Freyr - 01.08.1965, Side 33
FRE YR
269
MENN OG MÁLEFNI
Dr. Per
Jónsson.
Þann 28. maí s.l. varði Per Jónsson dokt-
orsritgerð við Búnaðarháskólann í Kaup-
mannahöfn. Fjallaði verkefni haris um leið-
ir til þess að auka kjötmagn grísanna án
þess að gæði flesksins minnki.
Verkefni þetta er skráð í bók hans, sem
er ekki minna en 520 þéttprentaðar síður
með mörgum síðum alsettum formúlum og
stærðfræðilegum sönnunum. Verkefnið er
allt mjög vísindalegt og er byggt á rann-
sóknum á erfðaeiginleikum innan svína-
stofnsins danska, en niðurstöður rannsókn-
anna gefa tilefni til að velja kynbótaað-
ferðir, sem miða að því að efla magn og
gæði kjötsins, þ. e. a. s. að nota til við-
halds stofninum þau undaneldisdýr, sem
hafa mikla vöðva og viðeigandi lit á kjöt-
inu. Við rannsóknirnar hafa nýtízkulegar
aðferðir verið notaðar með rafbylgjum við
mælingu holdafarsins og við útreikninga
alla hinir nýju rafeindaheilar.
Við doktorsvörnina fékk Per Jónsson
mjög mikið lof fyrir frammistöðu sína og
árangur verkanna. Hinn nýi dr. agro. er
íslendingur að hálfu, hann er sonur Péturs
heitins Jónssonar, söngvara, hefur hlotið
mestan hluta menntunar sinnar við Land-
búnaðarháskólann í Kaupmannahöfn og
um undanfarin ár unnið sem tilraunastjóri
við Landökonomisk Forsögslaboratoríum.
Laust eftir að hann lauk kandídatsprófi
kom hann heim til íslands í þeim tilgangi
að vinna að tilrai:num hér en fór fljótlega,
þar eð hann fékk þann dóm húsbónda
síns, að hann yrði aldrei tilraunamaður.
Með frammistöðu sinni hefur Per Jóns-
son nú sannað, að „ekki er allt sem sýnist“
í þessu efni, en hvað um það, með annarri
þjóð hefur hann leyst þrekvirki, sem þar,
og ef til vill víðar, verður ekki aðeins
honum til frægðar heldur og öðrum til
hagsældar.
Klemens Kr.
Kristjánsson
Klemenz Kr. Kristjánsson, tilraunastjóri
á Sámsstöðum, varð sjötugur að aldri þann
14. maí í vor. Klemenz þarf ekki að kynna,
bændastéttin er búin að njóta starfskrafta
hans í full fjörutíu ár og störf hans hafa
verið fjölþætt þó að flest hafi þau verið
vígð ræktun landsins, en einnig á sviði
félagsmála hefur hann lagt til sinn skerf.
Hefur hann átt sæti á Búnaðarþingi svo að
nokkurs sé getið í því sambandi.
Á sviði jarðræktarinnar hefur alhliða til-
raunastarfsemi verið eðlileg kvöð síðan
hann gerðist tilraunastjóri á Sámsstöðum,
en varla er ofmælt þótt sagt sé, að tvö atriði
öðrum fremur hafi gagntekið huga hans og
alúð öðru fremur, en það er kornyrkja og
ræktun skjólbelta. Þegar saga tilrauna-
starfseminnar hér á landi verður skráð
hlýtur nafn Klemenzar að verða í röð
þeirra, sem telja ber brautryðjendur á þeim
vettvangi búnaðarmála okkar.