Freyr - 01.08.1965, Qupperneq 13
FRE YR
249
8. Kostnaður v/bændafunda 20.000.00
9. Kostn. v/búnaðarnefndar 30.000.00
10. Skrifstofukostnaður ......... 20.000.00
11. Húsnæði, ljós, hiti.......... 25.000.00
12. Til viðhalds bókasafns .... 10.000.00
13. Til upplýsingastarfsemi . . 25.000.00
14. Framlag til Tryggingasjóðs.. 200.000.00
15. Framlag til Byggingarsjóðs 500.000.00
16. Óráðst. og til annarra útgj. 916.000.00
Samtals kr. 2.515.000.00
Var fjárhagsáætlunin samþykkt samhlj.
9. Tillögur Verðlagsnefndar:
Vilhjálmur Hjálmarsson hafði framsögu
fyrir nefndina, rakti störf hennar og gat
þess, að samkomulag hefði orðið í nefnd-
inni, en einstakir nefndarmenn hefðu þó
áskilið sér rétt til að fylgja breytingartil-
lögum. Las hann því næst upp og lagði
fram eftirfarandi tillögur:
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn
að Eiðum 20. júni 1965, telur það ástand óviðun-
andi, að bændastéttin skuli ár eftir ár vera lang-
lægst launaða stétt þjóðfélagsins, eins og opinberar
hagskýrslur sýna.
Því telur fundurinn rétt að segja upp gildandi
verðlagsgrundvelli landbúnaðarafurða, en felur
stjórn Stéttarsambandsins að taka endanlega á-
kvörðun um það í samráði við fulltrúa bænda í
sexmannanefnd.
Við uppbyggingu næsta verðlagsgrundvallar
verði unnið að eftirfarandi lagfæringum:
1. Fjárfestingarmannvirki landbúnaðarins verði
afskrifuð samkvæmt fullu kostnaðarverði svip-
að og heimilt er í útgerð og iðnaði.
2. Vextir og allur vinnukostnaður verði tekinn
inn í verðlagsgrundvöllinn.
3. Landbúnaðarvörur verði vaxtafærðar til fram-
leiðanda strax og þær eru afhentar til sölumeð-
ferðar.
4. Hækkaður verði vaxta- og geymslukostnaður á
kjöti, sem reiknaður hefur verið mánaðarlega.
5. Leitað verði eftir því að fá lækkanir á verði að-
keyptra rekstrar- og fjárfestingarvara í því
skyni að lækka framleiðslukostnaðinn.
6. Hlutur sauðfjárræktarinnar verði bættur með
sérstöku tilliti til aukins útflutnings.
7. Tekið verði til athugunar, hvort ekki sé rétt
að stofnsetja sérstök verðlags- og viðmiðunar-
bú undir opinberu eftirliti, til þess að færa
frekari sönnur á fjármagnsþörf og framleiðslu-
kostnað landbúnaðarins.“
Var tillaga þessi samþykkt samhljóða.
10. Fundarstjóri las upp eftirfarandi
skeyti:
„Sverrir Gíslason, Hvammi.
20. aðalfundur Stéttarsambands bænda, hald-
inn á Eiðum, sendir þér kveðju og þakklæti fyrir
farsælt forystustarf í stjórn samfjandsins í 18 ár.
Jafnframt óskar fundurinn þér heilla í fram-
tíðinni.
Gunnar Guðbjansson."
Samþykktu fundarmenn skeyti þetta og
hylltu Sverri með almennu lófataki.
11. Tillögur framleiðslunefndar:
Framsögumaður Ketill Guðjónsson. Las
hann upp eftirfarandi tillögur og talaði
fyrir þeim:
„I. Vegna umræðna um, að allt andvirði slátur-
fjár verði greitt á kg. kjöts, vill aðalfundur Stétt-
arsambands bænda 1965 fela stjórn þess að athuga
þetta mál vel og gæta í því sambandi verðmunar
á gærum.“
Samþ. með öllum þorra atkv. gegn 1.
„II. Að gefnu tilefni mótmælir aðalfundur
Stéttarsambands bænda hugsanlegum innflutningi
á nautakjöti og annarri hliðstæðri landbúnaðar-
framleiðslu.
Jafnframt telur fundurinn aukna fjölbreytni
innlendrar framleiðslu nauðsynlega og felur
Stéttarsambandsstjórn og Framleiðsluráði að
vinna að eftirfarandi atriðum því til stuðnings:
a) Innfiutningi holdanautasæðis.
b) Að verðlagningin örvi bændur til að full-
nægja eftirspurninni.
c) Góðri leiðbeiningaþjónustu um uppeldi og
fóðrun þessara gripa.“
Til máls tóku um tillöguna Benedikt Lín-
dal og Einar Halldórsson. Við atkvæða-
greiðslu um tillöguna óskaði Benedikt Lín-