Freyr - 01.08.1965, Blaðsíða 20
256
FRE YR
ÁLAFOSS
opnar nýja verksmiðju
Sjötíu ár eru liðin síðan Björn Þorláks-
son, bóndi á Varmá í Mosfellssveit, hóf
framkvæmdir við byggingu klæðaverk-
smiðju á Álafossi. Það var engin stórbygg-
ing, sem hann reisti og hóf starfsemi með
þann 1. apríl 1896, en klæðaverksmiðjan
Álafoss hefur verið í stöðugum vexti síðan
og síðasti áfanginn í þeirri þróun var
markaður þann 9. júlí síðastliðinn, þegar
vígð var, að viðstöddum mörgum boðsgest-
um, ný verksmiðja um 300 metra vegalengd
frá gömlu verksmiðjunni. í stað þess að
klæðaverksmiðjan var upprunalega knúin
beinlínis með vatnsorku Álafossins er að-
fengnu fossafli nú breytt í raforku, er knýr
hina nýju verksmiðju, en allt er þar hitað
með hveravatni, bæði hið nýja og hið
gamla.
Hið nýja verksmiðjuhús þekur 3000 fer-
metra lands — eða rétta dagsláttu eftir
gömlum mælikvarða. Athafnir við bygg-
ingu þess hófust um miðjan júní 1963 og
nú stendur það fullgert í fullum gangi. í
því er komið fyrir miklum báknum véla,
sem kemba og spinna ullina eftir að hún
hefur verið þvegin og þurrkuð í gömlu
verksmiðjunni við Varmána og síðan blásið
eftir víðum nípum þá 300 metra leið, sem
er upp í nýju verksmiðjuna.
Teikningar allar að verksmiðju hinni
nýju veru gerðar í Belgíu, og eru með nýj-
asta sniði eins og vélar þær, sem þar hafa
Nýju spunavélarnar eru mikilvirkar.