Freyr - 01.08.1965, Side 38
274
FRE YR
Eftir óskum
— HvaS kemur til að þú glápir alltaf upp á við
þegar þú gengur framhjá þessu húsi?
— Hann Nonni býr hérna og hann er svo oft
búinn að segja, að ég skuli líta upp til sín þegar
ég eigi leið fram hjá.
Landbúnaðarráðherra hefur orðið
T. F. Peart, landbúnaðarráðherra Breta, spurði
formann danska Búnaðarráðsins nýlega hvað hann
mundi gera ef hann yrði landbúnaðarráðherra.
— Ég verð nú ekki landbúnaðarráðherra en ef
svo vildi til þá mundi ég koma á frjálsri landbún-
aðarpólitxk.
— Hvað eigið þér við með frjálsri? Þýðir það að
sköp skuli ráða?
— Já, ef gagnaðilji á markaðnum gerði hið sama;
ef engar verndanir á verzlunarsviðinu væru í
Evrópu þá væri þarflaust að viðhafa sérlegar ráð-
stafanir um framleiðslumálin, og sjálfa framleiðslu
búvöru Dana að tveim þriðju svo sem nú er.
— Hafið þér tjáð þetta opinberlega? spurði brezki
landbúnaðarráðherrann. Því játaði Anders Ander-
sen, formaður Búnaðarráðsins.
— Þá eruð þér vissulega djarfur maður!
Vængjaðar verur
— Mamma, er það satt að englar hafi vængi? 1
— Já, barnið mitt, það er alveg rétt.
— Verpa þeir þá eggjum mamma?
Hækkandi sjónarhóll.
Sérhvert málgagn hefur sinn sjónarhól. Af hon-
um er útsýni til ýmissa átta og ef um sérhæft
málgagn er að ræða þá er eðlilegt, að einstefnu-
viðhorf sé ráðandi.
Þetta gildir um FREY eins og önnur málgögn, og
því er nú svo varið, að þótt FREYR sé faglegt
tímarit þá er hann ekki nærri því eins faglegur
og hliðstæð málgögn eru í grannlöndunum. Hins
vegar þykir ýmsum lesendum hann vera of fag-
legur, þ. e. að ekki sé fjallað um málin frá nógu
alþýðlegu viðhorfi heldur of fræðilegu og tormeltu.
Það er til dæmis, að of mikið sé af tölum og töfl-
um í lesmáli. Já, þetta er allt rétt, en viðhorfið
hefur verið það að reyna að kenna bændum að
hugsa faglega og brjóta málin til mergjar, smá-
munina einnig, rétt eins og þeir gera, sem hafa
hliðstæð málgögn annars staðar.
En hvað um allt þetta? Að undanförnu hefur
verið vikið ögn inn á þá leið að blanda léttu efni
með, en þá hefur alltaf vantað rxim. Útgáfa er
feikilega dýr orðin og of dýr til þess að verja miklu
rúmi til léttara efnis, sem frekar á erindi til les-
enda í dagblöðum en tímariti. En nú er það ákvörð-
un útgefenda að auka lestrarefnið um komandi
áramót, áskriftargjaldið hlýtur að hækka að sama
skapi og starfskraftar við útgáfuna aukast. Hve
mikið sjóndeildarhringurinn víkkar verður reynsl-
an að leiða í ljós, enn er ekki búið að binda það
fastmælum. Sjálfsagt verður reynt að viða að efni
úr fleiri áttum en hingað til. Við verðum að fá svo
sem 100 samverkamenn í stað 60—70 sem verið
hefur, og fasta starfskrafta við útgáfuna þarf að
auka. Fastmælum er bundið, að Agnar Guðnason,
ráðunautur, verði þar að verki og er hann þegar
farinn að starfa á þeim vettvangi svo sem lesendur
hafa sjálfsagt orðið varir. Sjónarhóllinn hækkar,
við þurfum að fá útsýn til ýmissa átta, en auðvitað
verður FREYR málgagn landbúnaðarins eftir sem
áður.
ÁBURÐARKALK (Sjá forsíðumynd)
Það hefur verið ræktunarmönnum nokkurt
áhyggjuefni hvernig sjá skal jarðvegi rækt-
unarlandanna fyrir því kalki, sem nauðsyn-
lega þarf til þess að framhaldandi ræktun
geti fram farið með viðunandi árangri. Sú
staðreynd er alþekkt og viðurkennd, að kalk
er eitt hinna nauðsynlegu næringarefna
jurta og dýra, eftirtekja gróðurs rýrnar og
þverr ef kalkið skortir og alþekktir eru þeir
búfjárkvillar, sem stafa af kalkskorti.
Nú er það staðreynd, að í áburði þeim, sem
íslenzkir bændur kaupa, er ekki kalk og verð-
ur því að sjá fyrir kalki sérstaklega. Jörðin
verður að fá kalk í stað þess, sem flutt er
burt með uppskerunni og skepnumar verða
að fá kalk í stað þess sem flutt er burt með
mjólkinni til bæjanna, og með beinum
kjötsins fer einnig kalk, sem ekki hverfur til
moldar ræktunarlandsins í sveitinni aftur.
Nú vill svo vel til, að Sementsverksmiðjan
lætur dæla upp úr kalknámunni í Faxaflóa
öllu því kalki, sem þarf til sementsframleiðsl-
unnar og getur þar að auki fullnægt þörfum
bænda fyrir kalk til áburðar. Aðeins þurfa
því samtök bænda og Sementsverksmiðjan í
félagi að kerfa flutningafyrirkomulagið, þá
á að vera hægt að leysa kalkspursmálið með
auðveldu móti, landi og þjóð til gagns og
heilla. Hér er aðkallandi mál, sem leysa þarf
og leyst verður.________________________