Freyr - 01.08.1965, Blaðsíða 17
FRBYn
253
III. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1965
Atelur harðlega þá stefnu, sem stjórn Stofnlána-
deildar landbúnaðarins hefur tekið upp í lána-
máium og verkar sem hemill á alla uppbyggingu
og tækniþróun atvinnuvegarins.
Nú er bændum neitað um lán á sama ári nema
til þess, sem stofnlánadeildin kallar eina fram-
kvæmd, þ. e. t. d. annað hvort til fjóss eða hlöðu,
þótt samstæðar byggingar séu, og áskilur sér rétt
til að lána síðan aðeins 2/t a fþví, sem áður hefur
verið venja. Aðalfundurinn telur þessar takmark-
anir á lánveitingum algerlega óþolandi og skorar
á stjórn Stéttarsambandsins að beita sér fyrir
því við stjórn Stofnlánadeildarinnar og landbún-
aðarráðherra, að þessum nýju hömlum verði af-
létt. Þá telur fundurinn, að þær tafir, sem orðið
hafa á því, að lánsbeiðnum bænda hafi verið
svarað, séu algerlega óviðunandi"
Samþykkt samhljóða.
IV. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1965
skorar á stjórn sambandsins að beita sér kröft-
uglega fyrir því, að stofnlánadeildargjaldið, sem
bændum er gert að greiða, verði tekið upp í
kostnaðarlið verðlagsgrundvallarins, þar sem fund-
urinn telur óverjandi að taka þetta gjald af
naumum þurftartekjum bænda.' ‘
Guðjón Hallgrímsson kvaddi sér hljóðs
um tillöguna og síðan var hún samþykkt
samhljóða.
15. Þá var enn tekin fyrir tillaga Allsherjar-
nefndar um stóriðjumál.
Til máls tóku Guðjón Hallgrímsson, Her-
móður Guðmundsson og Benedikt Gríms-
son. Þá var málinu enn frestað og Allsherj-
arnefnd kvödd saman til að fjalla um til-
löguna á nýjan leik.
16. Fundarstjóri bar undir atkvæði fund-
armanna, hvort heimila skyldi Sveini Jóns-
syni að flytja tillögu um verðlagsmál og
markaðsleit, sem ekki hafði verið tekið til
afgreiðslu í nefnd. Var það samþykkt með
öllum þorra atkvæða gegn 2. Sveinn mælti
fyrir tillögunum og las þær upp, en þær
hljóðuðu svo:
I. „Að gefnu tilefni vill aðalfundur Stéttarsam-
bands bænda 1965 taka upp þá sjálfsögðu reglu,
að samkomulag sexmannanefndar um verðlag bú-
vara sé hverju sinni borið undir aukafulltrúafund
Stéttarsambands bænda til samþykktar eða synj-
unar."
II. „Fundurinn felur stjórn Stéttarsambands
bænda að ráða nú þegar vel menntaðan mann
í verzlunar- og viðskiptamálum f fast starf til
markaðsleitar erlendis fyrir íslenzkar landbúnað-
arvörur, sem selja verður út úr landinu."
Til máls tóku um tillögurnar þeir Er-
lendur Árnason, Gunnar Guðbjartsson,
Sveinn Tryggvason, Hermóður Guðmunds-
son og Erlendur Árnason aftur, sem bar
fram eftirfarandi tillögu:
„Þar sem verðlagsnefnd fundarins hefur haft
hliðstæða tillögu fyrri tillögu Sveins Jónssonar til
meðferðar og varð ásátt um að leggja hana ekki
fyrir fundinn, leggjum við til, að fundurinn
vísi þessu frá og taki fyrir næsta mál á dagskrá.
Erlendur Árnason.
Jóhannes Davíðsson."
Tillaga þessi var samþykkt með 33 atkv.
gegn 4.
Þá var borin undir atkvæði seinni tillaga
Sveins Jónssonar og hún felld með 33 atkv.
gegn 3.
17. Uppstillingarnefnd:
Fundarstjóri bar fram tillögu um, að
eftirtaldir menn tækju sæti í uppstillingar-
nefnd til undirbúnings stjórnarkjöri: Sigur-
grímur Jónsson, Einar Halldórsson, Kjartan
Eggertsson, Jóhannes Davíðsson, Sigurður
Jónsson, Jón Jónsson, Siggeir Björnsson og
Aðalsteinn Jónsson. Var tillaga þessi sam-
þykkt samhljóða.
18. Benedikt Grímsson flutti nýja tillögu
Allsherjarnefndar um stóriðjumál, svo-
hijóðandi:
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1965 skor-
ar á Alþingi og ríkisstjóm að gæta fyllstu varúðar
við meðferð stóriðjumálsins og kanna til hlítar,