Freyr - 01.04.1970, Blaðsíða 33
í tilraunina um það sólarhring eftir að þær
báru og hver flokkur fóðraður sér og allt
fóður og fóðurafgangur veginn daglega.
Ærnar voru fóðraðar inni í 10 daga eftir
burðinn, en þá sleppt á tún og hafði hver
flokkur aðgang að um 2.5 ha af túni og um
0.5 ha af útjörð. Ærnar fengu töðu eins og
þær gátu etið með hinum ákveðna kjarn-
fóðurskammti, bæði á innistöðu og eftir að
þær komu á túnið. Meltanleikaákvörðun
var gerð á sýnishornunum af töðunni og
reyndist þurfa 1.6 kg í fóðureiningu.
Á innistöðutímabilinu var ánum gefið
2.1 kg af töðu til jafnaðar á dag í hverjum
flokki. Ærnar, sem fengu 450 g af fóður-
blöndu, átu mest af töðunni, eins og vænta
mátti, 2.0 kg á dag að meðaltali og var því
fóðureyðsla þeirra 1.70 FE á dag á þessu
tímabili. Ærnar í heykögglaflokknum átu
til jafnaðar 1.8 kg af töðu á dag og var því
fóðureyðsla þeirra 1.81 FE á dag að meðal-
tali á innistöðunni. Ærnar, se mfengu 900 g
af fóðurblöndu átu einnig 1.8 kg af töðu
daglega og var fóðureyðsla þeirra því 2.02
FE á dag á þessu skeiði. Eftir að ánum var
sleppt á tún var þeim gefin taða eftir því,
hve vel þær átu upp. Meðal-töðugjöfin í
450 g fóðurblönduflokknum var á þessu
tímabili 1.40 kg á dag, en til jafnaðar át
þessi flokkur mest eins og á innistöðunni
1.2 kg á dag til jafnaðar. Meðal fóðureyðsla
í fóðureiningum í þessum flokki var á þessu
tímabili því 1.20 FE. Meðaltöðugjöfin í hey-
kögglaflokknum á þessu skeiði var 1.3 kg,
en ærnar átu til jafnaðar 1.1 kg og samsvar-
því daglega fóðureyðslan 1.36 FE í þessum
flokki. Ánum, sem fengu 900 g af fóður-
blöndu var gefið 1.2 kg af töðu til jafnaðar
en þær átu aðeins 1.0 kg að meðaltali og var
fóðureyðsla þeirra því 1.52 FE á dag á þessu
tímabili að meðaltali. Yfir allt tilrauna-
skeiðið, sem stóð frá 13. maí til 9. júní, er
tvílembum var sleppt á úthaga, átu ærnar,
sem fengu 450 g af fóðurblöndu, 1.5 kg af
töðu, en ærnar í heyköggla- og 900 g fóður-
blönduflokknum 1.3 kg til jafnaðar á dag.
Meðalfóðureyðslan í fóðureiningum á dag,
yfir tilraunaskeiðið, var því 1.39 FE í 450 g
fóðurblönduflokknum, 1.50 FE í heyköggla-
flokknum og 1.71 FE í 900 g fóðurblöndu-
flokknum.
Tafla I.
Meðalþungi tilraunalambanna í fæti, kg
Vigtardagur 900 g fóð’urbl. 450 g fóð'urbl. 900 g heyköggl.
Yið fæðingu 3.36 3.30 3.35
Við lok innistöðu .. 5.67 5.43 5.52
Við lok túnbeitar 9. júní 8.53 8.28 8.57
Um rúning 14.09 14.04 14.45
1. október 34.22 33.57 32.94
Þar eð tala lamba af sama kyni er nær hinn
sama í öllum flokkum verður hér aðeins
rætt um bæði kynin sameiginlega.
Tafla II.
Meðalvaxtarhraði tilraunalambanna, g á dag
Bæði kyn
Tala lamba.............
Á innstöðu.............
Á túni til 9. júní.....
Frá fæðingu til 9. júní ..
Tala lamba við rúning ..
Frá 9. júní til rúnings ..
Frá fæðingu til rúnings
Frá rúningu til 1. okt. ..
Frá fæðingu til 1. okt . .
900 g 450 g 900 g
fóðurbl. fóðurbl. heyk.
42 41 43
240 226 224
218 218 233
228 221 229
28 39 35
244 242 245
234 232 236
224 213 205
228 220 214
Tafla I sýnir meðalþunga lambanna á
fæti í hvert sinn er þau voru vegin, og tafla
II sýnir vaxtarhraða þeirra í grömmum á
dag á hinum ýmsu skeiðum tilraunarinnar.
Á innistöðu-tímabilinu var meðalvaxtar-
hraði lambanna af báðum kynjum ívið
mestur í þeim flokki, sem fékk 900 g af
fóðurblöndu.
Eftir að ærnar komu á tún var vaxtar-
hraði lamba af báðum kynjum mestur í hey-
kögglaflokknum, 233 g á dag til jafnaðar, og
var það 15 g meira á dag en í hinum tveim
flokkunum, en í þeim minnkaði vaxtarhraði
lambanna eftir að ærnar komu á túnið úr
innistöðunni, en jókst aftur á móti í hey-
F R E Y R
169