Freyr - 01.04.1970, Blaðsíða 12
að fyrirkomulag og búnaður sé eins og
fyrir hefur verið lagt. Ef sóttkví er f
nábýli eða tengslum við loðdýrabú1,,
má eigi selja eða afhenda á annan hátt,
dýr úr búinu meðan á sóttkví stendur,,
og eigi fyrr en viðkomandi embættis-
dýralæknir heimilar.
14. gr. Þeir, sem óska að stofnsetja ldð--
dýrabú hér á landi, skulu senda land-
búnaðarráðuneytinu umsókn um það»
efni. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar'
áætlanir um byggingu loðdýrabúsins,
um gerð þess, staðsetningu, tæknileg-
an rekstur og fjármál, svo og um dýr,
sem fyrirhugað er að rækta á búinu.
Enn fremur skal fylgja umsókninni
umsögn viðkomandi sveitar- og bæjar-
stjórnar.
Að fengnu áliti veiðistjóra um þessi
gögn, tekur landbúnaðarráðuneytið á-
kvörðun um viðurkenningu loðdýra-
bús. Yiðurkenning ráðuneytisins skal
bundin þeim skilyrðum, að loðdýra-
rækt hef jist þar ekki, fyrr en gerð þess'
er öll í samræmi við fyrrgreindar á-
ætlanir, og tryggt sé, að daglegum
rekstri loðdýrabúsins veiti forstöðu
kunnáttumaður með a. m. k. eins árs
reynslu í hirðingu, fóðrun og meðferð
dýranna og úttekt hafi farið fram af
veiðistjóra eða umboðsmanni hans.
Nú er umsókn lögð fram um bygg-
ingu loðdýrabús á skipulagsbundnu
svæði, og skal þá landbúnaðarráðu-
neytið leita umsagnar byggingar-
nefndar viðkomandi sveitarfélags um
staðsetninguna, áður en byggingar-
leyfi er veitt.
Eigi má veita leyfi til að stofnsetja
minkabú með færri lífdýrum en 250
læðum.
Til stækkunar loðdýrabús þarf við-
urkenningu landbúnaðarráðuneytis
íns, og er óheimilt að nota viðbótar-
byggingar eða nýbyggingar, fyrr en
úttekt veiðistjóra eða trúnaðarmanns
hgii§ hefur farið fram,
15. gr. Loðdýr skulu eingöngu alin og
ræktuð hér á landi í sérstaklega út-
búnum og vönduðum loðdýrabúum.
Fer um gerð loðdýrabúa eftir því,
hvaða loðdýr skal í þeim geyma.,
þannig:
A. MINKAR
1. Vírnetsbúr:
Minkabúr skal gert úr vírneti,
möskvastærð l"xl" nr. 15, með tvö-
faldri galvaniseraðri húð. Milli búra
skal vera tvöfalt net, möskvastærð
¥2x14", nr. 17, eða %xl", nr. 18. Stærð
búranna skal vera a. m. k. 30x40x90 cm.
2. Dýrheldur skáli:
Burðargrindur skála skulu gerðar úr
steini, málmi eða fúavörðu timbri. Við
útreikninga á burðargrind skal reikna
með eftirtöldu álagi:
Vindálag: 150 kg/m2.
Lögunarstuðull: Reikna skal með lög-
unarstuðli C samkvæmt sænskum
staðli, þar til íslenkur álagsstaðall
liggur fyrir samþykktur. Þak skal
vera klætt galvaniseruðu bárujárni
með gluggum, sem bera góða og jafna
birtu. Skála skal reisa á steyptum
ramma, sem grafinn er niður fyrir
frostmark. Gólf í skálanum skal vera
þurrt og vel framræst og með a. m. k.
15 cm malar- eða sandlagi. Gaflar og
hurðir skulu vera úr tré eða járni. Ef
veggir skála eru ekki með samfelldri
klæðningu, skulu þeir vera úr vírneti,
sem fest er á grindur þannig að hægt
sé að þrífa undan búrunum utan frá
með því að opna vírgrindurnar eða
lyfta þeim upp. Bil milli skála skal
vera a. m. k. 3 metrar.
14§
F R E Y R