendis. Þó mun verða hafizt handa á þessu ári,
vonandi á þremur stöðum.
Síðan Gísli Kristjánsson skrifaði fyrst um þetta
verkefni, fyrir tæpum 20 árum, hefur ekkert gerst í
því máli hérlendis fyrr en nú, en í öðrum löndum
hefur það verið upp tekið og náð miklum vinsældum
— reynslubúin jafnvel talin eitt mikilvægasta verk-
efni almennar upplýsingaþjónustu — hin síðari ár,
einkum í Noregi, Hollandi og Danmörku.
Norðmenn eru nú að bæta einum lið við þau
verkefni reynslubúanna, sem þegar hafa verið til
meðferðar, en það skeður á nýju búi, Berg í Öst-
fold; þar á að sýna samanburð á 10 tegundum kart-
aflna, 25 tegundum hveitis, nokkrum tegundum af
ertum, rófum, vikkum, o. fl. Ennfremur á að sýna
þar árangur notkunar ýmissa illgresiseyðingar-
lyfja — láta hin einstöku afbrigði vissra nytjajurta
sýna almenningi hvers virði þau eru. Reynslan á að
tala þar sínu máli.
P" Útgefendur: Búnaðarfélag ísl. og Stéttarsamband bænda. - Útgáfunefnd: Einar
| I"" J* *" — Ólafsson, Pálml Einarsson, Steingr. Steinþórsson. - Ritstjóri: Gfsli Kristjánsson. •
• Ritstjórn, afgreiðsla og innh.: Lækjarg. 14 B, Reykjavík. Pósth. 390. Sími 19200
BUNAÐARBLAÐ Áskriftarverð kr. 90.00 árgangurinn. — Prentsmiðjan Edda h.f.