Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.1970, Blaðsíða 13

Freyr - 01.04.1970, Blaðsíða 13
3. Girðing: Um öll minkabú skal gera dýrhelda, trausta girðingu til varnar því, að dýrin sleppi út, svo og til varnar utan- aðkomandi ónæði. Girðing skal vera a. m. k. 4 metra frá skálum og mis- hæðum. Stólpar í girðingu skulu vera úr fúa- vörðu tré, steinsteypu eða galvaniser- uðu járni og grafnir niður fyrir frost- mark. Hæð þeirra ofan jarðar skal vera 160 cm. Þrír langbitar úr galvani- seruðu járni eða vatnsvörðu tré skulu festir innanvert á stólpana. Við útreikning á burðarþoli girðing- ar skal reikna með eftirtöldu álagi: Vindálag: 150 kg/m2 á álplötu. Línuálag: 40 kg/lm í 1,35 m hæð frá jörðu. Klæða skal grindina að innanverðu með vírneti eða plötum úr járni. Klæðning skal ná a. m. k. 40 cm niður fyrir jarðyfirborð. Á efri brún net- girðingar skal festur járn- eða alúmín- renningur 50 cm breiður. Beggja meg- in við klæðninguna skal fyllt upp með hraunmöl eða annarri grófgerðri möl (ekki sandi). Ef snjóalög verði meiri en 80 cm innan girðingar, skal þegar fjarlægja snjóinn 1,50 m frá girðing- unni. Öll umferð um girðingu skal fara fram um anddyri, sem girðingin er tengd við beggja megin. Lokubúnaður göngudyra skal vera spennugormslokun eða annar álíka, þannig, að hurð læsist um leið og henni er sleppt. Dyrum fyrir ökutæki skal lokað með rennihurðum (bíl- skúrshurðum) og skulu þær aðeins opnanlegar innanfrá. í 17. gr. segir m. a.: Sala minka innan- lands er því aðeins heimil, að kaup- andi leggi fram yfirlýsingu veiðistjóra eða trúnaðarmanns hans um, að loð- dýrabú það, sem dýrin eiga að flytjast til, hafi hlotið viðurkenningu land- búnaðarráðuneytisins. ... Nú óska aðilar, sem heimild hafá fengið til loðdýraræktunar, að ala minka af íslenzka villiminkastofnin- um, og skal þá leita samþykkis veiði- stjóra um heimild til þess hverju sinni. íslenzka villiminka má eingöngu ala og rækta á viðurkenndum loðdýrabú- um. Þeir, sem veiða mink lifandi í þessu skyni, eiga ekki rétt til verð- launa af opinberu fé. 22. gr. Nú sleppa loðdýr úr vörzlu, og skal þá sá, sem vörzluna annast, þegar í stað gera gangskör að því að hand- sama eða veiða dýrin og tilkynna jafn- framt án tafar hvarfið til veiðistjóra og viðkomandi lögreglustjóra og varð- ar sektum til ríkissjóðs 2.000—10.000 kr. ef út af er brugðið. 23. gr. Ef uppvíst verður, að frá loð- dýrabúi hafi verið krafizt greiðslu (verðlauna) með framvísun minka- eða refaskotta eða dauðra hvolpa, sam- kvæmt lögum um eyðingu refa og minka, varðar það refsingu að lögum, sbr. 155. og 248. gr. almennra hegning- arlaga, og jafnframt réttindamissi til að starfa við og reka loðdýrabú. Vafalaust er nauðsynlegt og rétt að setja strangar reglur um eldi loðdýra, en hvað sem öllum lögum og reglum líður, verður þó þyngst á metunum varðandi árangur af loðdýrarækt, að þeir, sem annast daglegan rekstur búanna, séu samvizkusamir og hafi alhliða þekkingu og reynslu í dýraeldinu. Því verður vart hjá því komizt fyrst í stað að leita til erlendra manna í þessum efnum. Um þessar mundir eru allmargir ungir íslendingar að kynna sér minkarækt er- lendis; flestir þeirra munu vera á Norður- löndunum á vegum einhverra samtaka, sem hyggja á minkarækt hér á næstu árum. Þótt það sé að sjálfsögðu góður undirbúningur, þá mun eins árs dvöl á minkabúi vart nægja til að hafa yfirumsjón á slíku búi hér heima, F R E Y R 149

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.