Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.1970, Blaðsíða 7

Freyr - 01.04.1970, Blaðsíða 7
Búfjárræktarstöðin Lundur, Akureyri, Við búið starfa fjórir menn vetrarmánuð- ina en að auki þrír menn yfir annatímann. Hér hefur aðeins verið drepið á nokkur helztu atriðin, er veigamest hafa verið í uppbyggingarstarfinu og er ekki að efa, að framkvæmdir hafa á hverjum tíma snúizt inn í bústörfin og stundum þá erfitt að greina þar á milli. Nú var ætlazt til þess, að sagt væri frá búskapnum og þá væntanlega hvernig reksturinn hefur gengið fjárhagslega, og hins vegar hvernig til hefur tekizt með það verkefni, sem ætlað var að leysa — af- kvæmarannsóknimar — að finna góð naut. Þegar athuguð er hin rekstrarlega niður- staða búsins hvert einstakt ár, ber að hafa einkum tvennt í huga, sem mestu veldur hvernig til tekst. í fyrsta lagi, hvernig reyn- ast tilraunakvígurnar, mjólka þær vel eða eru þær lélegar. Séu kvígurnar lélegar verður mjólkurinnleggið lítið og þessi mun- ur hefur orðið allt að 40.000 kg milli ára. Getur hver sem er séð hvað þetta gerir í krónum til og frá. Láta mun nærri, að and- virði helmings þessa mismunar verki sem nettóarður í reikningsskilum hvers árs. Þá er hitt atriðið, sem er bein afleiðing af því, sem þegar hefur verið nefnt, en það er, að ef við erum með lélegar kvígur, þá seljast þær fyrir lágt verð, ef nokkur vill kaupa. Eftirspurnin ræður auðvitað nokkru um verðið, en fyrst og fremst eru það gæði kvíganna. Tilraunakvígurnar eru seldar á haustin, eftir að þær hafa lokið sínu fyrsta mjaltaskeiði, og hefur salan yfirleitt geng- ið greiðlega, og á burðartíminn eflaust mik- inn þátt í því, því alltaf er mikil eftirspurn eftir kúm, sem bera fyrripart vetrar. Fleira kemur auðvitað til, til þess að hafa áhrif á afkomuna og eru stórir sveifluvaldar í búskap almennt, eins og tíðarfar og verð- lag. Á það ber auðvitað að líta, að þetta er tilraunabú, og verkin hljóta að ganga nokk- uð á annan veg, en í venjulegum búskap. Búið hefur skilað ofurlitlum rekstraraf- gangi flest árin, og þó ekki hafi verið um stórar upphæðir að ræða hvert ár, þá er það til samans öll árin nokkur upphæð. Það skal tekið fram, varðandi reikningsuppgjör, að búreksturinn hefur ekki verið látinn borga aðra leigu en vexti af lánum og af- skriftir á vélum, og svo viðhald á mann- virkjum. Búið hefur fengið framlag frá ríkinu, sem nemur rétt um 150 þúsundum króna árlega síðan 1957, og Mjólkursamlag K. E. A. hefur lagt fram svipaða upphæð. Alls frá Bún- F R E Y R 143

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.