Freyr - 01.08.1965, Qupperneq 6
242
FRE YR
varla munu dæmi til fyrr. Bændur gátu
þess vegna vel komið til fundar til þess að
fylgjast með því, sem þar gerðist og þeir
komu þangað allmargir, sumir um lang-
vegu, en það er nú svo austan lands, eins
og annarsstaðar, að fámennt er á heim-
ilum og bændur eiga ekki heimangegnt.
Að þessu sinni voru áhyggjuefni þeirra
þung og mörg því að mislyndi íslenzkrar
veðráttu hefur naumast fyrr né annars-
staðar veitt búendum þyngri högg. Þar
hafa harðindi komið fyrr og síðar, eins
og annarsstaðar á íslandi, en á þessu herr-
ans ári hafa þau verið þunghöggari en
nokkru sinni í tíð þeirra, sem nú stunda
þar búskap, meira að segja er talið að
árið 1918, með öll þau köl og óáran, er
þá dundi yfir, hafi naumast verið svo harð-
leikið í garð búenda.
★
„Ég hef nú aldrei séð annað eins.“
„Ég hefði aldrei ímyndað mér að ástæð-
urnar væru svona hefði ég ekki séð það.“
Þetta og álíka voru ummæli ýmissa, er
komu til fundar á Eiðum, langt eða skammt
að og sáu hver afhroð bændur austan lands
hafa beðið í ár vegna kalskemmda í tún-
um þeirra og vegna grasleysis um úthaga,
akurlendi og víðlend tún, í góðsveitum
eins og þeim, sem einatt voru taldar vera
þar eystra fyrr á tímum. Og það er sann-
ast mála, að fáir eða engir þeirra, er fund-
inn sóttu, hafa séð tilsvarandi, því að þótt
miklar væru skemmdir og stórkostlegar
árið 1918 þá voru túnin í þá daga svo lítil,
að það voru smáblettir á borð við það sem
nú gerist.
Það er dapurlegt að horfa á staðreynd-
irnar blasa við hvarvetna í svo fögrum
sveitum sem þar eru eystra. Víðlend rækt-
unarlönd hvít og visin eða þá svört flög,
en sumstaðar snarrótartoppar eins og eyj-
ar í auðninni. Og það sem heita skyldi
grænt var svo grasvana, að ekki var hagi
fyrir aðrar skepnur en þær, sem geta geng-
ið nærri rót og nagað svörðinn. Og þetta
um sólstöður. Og enn ríktu kuldar, rétt
ofan við frostmark um daga og frost og
héla um nætur öðru hvoru fram í júlí-
mánuð. Engin furða þótt ýmsum liggi við
hugfalli og þyki vænlegra að hverfa að
öðrum greinum atvinnulífsins, sem um
stund virðast miklu arðvænlegri og örugg-
ari.
En fyrr hafa skipst á misæri og góðæri
og svo hlýtur enn að vera og verða. Að
þessu sinni verða stéttarbræður og þjóð-
in öll að rétta hjálpandi hönd þeim, sem
svo hart hafa orðið úti án þess að eiga
nokkra sök á sjálfir. Bændur þar eystra
hafa, eins og aðrir, lagt fram erfiði og
fjármagn til þess að efla jarðir sínar, eins
þau lönd sem nú urðu svört flög á nokkr-
um vikum.
Svo mikil er hagsæld þjóðarinnar í dag,
að enginn vandi er að veita þá aðstoð sem
þarf til þess að bændur eystra geti haldið
byggð sinni og störfum áfram þó að á móti
hafi blásið í þetta sinn með svalari og af-
drifaríkari gusti en gerist að jafnaði. Það
þurfa samstillt átök margra aðilja til þess
að ráða bót á vandanum og það þarf eitt
allsherjar átak þjóðarinnar í heild til þess
að rétta það, er hér hallast. Það þarf ekki
stærri fjárhæð til að færa allt til betri
vegar en sem nemur þunga af halla eins
togara, sem alþjóð hefur orðið að taka á
herðar sér. Það er allt. Þjóðin verður að
axla baggann og rétta hallann.
Aðalfundurinn á Eiðum gerði samþykkt
hér um og nú er bara að framfylgja sam-
þykktinni og knýja á til aðstoðar.
G.