Freyr - 01.04.1970, Blaðsíða 34
kögglaflokknum. Virðist sem ærnar í fóður-
blönduflokkunum hafi því ekki fengið full-
nægt fóðurþörf sinni á þessu tímabili.
Vera má, að landið, sem heykögglaflokk-
urinn gekk á, hafi verið eitthvað betra, enda
þótt reynt hafi veri að hafa öll hólfin sem
líkust með tilliti til sprettu og grasgæða.
Yfir gjafatímann, þ. e. frá fæðingu lamb-
anna og þar til ánum var sleppt á útjörð,
var meðalvaxtarhraði lamba af báðum
kynjum því nær hinn sami, 229 g á dag til
jafnaðar í þeim flokki, sem fékk 900 g af
fóðurblöndu og heykögglaflokknum, en
flokkurinn, sem fékk 450 g af fóðurblöndu,
hafði aðeins minni vaxtarhraða, eða 221 g á
dag til jafnaðar.
Frá því að ánum var sleppt á útjörð þann
9. júní, og fram að rúningi 2. júlí, jókst
vaxtarhraðinn til muna í öllum flokkum og
er hann mestur í öllum flokkum á þessu
skeiði. Styður það ennfremur tilgátuna um
að ærnar hafi ekki fullnægt fóðurþörf sinni
á túninu. Á þessu tímabili var meðalvaxtar-
hraði lamba, af báðum kynjum, mjög svo
hinn sami í öllum flokkum, um 243 g á dag
til jafnaðar. Frá fæðingu til rúnings var
meðal-vaxtarhraði lambanna af báðum
kynjum einnig mjög svipaður í öllum
flokkum, en þó ívið mestur í heyköggla-
flokknum. Ánum var sleppt á fjall um
viku eftir rúning. Frá rúningi til hausts
fer vaxtarhraðinn minnkandi í öllum
flokkum, en minnkar mest í heyköggla-
flokknum og í þeim flokki, sem ærnar fengu
450 g af fóðurblöndu, sem bendir til þess,
að ærnar, sem fengu 900 g af fóðurblöndu,
hafi verið betur undir sumarið búnar og
haldið betur á sér, en ærnar í hinum flokk-
unum.
Yfir allt vaxtarskeiðið, 136 daga, uxu
lömbin í þeim flokki, sem fékk 900 g af
kjarnfóðri, 228 g að meðaltali á dag. Var það
aðeins um 8 g meira en lömbin í 450 g
flokknum og 14 g meira en lömbin í hey-
kögglaf lokknum.
* ❖ *
Tafla III sýnir meðalsláturafurðir tilrauna-
lambanna, þegar þeim var slátrað 2. októ-
ber. Lömbin í 900 g fóðurblönduflokknum
reyndust 0.6 kg þyngri á fæti en lömbin í
450 g fóðurblönduflokknum og 1.3 kg þyngri
en lömbin í heykögglaflokknum og lögðu
þau sig með 0.61 og 0.63 kg þyngra falli en
lömbin í sömu flokkum í ofangreindri röð.
Kjöthlutfall lambanna í 900 g fóðurblöndu-
flokknum var 1.23% hærra en lambanna í
450 g fóðurblönduflokknum, en aðeins
0.29% hærra en lambanna í heyköggla-
flokknum. Gæruþunginn er mjög svipaður
í öllum flokkum, þó aðeins mestur í 450 g
fóðurbl. flokknum. Netjuþunginn reyndist
minnstur í 450 g fóðurblönduflokknum, en
var mjög svipaður í hinum tveim flokkun-
um. Gæðamat fallanna var mjög í vil lömb-
unum í 900 g fóðurblönduflokknum, 71%
þeirra fór í I. flokk á móti 41% í 450 g
fóðurblönduflokknum og 46% í heyköggla-
flokknum og í II. flokk fóru 21% á móti
44% í 450 g fóðurblönduflokknum og 39%
í heykögglaflokknum. í þriðja flokk fóru
aðeins 8% lambanna í 900 g fóðurblöndu-
flokknum en 15% í heyköggla- og 450 g
fóðurblönduflokknum. Til jafnaðar skilaði
tvílemban í 900 g fóðurblönduflokknum 1.22
kg meira af dilkakjöti en tvílemban í 450 g
fóðurblönduflokknum og 1.26 kg meira en
tvílemban, sem fékk 900 g af heykögglum.
Tafla III.
Meðalsláturafurðir tilraunalambanna
BæSi kyn 900 g fóðurbl. 450 g fóðurbl. 900 g heykögglar
Tala 38 41 39
Þungi á fæti kg 1. okt 34.2 33.6 32.9
Fall kg 13.37 12.76 12.74
Kjöthlutfall % .. 39.13 37.92 38.84
Gæra kg 3.02 3.04 2.98
Netja kg 0.78 0.67 0.75
Gæðamat 1. fl. % 71 41 46
Gæðamat 2. fl. % 21 44 39
Gæðamat 3. fl. % 8 15 15
170
F R E Y R