Freyr - 01.08.1965, Síða 34
270
FRE YR
FJÓSAR/ESTING
í fyrra sagöi FREYR frá því stuttlega,
að frændur okkar Norðmenn, og einnig
Svíar, hefðu tekið upp þá háttu að kerfa
búnað og ferðast með hann milli bæja til
þess að ræsta fjósin að sumrinu fyrir bænd-
urna. Undanfarin ár hefur þessi starfsemi
verið í þróun í Noregi og Svíþjóð — og
ef til vill viðar þá FREY sé það ekki kunn-
ugt — og þykir þetta gefast mjög vel. Til
marks um það má segja frá því hér, að
í Kalmar leni, í austanverðri Svíþjóð í
suðri, er mikil aukning í þessari starfsemi.
í fyrra voru 8 kerfi þar í starfi og ræst
voru fjós á 850 búum, en í ár, segir Jord-
brukarnas Föreningsblad að 15 búnaðir séu
í gangi við fjórhreinsun og gert ráð fyrir
að ræst verði 1500 fjós í landinu. Til sam-
starfs um þetta verkefni, í syðra Kalmar
leni, hafa sláturfélög og mjólkurfélög stað-
ið að undirbúningi, útvegað fjármagn til
búnaðarins o. fl.
Með búnað þann, sem til þessa er not-
aður, er ferðast frá bæ til bæjar, en áður
en tekið er til óspilltra málanna eru bænd-
um gefin fyrirmæli um undirbúning. í
fyrsta lagi verða allar skepnur að vera
komnar úr húsi og á fulla beit. Allir lausir
hlutir skulu fjarlægðir, loft og veggi skal
sópa svo að hvergi sé laust ryk og svo
skal moka flóra vandlega.
Nokkrum dögum áður en komið er með
búnaðinn til ræstingar, skulu þeir, sem
hann nota, gera bónda aðvart því að daginn
fyrir komu þeirra skal bleyta allt rækilega:
blása stéttir og ganga, stoðir og annað og
svo veggi í axlarhæð. Sé vel „lagt í bleyti“
tekur ræstingin miklu skemmri tlma en
annars og þetta hefur sína þýðingu fyrir
bóndann því að sjálf ræstingin er seld sem
tímavinna.
Það er undirstrikað, að reynsla liðinna
ára, þótt ekki sé langvinn, bendi eindregið
til þess, að allir séu ánægðir með þetta
kerfisbundna framtak, sem skapi stór-
felldar framfarir á sviði hreinlætis í pen-
ingshúsum. Við ræstingastarfið bætist svo
— vegna þeirra er vilja — kölkun eða
málning húsanna að innan og utan en til
þess eru notaðar þrýstisprautur svo að verk-
ið tekur ekki langan tíma. Þegar búið
er að ræsta rækilega er tiltölulega létt að
lita og mála og vilja sumir gera það sjálfir
en aðrir láta vinna það verk fyrir sig, því
að þar í landi er skortur á liði til allra
aukavika og hver bóndi hefur nóg með dag-
leg framleiðsluhlutverk, rétt eins og víðar
gerist í sveitum.
Rækileg fjósræsting er
nauðsynleg og sjálfsögð
á hverju sumri.