Freyr - 01.08.1965, Blaðsíða 11
FRE YR
247
landshluta gegn afleiðingum þessara á-
falla, t. d. með framleiðslu heyköggla.
Ráðherrann ræddi vaxandi framleiðslu
landbúnaðarvara og taldi bændur yfirleitt
hafa unað sæmilega verðlagningunni s.l.
haust, enda væri verðlagið nú hagstæðara
en oft áður. Nauðsynlegt væri að stækka
litlu búin og að því væri stefnt með lög-
gjöf frá síðasta Alþingi. Landbúnaðurinn
hefði mikla möguleika og líkur bendi til, að
framleiðsla sauðfjárafurða geti orðið svo
hagstæð, að útflutningsuppbóta verði ekki
þörf. í virkjunarmálum stefndi í rétta átt.
Aukinn ferðamannastraumur ætti að
verða lyftistöng fyrir landbúnaðinn og við
ættum að kenna útlendingum að eta ís-
lenzkan mat og alls ekki að flytja inn er-
lent kjöt handa þeim. Búreikninga þyrfti
að efla og nú væri til þess varið auknu fé.
Afurðalánin hefðu verið aukin á s.l. ári,
og æskilegt væri, að hægt yrði að greiða
bændum 90% verðs við afhendingu var-
anna.
Aukakostnaður, sem skapazt hefði við
flutning áburðar vegna hafíss s.l. vetur,
yrði greiddur af Áburðarverksmiðjunni eða
ríkissjóði.
Ráðherrann vék að málshöfðuninni út
af stofnlánasjóðsgjaldinu og kvað úrslit
þessa máls sigur fyrir bændastéttina.
Að lokum kvaðst ráðherrann ávallt reiðu-
búinn að ræða við stjórn Stéttarsambands-
ins um vandamál landbúnaðarins.
Fundarmenn þökkuðu ræðu ráðherrans
með lófataki.
Þá var klukkan orðin 12.30 og matarhlé
gert til kl. 2.
4. Bjargráðanefnd.
Gunnar Guðbjartsson vakti máls á nauð-
syn þess, að fundurinn hefði forgöngu um
aðgerðir til stuðnings bændum austan-
lands vegna kalskemmda í túnum. Lagði
hann til, að fundurinn skipaði nefnd til að
fjalla um málið og hefði nefndin samráð
við landbúnaðarráðherra, formann Búnað-
arfélags íslands, landnámsstjóra, ritstjóra
Freys, ráðunauta Bsb. Austurlands og
stjórnarformann þess.
í nefndina voru kjörnir:
Sveinn Jónsson, Egilsstöðum,
Sigurður Líndal, Lækjamóti,
Grímur Jónsson, Ærlækjarseli,
Aðalsteinn Jónsson, Vaðbrekku,
Siggeir Björnsson, Holti.
5. Umræður.
Þá fóru fram umræður um skýrslu for-
manns. Komu fram ýmsar fyrirspurnir og
ábendingar til stjórnarinnar. Þessir tóku
til máls: Hermóður Guðmundsson, Sigurð-
ur Líndal, Ingvar Guðjónsson, Guðjón
Hallgrímsson, Helgi Símonarson, Ólafur
Bjarnason, Ingi Tryggvason, Jóhannes
Davíðsson, Einar Halldórsson, Vilhjálmur
Hjálmarsson, Sigurður Jónsson, Aðalsteinn
Jónsson, Sveinn Jónsson, Sveinn Tryggva-
son og Sigurgrímur Jónsson. Voru umræð-
ur fjörugar og sýndu vakandi áhuga fund-
armanna á kjaramálum bændastéttarinn-
ar. Stóðu umræður þessar fram til kl. 7.30
að frádregnu kaffihléi, en þá svöruðu Sæ-
mundur Friðriksson og Gunnar Guðbjarts-
son framkomnum fyrirspurnum.
6. Nefndarkosningar:
Fundarstjóri lagði fram tillögur um skip-
un manna í nefndir og voru þær samþykkt-
ar. Samkvæmt því urðu nefndir þannig
skipaðar:
Verðlagsnefnd:
Vilhjálmur Hjálmarsson, Jóhannes Da-
víðsson, Steinþór Þórðarson, Karl Magnús-
son, Jón Jónsson, Lárus Sigurðsson, Erlend-
ur Árnason, Hermóður Guðmundsson, Árni
Guðmundsson, Einar Ólafsson.
Framleiðslunef nd:
Ketill Guðjónsson, Garðar Halldórsson,
Sigurgrímur Jónsson, Sigurjón Einarsson,
Jón Helgason, Ólafur Bjarnason, Björgvin
Sigurbjörnsson.
Allsher jar nef nd:
Benedikt Grímsson, Helgi Símonarson,
Ingvar Guðjónsson, Guðmundur Magnús-
son, Karl Sveinsson, Guðjón Hallgrímsson,