Freyr - 01.08.1965, Blaðsíða 18
254
FRE YR
Hin nýkjörna aðalstjórn: Einar ÓHafsson, Páll Diðriksson, Gunnar Guðbjartsson formaður,
Vilhjálmur Hjálmarsson, Bjami Halldórsson. ÖII var stjórnin endurkjörin.
hver áhrif stóriðja með erlendu fjármagni mundi
hafa á þróun þeirra atvinnugreina, sem fyrir eru
í landinu, áður en ákvörðun er tekin um fram-
kvæmd málsins.
Fundurinn felur stjórn Stéttarsambandsins að
fylgjast eftir föngum með framvindu málsins og
vera vel á verði um hagsmuni landbúnaðarins
í því sambandi."
Enginn kvaddi sér hljóðs um tillöguna,
en atkvæðagreiðslu var frestað og fundar-
hlé gert, meðan uppstillingarnefnd starfaði.
í fundarhléinu settust menn að kaffi-
borði og var þar minnzt 20 ára afmælis
Stéttarsambands bænda. Minntust menn
starfa sambandsins, forystumanna þess og
starfsmanna og fluttu sambandinu þakkir
og árnaðaróskir. Þessir tóku til máls:
Gunnar Guðbjartsson, form. Stéttarsam-
bandsins. Þorsteinn Sigurðsson, form. Bún-
aðarfélags íslands; Eysteinn Jónsson, al-
þingismaður, Guðjón Hallgrímsson á Marð-
arnúpi, Sæmundur Friðriksson, framkv,-
stjóri Stéttarsambandsins. Vilhjálmur
Hjálmarsson á Brekku, Ólafur Bjarnason
í Brautarholti, Einar Halldórsson á Set-
bergi og Þorsteinn Sigfússon á Sandbrekku,
formaður Búnaðarsambands Austurlands.
Laust fyrir kl. 1.30 sleit Gunnar Guðbjarts-
son hófinu og var þá gengið til fundarsalar
og fundi fram haldið.
Fór þá fram atkvæðagreiðsla um tillögu
Allsherjarnefndar í stóriðjumálinu, sem áð-
ur var frestað, og var tillagan samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum.
19. Kosningar.
Sigurgrímur Jónsson skýrði frá því, að
ekki hefði náðst samstaða í uppstillingar-
nefnd um stjórnarkjör og yrði því kosning-
Þessir hlutu kosningu:
in óbundin.
Gunnar Guðbjartsson með 46 atkv., Vil-
hjálmur Hjálmarsson 42 atkv., Einar Ól-
afsson 35 atkv., Bjarni Halldórsson 38 atkv.,
Páll Diðriksson 45 atkv.
Varamenn:
Jón Helgason með 34 atkv., Ingimundur
Ásgeirsson 33 atkv., Ingi Tryggvason 28
atkv., Þorsteinn Sigfússon 27 atkv., og Her-
móður Guðmundsson með 26 atkv. í bund-
inni kosningu milli hans og Ólafs Andrés-
sonar.
Endurskoðendur voru kjörnir Hannes
Jónsson og Einar Halldórsson og til vara
Sigurgrímur Jónsson og Ólafur Andrésson.
í framleiðsluráð landbúnaðarins voru
kjörnir Gunnar Guðbjartsson, Páll Diðriks-
son, Vilhjálmur Hjálmarsson, Bjarni Hall-
dórsson og Einar Ólafsson.
Þá kvaddi formaður Stéttarsambandsins,
Gunnar Guðbjartsson, sér hljóðs og þakk-
aði samstarfsmönnum sínum gott samstarf
og óskaði fundarmönnum góðrar heimferð-
ar og heimkomu.
Fleira ekki tekið til bókunar. Fundar-
gerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið.
Bjarni Halldórsson, Ingi Tryggvason,
fundarstjóri. fundarritari.