Freyr - 01.04.1970, Page 5
FREYR
BÚNAÐARBLAÐ
Nr. 7-8 — Apríi 1970
66. órgangur
Útgefendur:
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
STÉTTARSAMBAND BÆNDA
Útgáfust|órn:
EINAR ÓLAFSSON
HALLDÓR PÁLSSON
PÁLMI EINARSSON
Ritstjórn:
GfSLI KRISTJÁNSSON
(ábyrgðarmaður)
ÓLI VALUR HANSSON
Heimilisfang:
PÓSTHÓLF 390, REVKJAVÍK
BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK
ÁskriftarverS kr. 300 árgangurinn
Ritstjóm, innheimta, afgreiðsla og
auglýsingar:
Basndahollinni, Reykjavík — Siml 19200
PrentsmiSia Jóns Helgasonar
Reykjavík — Sími 38740
EFNI:
FóSur og fóðurgildi
Búfjárrœktarstöðin á Lundi
Lög og reglugerðir um loðdýrarœkt
Fóðurbíll
Af hverju kemur kalið?
Gammaglóbúlín
Ur Rangárþingi
Frá fóSureftirlitinu
Mjólkin flutt tvisvar í viku
SmásöluverS á neyzluvörum
I nóvember 1969
Tilraunir með kjarnfóður handa ám
Ráðstefnur og námskeið
Rotmakk Kverk
Bór og molybden
Fréttir
Mjólkurframleiðsla
Nýr kartöflusetjari
Hollenzk garðyrkja
Molar
Fóður og fóðurgildi
Á vegum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins er í gangi
sérstákur liður starfsemi, sem varðar fóðureftirlitið. Það
felzt í því að annast umsjón með, að bændur fái sannan-
lega þá vöru í kjarnfóðri og kraftfóðri, sem forskriftir, er
fylgja fóðrinu, segja til um.
Forskriftirnar segja úr hvaða efnum umrœdd fóðurefni
eru gerð hverju sinni og hvert sé gildi þeirra. Við rann-
sóknir er hægt að staðfesta hvort innihald og gildi vör-
unnar sé það sem lofað er.
Niðurstöður um það eru að sjálfsögðu allar tölulegar
og yfirlit um þau efni, ef birt eru á prenti, hljóta því að
vera töflur. t þessu hefti Freys birtast í annað sinn tölur,
sem segja bændum hvaða efnamagn og hvaða gildi fóður
það hefur haft, sem þeir hafa notað að undanförnu og þá
um leið hvort það hefur verið efnt, sem lofað var um gildi
hverrar fóðurtegundar.
Ýmsum þykja tölur og töflur lítt girnilegar til lestrar,
enda ekki til þess ætlazt, að tölur séu lesnar í þulu, heldur
skoðaðar sem stœrðfræðilegar staðreyndir um ákveðið
gildi.
Það er nú svo, að um liðin ár hefur maður mætt því allt
of almennt meðal bœnda, að til umræðu hefur verið hvað
pokinn kostaði af þessari eða hinni fóðurvöru, einatt án
tillits til þess hve mörg kg séu í pokanum og þaðan af
síður með tilliti til hve margar einingar fóðurgildis þar
eru. Þetta segir sitt um viðhorf bœnda til hagrænna efna
i búskapnum. Það segir sig sjálft, að gildi fóðursins vegur
þyngst á metunum oa til viðhalds eða afurða hafa skepn-
urnar ekkert gagn af því, sem þær geta ekki nýtt þó að
það vegi mörg ka í hverjum poka. Það er fóðureininga-
gildið, það er próteinið, steinefnin og önnur efni, lífræns
eðlis, sem gefa fóðrinu samanlagt gildi þess.
Þið, bændur, eigið alltaf að líta á fóðurgildi og nefnd
atriði hverrar fóðurvöru, til þess að sannfærast um raun-
veruleikann, en fjöldi kílógramma í pokanum er auka
atriði. Tölurnar frá fóðureftirlitinu, sem FREYR birtir í
þessu hefti, eru staðfesting á gildi þess, sem þið hafið
keypt að undanförnu. Þær sanna hvort þið hafið keypt
köttinn í sekknum eða ekki. G.
F R E Y R
141