Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1965, Síða 15

Freyr - 01.08.1965, Síða 15
PRE YR 251 hagsaðstoðar ríkisvaldsins til að gera þetta fram- kvæinanlegt." Samþykkt samhljóða. II. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda, hald- inn að Eiðum 19—20. júní 1965. felur stjórn sam- bandsins að athuga möguleika á því, að bændur fái aðstöðu til þess að hafa forfallahjálp á félags- legum grundvelli og fá til þess aðstoð með lög- gjöf." Samþykkt samhljóða. III. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1965 beinir því til stjórnar sambandsins, að hún beiti sér fyrir því, að heimild verði veitt, til að frá- dráttur á tekjum við skattframtal vegna vinnu eiginkonu við búreksturinn verði hækkaður a.m.k. til samræmis við hækkaðan persónufrádrátt og almenna hækkun vinnulauna." Samþykkt samhljóða. IV. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1965 felur stjórn sambandsins að beita sér fyrir því, að viðhald girðinga verði í verðlagsgrundvelli reikn- að sem hundraðshluti af stofnkostnaði þeirra, t. d. 10%, enda verði kostnaðarverðið ákveðið ár- lega í samræmi við efnis- og vinnukostnað." Samþykkt samhljóða. V. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1965 beinir því til stjórnar sambandsins að hraða ráðn- ingu manns til að túlka málefni bænda og halda uppi vörnum fyrir stéttina á opinberum vett- vangi." Samþykkt samhljóða. VI. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1965 telur brýna nauðsyn að fella niður eða lækka verulega tolla af búvélum og rekstrarvörum iand- búnaðarins og felur stjórn sambandsins að vinna að því við Alþingi og ríkisstjórn." Samþykkt samhljóða. VII. „Út af tillögu frá Búnaðarsambandi Borg- arfjarðar um fundartíma (20. ág.) samþykkir aðal- fundur Stéttarsambandsins, að stjórn þess ákveði fundartíma hverju sinni. Jafnframt athugi stjórnin, hvort ekki sé nauðsyn, að fundinum séu ætlaðir þrír dagar til starfa." Um tillögu þessa urðu miklar umræður og tóku til máls: Helgi Símonarson, Vil- hjálmur Hjálmarsson, Lárus Sigurðsson, Sveinn Jónsson, Hermóður Guðmundsson, Ólafur Bjarnason og Engilbert Ingvarsson, sem bar fram eftirfarandi dagskrártillögu: „Fundurinn sér ekki ástæðu til að taka afstöðu til þessa máls og tekur fyrir næsta mál á dagskrá." Dagskrártillaga þessi var felld með 18 atkv. gegn 13. Aðalsteinn Jónsson óskaði eftir, að aðal- tillagan yrði borin upp í tvennu lagi. Varð fundarstjóri við þeirri ósk og tók Árni Jón- asson til máls um þá tilhögun. Síðan var tillagan borin upp í tvennu lagi og var fyrri liðurinn samþ. með þorra atkvæða gegn 2, en síðari iiðurinn sam- hljóða. VIII. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1965 felur stjórn sambandsins að vinna að því, að kom- ið verði á skipulegu mati á innlendum fóðurvör- um. Jafnframt verði unnið að því, að inn verði fluttar betri fóðurvörur en nú er.“ Samþ. samhljóða. IX. „Aðalfundurinn skorar á stjórn Stéttar- sambandsins að beita sér fyrir því, að launaskatt- ur atvinnurekenda til húsnæðismála I kaupstöð- um, sem lagður var á sl. ár á sláturhús, mjólkur- bú og atvinnurekendur í sveitum, verði látinn renna til Stofnlánadeildarinnar eða felldur niður að öðrum kosti." Samþ. samhljóða. X. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1965 telur, að taka beri upp aftur þann hátt að senda öllum bændum í landinu Félagstíðindi Stéttar- sambands bænda á kostnað samtakanna." Um tillöguna urðu allmiklar umræður með og móti og tóku til máls: Vilhjálmur Hjálmarsson, Einar Ólafsson, Sveinn Jóns- son, Helgi Símonarson, Sæmundur Frið- riksson, Þorsteinn Sigurðsson, Benedikt Grímsson og Ingvar Guðjónsson. Frá Vilhjálmi Hjáimarssyni kom fram eftirfarandi breytingartillaga:

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.