Freyr - 01.04.1970, Blaðsíða 14
Fóðurbíll
Laust fyrir síðastliðin jól tók Kaupfélag Rangæinga,
á Hvolsvelli í notkun fóðurflutningabíl af Volvogerð,
sem útbúinn er til þess að flytja fóður heim til
bænda sem búlkvöru.
Yfirbygging bílsins er smíðuð á verkstæði Kaup-
félagsins og er hún gerð að fyrirsögn Bjarna Helga-
sonar, sem þar er yfirsmiður.
I bifreið þessari er hægt að flytja 6 tonn af fóðri
í einu, en það er þá haft í þeim fjórum hólfum, sem
mynda yfirbygginguna.
Hægt er tæma hvert hólf fyrir sig og er þvi unnt
að hafa fjórar tegundir af fóðri í hverri ferð, ef það
þykir henta.
Auk fóðurtankanna eru skilyrði til að flytja nokk-
uð af öðrum farangri í hólfum við hlið þeirra, m. a.
fóður í sekkjum, ef vill. Myndin, sem fylgir hérmeð,
gæfi ekki tilefni til að álykta, að hér sé sérlegur
fóðurflutningabíll, ef ekki værl auglýsing á hlið
hans, sem segir, að þar sé SÍS FÓÐUR. Með loft-
þrýstidælu er fóðrinu dælt úr vagninum í fóður-
geymslur bænda.
með höndum. Það er nauðsynlegt, að hver
sá maður, sem kemur til með að hafa yfir-
umsjón með höndum, hafi alhliða þekkingu
á minkaeldi og góða starfsreynslu.
Nú er ákveðið að leyfa ekki starfrækslu
minni minkabúa en með 250 læðum og til
þeirra þarf 50 karldýr, alls 300 dýr. Hvað
kostar að koma upp þessari lágmarksstærð
150
skal ekkert fullyrt um, en víst skiptir kostn-
aður nokkrum milljónum króna, og flestir,
sem ætla út í minkarækt, munu gera ráð
fyrir að hafa margfalt fleiri dýr.
Hér eru mikil verðmæti í húfi og því
höfuðskilyrði, að menn vandi vel til alls, er
við kemur vali, eldi og umhirðu dýranna, ef
vel á að takast.
F R E Y R